Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2007, Qupperneq 24
föstudagur 4. maí 200724 Umræða DV
Eitt það mikilvægasta í samfélagi er að allir standi jafnt. Að kerfið
geti ekki mismunað þegnunum. Þessi mikilvægi grunnur samfélags-
ins var brotinn þegar ráðuneyti og Alþingi veitti verðandi tengda-
dóttur umhverfisráðherra ríkisborgararétt með allt öðrum hætti en
almennt er gert. Helsta embættisfólk þjóðarinnar braut jafnfræðis-
regluna. Um það snýst skandallinn, ekki um ágæti þeirra konu sem
fékk ríkisfangið. Hún er eflaust hin ágætasta manneskja og eflaust
er sómi af því að hafa hana meðal annarra Íslendinga. Hún er fórna-
lamb geðþótta, klíkuskapar og frekju fárra, fólks sem hefur verið
treyst til að gæta jafnræðis, gæta þess að þegnarnir standi jafnt.
Sú tíð á að heyra sögunni til að valdsmenn geti látið sérlög og sér-
afgreiðslur gilda fyrir sig og sína. Íslendingar hafna þjóðfélagi Jón-
ínu Bjartmarz og þeirra sem lögðu henni lið í sérkjörunum. Furðu
vekur að enn og aftur er efast um
heilindi þeirra sem segja fréttirn-
ar. Allt er gert til að strá efasemd-
um um þá fjölmiðla sem hreyfa
við sérmáli ráðherrans. Verjendur
Framsóknarflokksins hafa nóg að
gera. Þvælan í Landsvirkjun hvarf
í skuggann af ríkisfangsmálinu og
eins sú staðreynd að Jónína Bjart-
marz gerði ekkert með úrskurði
Skipulagsstofnunar og Umhverf-
isstofnunar varðandi sumarhúsa-
byggð við Mývatn. Heimamenn í
Mývatnssveit eru þess fullvissir að góður og gegn Framsóknarmað-
ur náði sínu fram með aðstoð ráðherra, þrátt fyrir neikvæðar um-
sagnir til þess bærra stofnana.
Framsókn hefur lag á að koma sér í vanda. Það er ekki þeim að
kenna sem benda á. Framsókn er einfær um vandræðin. Nú er upp-
lýst að framsóknarmaðurinn í allsherjarnefndinni fékk félaga sína
þar til að hleypa máli tengdadóttur ráðherrans til afgreiðslu á Al-
þingi. Frekjan í honum og ráðherranum hefur bakað hinum í nefnd-
inni mikil óþægindi. Þar sem ástæða er til að efast um flest sem sagt
hefur verið í vörn málsins er ljóst að umfjöllun mun halda áfram og
varnarmúr sérhagsmunanna mun falla. Ekki er annað hægt en að
sýna það sem á bakvið er.
Jafnræði þegnanna er mikils virði. Sérhagsmunir þeirra, sem
telja sig yfir annað fólk hafið, mega ekki ná í gegn. Til að koma í veg
fyrir það eru fjölmiðlar mikilvægir. Það eru þeir sem kæra sig um að
veita ráðafóli aðhald. Hinir halda eflaust sínu striki.
Sigurjón M. Egilsson
Jafnræði og frekja
Hugsunarlaust virðingarleysi
Hún er fórnalamb geð-
þótta, klíkuskapar og
frekju fárra, fólks sem
hefur verið treyst til að
gæta jafnræðis, gæta
þess að þegnarnir
standi jafnt.
Útgáfufélag: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf.
StJórnarformaður: Hreinn loftsson framkVæmDaStJóri: Hjálmar Blöndal
ritStJóri og áByrgðarmaður: Sigurjón m. Egilsson
fulltrÚi ritStJóra: Janus Sigurjónsson
HUGLEIKUR
Tíminn og ráðningin
Athygli vekur að Jón H.B.
Snorrason, aðstoðarlögreglu-
stjóri í Reykja-
vík og fyrrver-
andi yfirmaður
efnahagsbrota-
deildar Ríkis-
lögreglustjóra,
er á meðal
umsækjenda
um starf rík-
issaksóknara.
Nú velta sumir aðilar fyrir sér
tímasetningu ráðningar nýs rík-
issaksóknara og segja að verði
Jón fyrir valinu verði hann ekki
skipaður í embættið fyrr en eftir
kosningar, verði annar fyrir val-
inu verði kynnt um skipun fyrir
kosningar.
Stóra spurningin
Einni spurningu er ósvarað vegna
starfsloka Bjarna Ármannsson-
ar, forstjóra
Glitnis. Spurn-
ing sem á án
efa eftir að
liggja eins og
mara á mörg-
um áhugasöm-
um einstakl-
ingum þar til
henni hefur
verið svarað. Með hliðsjón af fyrri
afrekum Bjarna á hinum margvís-
legustu sviðum íslensks mannlífs,
og starfslokum hans nú, hljóta
menn að spyrja sig í fullri alvöru
og bíða spenntir eftir svarinu:
Ætlar Bjarni að taka þátt í Glitnis-
maraþoninu í ár?
Þrjú prósent
Bloggarar kættust mjög þegar
Time valdi þá manneskju ársins
í kringum síð-
ustu áramót.
Fögnuðu þá
margir sigri
enda sum-
ir duglegir að
halda merki
bloggismans á
lofti, þeirra á
meðal Stein-
grímur Sævarr Ólafsson sem
hefur lengi dásamað ágæti blogg-
ara og áhrif þeirra á umhverfi sitt.
Sennilega hefur sömu mönnum
brugðið þegar í ljós kom að að-
eins þrjú prósent áhrifamanna í
könnun Gallup sagðist taka mark
á bloggum.
Sandkorn
Umbrot: dV. Prentvinnsla: Prentsmiðja morgunblaðsins. Dreifing: Árvakur. dV áskilur sér rétt til að
birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
fréttaStJóri: Brynjólfur Þór guðmundsson
aðStoðarritJóri: Sigríður Dögg auðunsdóttir auglýSingaStJóri: auður Húnfjörð
Atvikið á þriðjudaginn, þegar ungt fólk með
Tópasauglýsingar á mótmælaspjöldum frá Nóa-Sír-
íusi blandaði sér í kröfugöngu verkalýðsfélaganna í
Reykjavík, vakti athygli mína. „Vörukynning og góð-
látlegt grín“ hafði Fréttablaðið eftir markaðsstjóra
sælgætisframleiðandans. Hann skildi ekkert í upp-
náminu og óánægjunni.
Það er mikið talað um gjár í þjóðfélaginu um þess-
ar mundir, ekki síst gjána á milli ríkra og hinna efna-
minni. En getur verið að það sé að verða til önnur
gjá sem ætti ekki síður
að verða okkur að um-
hugsunarefni? Gjá á
milli þeirra, sem þekkja sögu og hefðir þessarar þjóð-
ar og bera virðingu fyrir stofnunum og hreyfingum
sem áttu þátt í að skapa hagsældarþjóðfélag nútím-
ans, og svo hinna sem aldrei leiða hugann að liðinni
tíð og orsakasamhengi hlutanna?
Það er allt í lagi að gagnrýna verkalýðshreyfing-
una. Hún þarf á því að halda. Það er líka í góðu lagi að
grínast með hana. Það veitir ekki af svolitlum húmor í
þjóðfélaginu. En allt hefur sinn tíma og sinn stað. Við
leyfum okkur að stríða þjóðkirkjunni og jafnvel skop-
ast með sögupersónur Heilagrar ritningar. En við ger-
um það ekki í miðri guðsþjónustu! Það er óviðeigandi
að mæta í hámessu verkalýðsfélaganna, kröfugöng-
una og útifundinn 1. maí, með spjald sem á stendur
Við heimtum Tópas! og annað í þeim dúr. Hugsanlega
gæti það gengið ef það væri liður í þjóðfélagsgagnrýni
sem hugsun og broddur væri í. Atvikið á þriðjudaginn
var því miður ekki þeirrar ættar. Það var, held ég, hugs-
unarlaust virðingarleysi fyrir fólki, hefðum og sögu.
Það stendur kannski öðrum en mér nær að velta
því fyrir sér hvers vegna ungu fólki, auglýsingagerð-
armönnum og sælgætisframleiðendum, þykir ekk-
ert athugavert við að nota 1. maí göngu verkalýðsfé-
laganna fyrir vörukynningu og leikaraskap. Sennilega
ber verkalýðshreyfingin sjálf mikla ábyrgð í þessu efni.
Hefur líklega ekki velt nægilega fyrir sér stöðu sinni í
breyttu þjóðfélagi. Og ekki brugðist við. Sumum finnst
að kröfugangan sé orðin úrelt af því að við höfum það
svo gott.. Einhverjir verkalýðsforingjar hafa tekið und-
ir þetta og beinlínis gert tillögu um að félagsmenn
stéttarfélaganna komi saman í Fjölskyldu- og hús-
dýragarðinum þennan dag og stytti sér stundir við
leiki með pulsur, kók og blöðrur.
Líklega er skynsamlegt að verkalýðshreyfingin
endurskoði dagskrá sína 1. maí. Jafnvel á róttækan
hátt. Það eru jú liðin 74 ár frá fyrstu kröfugöngunni.
En það er eitthvað óviðeigandi og fráhrindandi við
hugmyndina um pulsusamkomu í Laugardalnum á
verkalýðsdaginn. Hugmyndin er eitthvað svo sorgleg
þegar saga verkalýðshreyfingarinnar er höfð í huga.
Ég er hræddur um að slík samkoma mundi leiða það
eitt af sér að hreyfingin tapaði því sem hún enn á af
tiltrú og virðingu.
GUÐMUNDUR MAGNÚSSON
sagnfræðingur skrifar
„Það er allt í lagi að gagnrýna
verkalýðshreyfinguna. Hún þarf
á því að halda. Það er líka í góðu
lagi að grínast með hana. Það
veitir ekki af svolitlum húmor í
þjóðfélaginu. En allt hefur sinn
tíma og sinn stað“.
kjallari
Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is
SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR
BIFREIÐAVERKSTÆÐI
Útvatnaður saltfiskur án beina til að sjóða
Sérútvatn. saltfiskur án beina til að steikja
Saltfisksteikur (Lomos) fyrir veitingahús
Fundur í miðborginni
Á 3ju og 4ðu hæð Iðu-hússins eru tveir fallegir
salir. Stærri salurinn tekur allt að 150 manns
og minni salurinn 120 manns. Allur aðbúnaður
og tæknibúnaður er fyrsta flokks; þráðlaus kerfi,
nettengingar og aðstaða fyrir starfsfólk svo
eitthvað sé nefnt.
Lídó er glæsilegur salur á horni Ingólfsstræti og
Hallveigarstíg. Salurinn tekur allt að 400 manns í
sæti og hentar f ábærlega fyrir funda- og ráðstefnu-
hald.
Veisluþjónusta okkar er rómuð fyrir fjölbreyttar
og spennandi veitingar, útbúnar af snjöllustu fag-
mönnum. Við leggjum áherslu á sveigjanleika, enda
eru kjörorð okkar: Ykkar ánægja er okk r m rkmið.
Kynntu þér þjónustu okkar á www.veislukompaniid.is
eða hringdu í síma 517 5020 og við lögum okkur
að þínum þörfum.
Með kveðju,
Hafsteinn Egilsson
Staðsetning ráðstefnunnar eða fundarins er
ekki síður mikilvæg en fyrsta flokks aðbúnaður
og þjónusta.Við bjóðum allt þetta; frábæra
sta s tni gu í hjarta borgarinnar, þrjá glæsilega
sali með öllum nauðsynlegum tæknibúnaði og
fyrirtaks veisluþjónustu.
Lækjargötu 2a 101 Reykjavík s 517 5020 www.veislukompaniid.is
F
í
t
o
n
/
S
Í
A