Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2007, Blaðsíða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2007, Blaðsíða 43
DV Helgarblað Föstudagur 4. maí 2007 43 KONUR ÍSLANDS ForsætisráðherraeFni samFylkingarinnar ingibjörg sólrún gísladóttir er áhriFamesta kona landsins. Fast á hæla hennar Fylgir björk guðmundsdóttir og því næst þorgerður katrín gunnarsdóttir. ingibjörg sólrún er sögð Fyrirmynd, umdeild, Fyrsta konan til að sigra raunverulegt valdavígi karla og eigi eFtir að sigra Fleiri. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, forsætisráðherraefni Samfylkingar- innar, er áhrifamesta kona lands- ins að mati dómnefndar DV. Dóm- nefndin var á því að hún væri fyrsta konan sem gerði tilkall til raunveru- legra valda í íslenskum stjórnmál- um og jafnframt sterkasta vopnið í jafnréttisbaráttunni, sem fyrsta kon- an í stjórnmálum sem er ekki „bara með“ heldur er raunverulegur leið- togi. Í öðru sæti, einungis einu stigi á eftir Ingibjörgu Sólrúnu, er Björk Guðmundsdóttir tónlistarmað- ur og Þorgerður Katrín Gunnars- dóttir, varaformaður Sjálfstæðis- flokksins, í því þriðja. Um Björk var það meðal annars sagt að hún væri í svipaðri stöðu í ís- lensku þjóðlífi og menningu og Hall- dór Laxness, þó ekki eins umdeild. Þá var staða Þorgerðar Katrín- ar innan stærsta stjórnmálaflokks landsins sögð einna helst færa henni völd og áhrif. Þessar þrjár konur hlutu töluvert fleiri stig en þær kon- ur sem á eftir komu en alls komust á þriðja tug kvenna á blað. Fjórða áhrifamesta kona lands- ins er Valgerður Sverrisdóttir ut- anríkisráðherra en jafnar í fimmta til sjöunda sæti eru athafnakonurnar og mágkonurnar Kristín Jóhanns- dóttir og Ingibjörg Pálmadóttir og einnig forsetafrúin okkar Dorrit Moussaieff. Í 8.–14 sæti eru Vigdís Finn- bogadóttir, fyrrverandi forseti, Rannveig Rist forstjóri, Krist- ín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, Inga Jóna Þórðardótt- ir stjórnmálamaður, Katrín Anna Guðmundsdóttir femínisti, Svafa Grönfeldt, rektor Háskólans í Reykjavík, og loks Edda Rós Karls- dóttir, forstöðumaður greiningar- deildar Landsbankans. ráðherra þótt ekki mikið hafi reynt á hana enn.“ „Hafði mikil áhrif sem iðnaðarráð- herra á uppbyggingu stóriðju á íslandi.“ „sterk innan Framsóknarflokksins og fer sínar eigin leiðir. Þótt flokkurinn sé lítill hefur hún verið yfir áhrifamikl- um ráðuneytum. Þar hefur hún tekið ákvarðanir sem eftir hefur verið tekið, eins og til dæmis nýverið í utanríkis- ráðuneytinu.“ „Kemur sífellt á óvart og hefur náð toppnum í núverandi starfi og sýnt það svart á hvítu hversu áherslur kynjanna geta verið ólíkar og hversu nauðsynlegt er að hafa þá sem stjórna ekki einsleitan hóp.“ „Verst að hún skuli vera í Framsóknar- flokknum.“ Sagt um Kristínu Jóhannesdóttur: „Þótt ekki fari mikið fyrir Kristínu í daglegri umræðu í fjölmiðlum hefur hún um margra ára skeið verið ein aðsópsmesta konan í íslensku viðskiptalífi og verið í forsvari fyrir þau félög sem hún og fjölskylda hennar reka. Áhrif hennar í viðskipta- lífinu eru því gríðarlega mikil.“ „Áhrif Baugs blasa við á öllum sviðum íslensks þjóðfélags.“ „Kona sem þarf bara að smella fingrum til að fá sínu framgengt.“ Sagt um Ingibjörgu Pálmadóttur: „Ein efnamesta kona landsins og í stjórn stórra fyrirtækja þar sem hún er stór hluthafi.“ „atkvæðamikil í viðskiptalífinu og situr meðal annars í stjórn Baugs. Hún hefur auk þess jákvæða og sterka ímynd.“ Sagt um Rannveigu Rist: „Brautryðjandi kvenna í íslensku viðskiptalífi. mátaði sig í hlutverk forstjóra alþjóðlegs stórfyrirtækis á íslandi á undan öllum öðrum konum.“ „Þrátt fyrir ósigur í álverskosningunni í Hafnarfirði efast enginn um að hún er öflugasta konan í viðskiptalífinu.“ „Það hlusta allir þegar hún talar.“ Sagt um Kristínu Ingólfsdóttur: „sem rektor Háskóla íslands hefur Kristín mikið um framtíðarstefnu- mörkun menntamála að segja. Þegar hún talar sperrir fólk eyrun, endar er Hí að mörgu leyti uppspretta framfara og sköpunar í þjóðfélaginu.“ „með róttækum hugmyndum um að gera Hí að einum af 100 bestu háskólum veraldar hefur henni á stuttum ferli tekist að koma Hí á dagskrá þjóðfélagsumræðunnar.“ „Hefur snúið vörn Hí í sókn í samkeppninni á menntasviðinu.“ Sagt um Svöfu Grönfeldt „Er töffari.“ „Beittari en aðrar konur í sambæri- legri stöðu. Kemur úr beittu viðskiptaumhverfi og mun skerpa áherslurnar enn frekar í Hr.“ „tekur mikinn þátt í umræðunni. Er í góðri stöðu til að móta framtíðarleið- toga.“ Sagt um Dorrit: „Óumdeilt drottningin yfir íslandi. Forsetafrú á Bessastöðum sem þekkir alla sem skipta máli hér á landi og ekki síður erlendis.“ „Elskuð og dáð í listalífinu enda hafa sambönd hennar skipt sköpum fyrir fjölmarga listamenn.“ „Hefur tengslanet sem er milljarða- virði.“ „Kemur úr þannig kreðsum og hefur sósíaliserað með valdafólki alls staðar að úr heiminum.“ „Þótt hún sé lítillát og hógvær gerir hún mikið fyrir land og þjóð.“ Sagt um ófaglærða leik- skólakennarann þinn: „Elur upp börnin þín þótt þú tímir ekki að borga henni nema helming- inn af launum konunnar sem telur peningana þína.“ Sagt um íslensku menningarmóðurina: „Valkyrjurnar sem keyra áfram íslenska menningu: Þórunn sigurðar- dóttir, Þorgerður Katrín gunnarsdótt- ir, silja aðalsteinsdóttir, tinna gunnlaugsdóttir, Katrín Hall, Laufey guðjónsdóttir, margrét Hallgríms- dóttir, Edda Jónsdóttir, signý Pálsdóttir, svanhildur Konráðsdóttir, Hrefna Haraldsdóttir, Þórhildur Þorleifsdóttir, soffía auður Birgisdótt- ir, Jórunn sigurðardóttir ofl. ofl.).“ 2 43 5-7 5-7 5-7 Þessar voru einnig nefndar: agla Hendriksdóttir, auður auðuns, Bríet Bjarnhéðinsdóttir, Elín sigfúsdóttir, guðbjörg matthíasdóttir, guðný arna sveinsdóttir, Halla tómasdóttir, Hildur Petersen, „íslenska menningarmóðirin“, Jórunn sigurðardóttir, Lilja Pálmadóttir, margrét Frímannsdóttir, margrét Pála Ólafsdóttir, „ófaglærði leikskólakennarinn“, ragnheiður Elín Árnadóttir, sigríður tómasdóttir, svava Johansen, tinna gunnlaugsdóttir. Björk Guðmundsdóttir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Valgerður Sverrisdóttir Kristín Jóhannesdóttir Ingibjörg Pálmadóttir Dorrit Moussaieff Vigdís Finnbogadóttir Rannveig Rist Kristín Ingólfsdóttir Inga Jóna Þórðardóttir Katrín Anna Guðmundsdóttir Svafa Grönfeldt Edda Rós Karlsdóttir 12-1412-1412-1410-1110-1198 ÁHRIFAMESTU
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.