Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2007, Qupperneq 45
Meistarinn
Berghildur Magnúsdóttir Matgæðingurinn
DV Helgarblað Föstudagur 4. maí 2007 45
Sigríður Þorgeirsdóttir, fram-
kvæmdastjóri rekstrarsviðs Lög-
mannsstofunnar Logos, var mat-
gæðingur síðustu viku. Hún skoraði
á nágranna sinn og vinkonu Berg-
hildi Magnúsdóttur að vera mat-
gæðingur vikunnar að þessu sinni.
Ekki stóð á Berghildi að taka áskor-
uninni og segir hún réttinn sem
hún býður upp á bæði einfaldan og
fljótlegan.
Í síðustu viku sagði Sigríður
Berghildi vera snilldarkokk og allt-
af tilbúna að prófa eitthvað nýtt.
Hér býður Berghildur lesendum
DV upp á kínverskan nautakjötsrétt
í aðalrétt og einfaldan eftirrétt sem
er heimatilbúinn.
Uppskriftina að nautakjötsrétt-
inum fékk hún úr gamalli kínverskri
kokkabók sem er orðin 15 ára göm-
ul. Í gegnum tíðina hefur hún breytt
uppskriftinni lítillega og segir hún
að það fari eilítið eftir smekk fólks
hve mikið krydd beri að nota, en
rétturinn sé þó alltaf góður.
Aðalréttur
500 grömm af úrvalsnautakjöti (til
dæmis innanlæri eða fillet), ef
miðað er við fjóra.
tvær grænar paprikur
Einn laukur
tveir vorlaukar
Engiferrót um það bil 2,5 sentimetrar
tveir hvítlaukar um það bil
Þrír grænir chillipiparar (má einnig
nota rauða)
- Því næst er það kryddblandan -
2 msk. af dökkri sojasósu,
1 tsk. af sesamolíu
malaður svartur pipar eftir smekk
1/2 tsk. salt (Berghildur segir það fara
eftir vali hvort salt sé notað, því
sojasósan sé nægilega sölt)
- að lokum sósan -
2 msk. kjúklingasoð
1/2 msk. dökk sojasósa
Nokkrir dropar af sesamolíu
Aðferð:
Fyrst er hráefnunum blandað
saman við kryddlöginn og kjötið lagt
í hann. Mikilvægt er að skera kjöt-
sneiðarnar mjög þunnt. Síðan eru
tvær matskeiðar af ólífuolíu hitaðar
á wok-pönnu. Svo eru paprikan og
laukurinn skorin í sneiðar og vor-
laukurinn saxaður. Þegar búið er að
setja olíuna á pönnuna eru paprik-
an og laukarnir steiktir saman í tvær
mínútur. Þetta er síðan látið á disk
og geymt til hliðar um sinn.
Því næst eru tvær til þrjár mat-
skeiðar af olíu settar aftur á pönn-
una og þar er sett söxuð engiferrót,
saxaður hvítlaukur og chillipipar.
Þetta er steikt saman í eina mínútu.
Því næst er kjötið sett á pönnuna
með öllu saman og kjötið steikt í 4-
5 mín. Að lokum er sósuhráefninu
bætt við ásamt paprikunni og laukn-
um. Þetta er svo hrært vel saman og
látið sjóða í tvær mínútur. Að lokum
er hægt að fjarlægja engiferssneið-
arnar ef þær eru of stórar. Þetta ber
Berghildur fram með hrísgrjónum,
léttsteiktu blómkáli, brokkóli og
sneiddum gulrótum.
Heimatilbúinn eftirréttur
1 marensbotn
100 grömm af súkkulaði
tvær eggjarauður
1 dl af flórsykri
smjörklípa (lin)
Ferskir ávextir að eigin smekk
Aðferð:
Fyrst er marensinn mulinn í mót.
Síðan er gert krem með því að nota
100 grömm af súkkulaði, tvær eggja-
rauður, um það bil 1dl af flórsykri og
lina smjörklípu. Súkkulaðið er svo
brætt og öllu þeytt saman. Síðan eru
tveir þriðju hlutar af súkkulaðinu sett-
ir ofan á marensinn og einn til einn og
hálfur peli af þeyttum rjóma settur
ofan á. Svo er öllum ávöxtunum rað-
að ofan á og þetta skreytt með restinni
af kreminu.
Um matinn segir Berghildur að
undirbúningurinn sé mjög stuttur og
bæði sé einfalt og þægilegt að hafa
þessa rétti til. „Báðir þessir réttir eru
mjög vinsælir hjá ungum sem öldn-
um og hafa margoft slegið í gegn.“
Kínverskur
nautakjötsréttur og
heimatilbúinn eftirréttur
FennelsAlAtið
Skerið fenniku og skarlottulauk
í mjög fína strimla og veltið upp úr
ólífuolíu og ögn af sítrónusafa. Bæt-
ið út í söxuðum túnsúrum og dilli.
Smakkið til með salti og pipar.
stökkA mAltbrAuðið
Skerið brauðið örþunnt og þurrk-
ið í ofni við 100°C uns það er stökkt.
eggið
Hægsjóðið eggið í 62,8°C heitu
vatni í 65,5 mínútur, fjarlægið skurn-
ina varlega og setjið fallega ofan á
smálúðuna.
FrAmreiðslAn
Leggið í djúpan disk og setj-
ið fenniku og túnsúrusalatið undir
og yfir smálúðuna. Gott er að leggja
hægsoðið eggið ofan á stökkt malt-
brauðið. Skreytið með fersku dilli og
kannski kerfil. Berið fram með úrvals
ólífuolíu og hvítvínsglasi. Ekkert mál
er að auka magnið og bera fram sem
aðalrétt, en þá er gott að bæta við
snöggelduðu vorgrænmeti.
„Ég skora á Eddu Sveins-
dóttur sem er mikill matgæð-
ingur og spáir mikið og spek-
úlerar í mat. Hún er dugleg við
að töfra fram ýmsa rétti og get-
ur verið hreinlega ótrúleg.“
mundu að fólk hefur fimm ástæður
til þess að fá sér í glas: Þegar vinur
kemur í heimsókn, núverandi og
tilvonandi þorsti, jákvæð áhrif og
ljúffengt bragð vínsins auk allra
hinna tilefnanna.
Gamall málsháttur
Túnfiskpastaréttur
@Fyrir 2-3
2 x 200 gr túnfiskur í vatni
200 g spelt penne pasta (lítil rör).
má líka nota heilhveiti.
400 g krukka af pastasósu með
tómötum sem aðaluppistöðu,
sveppum, lauk og hvítlauk,
helst lífrænt ræktað.
400 g tómatar, vel þroskaðir,
saxaðir, (má nota 400 g dós
af söxuðum, niðursoðnum
tómötum)
2 msk tómatpurré
3 sveppir, sneiddir fínt
1/2-1 dl svartar ólífur í sneiðum
2 hvítlauksgeirar, pressaðir eða
saxaðir
2 msk svartur pipar
1 tsk heilsusalt (Herbamare)
1 tsk kókosfeiti eða ólífuolía
Aðferð:
Byrjið á því að sjóða pastað samkvæmt leiðbeiningum utan á pakka. Látið
renna af pastanu, kælið undir kaldri bunu í nokkrar sekúndur og geymið.
Hitið smá kókosfeiti eða ólífuolíu og vatn í stórum potti og hitið sveppina
og ólífurnar. Kryddið með salti og smá pipar.
Hellið sósunni saman við og hitið þangað til hún er orðin vel heit. Bætið
túnfisknum út í og hrærið varlega þannig að séu enn þá bitar í túnfisknum,
þ.e. passið að sundurtæta ekki túnfiskinn. Bætið pastanu saman við og hitið
vel.
Berið fram með rifnum parmesanosti og ólífubrauði.