Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2007, Qupperneq 54
God of War 2 er líklega síðasti al-
mennilegi leikurinn sem kemur
út á Playstation 2. Afar viðeigandi
endalok frábærrar leikjatölvu.
Leikurinn er stórkostlegur. Hann
gefur þeim fyrri ekkert eftir þrátt
fyrir að hann bæti ekkert allt of
miklu við. En sem áður fara menn
í hlutverk stríðguðsins Kratos,
sem er enn á ný kominn í ónáð
guðanna. Það er Seifur sjálfur sem
ræður niðurlögum manns fljót-
lega í leiknum og þarf Kratos að
hefja langt og strangt ferðalag til
þess að hitta heilladísir sem geta
snúið aftur tannhjólum tímans.
Leikurinn er stútfullur af grískri
goðafræði og umhverfið er stór-
brotið. Kratos er líklega öflugasta
persónan sem tölvuleikjaheimur-
inn hefur getið af sér og er ég viss
um að ef honum yrði att gegn öðr-
um tölvuleikjahetjum færi hann
létt með þær. God of War er ekki
aðeins bara hraður og kraftmikill
ofbeldisleikur heldur þarf maður
einnig að beita massífu hugviti til
að leysa hinar ýmsu gátur. Grafík-
in er stórgóð og stýringarnar frá-
bærar. God of War 2 er besti tölvu-
leikur sem ég hef spilað lengi. Sem
leikur er hann ekki bara frábær
heldur vitnisburður um hversu
stórbrotinn tölvuleikjaheimur-
inn er í raun og veru. Manni líður
hreinlega eins og að hafa verið á
þungarokkstónleikum eftir að hafa
spilað leikinn í drykklanga stund.
Ég mæli ekki aðeins með honum
heldur krefst þess að tölvuleikja-
unnendur sem aðrir spreyti sig á
þessum tryllingi.
Dóri DNA
dóri dna segir:
&
U m s j ó n : D ó r i D N A N e t f a n g : d o r i @ d v . i s
föstudagur 4. maí 200754 Helgarblað DV
leikirtölvu
Prince of Persia: rival swords - WII
fEar - PS3
tony Hawk Project 8 - PSP
Com. & Conquer 3 tiberium Wars
- XboX360
Lost in Blue 2 - NINteNdo dS
Kíktu á þessa
leiKjatölvur
Út er kominn leikurinn The Lord of the Rings Online: Shadows of Angmar. Um er að
ræða hlutverkaleik sem spilast yfir netið og gerist hann allur í Miðgarði, sagnaheimi
tolkiens í Hringadróttinssögu. Nú í fyrsta skipi geta aðdáendur bókanna og kvikmynd-
anna lagt sitt af mörkum í baráttunni um Miðgarð.
StyttiSt í
Fallout 3
Það eru níu ár síðan leikurinn Fallout
2 kom út, en Fallout-leikirnir eru
einhverjir bestu RPG-leikir sem komu
út á tíunda áratugnum. Þriðji
leikurinn var væntanlegur skömmu
eftir aldamót en þegar fyrirtækið
black Isle Studios fór á hausinn hvarf
leikurinn á sama tíma. Fyrirtækið
bethesda Softworks hefur tekið
málin í sínar heldur og stefnir á að
gefa út leikinn í ár. Stikla úr leiknum
verður komin á netið þann fimmta
júní en leiknum mun svipa um margt
til RPG-leiksins elder Scrolls IV:
oblivion.
Færður til
vegna CS
Nemandi á síðasta ári við Clements High
school í sugar Land texas hefur verið
færður til í annan skóla eftir að skólayfir-
völd komust að því að pilturinn hefði
búið til borð í leiknum Counter strike
sem var nákvæm eftirlíking af skólanum.
Nemandinn var hvorki handtekinn né
kærður, en lögregla leitaði heima hjá
honum þar sem hún fann fimm sverð og
skipaði honum einnig að eyða út
borðinu sem byggt var á skólanum.
forsvarsmenn skólans segja að eftir
atburðina í Columbine og Virginiu sé
mikið eftirlit með öllu svona og að
aðgerðir drengsins hafi næstum mátt
túlka sem hótun.
Home beta út-
gáFa í Sumar
Fyrsta beta-útgáfa Home-kerfisins í
evrópu fyrir Playstation var hleypt af
stokkunum nýlega, en Home er
einhvers konar háþróuð blanda af
Myspace og MSN. Aðeins valdir aðilar
geta notið kerfisins fyrst um sinn en
seinna í sumar gefst fleirum kostur á
að taka þátt. Kerfið er eingöngu fyrir
Playstation 3 og geta þeir sem hafa
áhuga á því að prófa beta-útgáfuna
skráð sig á heimasíðu Playstation 2.
talið er að um 50 þúsund manns verði
svífandi um í Home í ágústmánuði.
Tölvuleikurinn The Lord of the Rings
Online: Shadows of Angmar var gef-
inn út í vikunni. Hlutverkaleikur
sem spilast á netinu og er það fyrsti
leikurinn þessar tegundar sem gerð-
ur er eftir bókum J.R.R. Tolkiens sem
gefinn er út. Leikmenn geta valið
sér kynþátt, en hægt er að spila sem
menn, álfar, dvergar eða hobbitar. Þá
getur maður einnig valið sér hlutverk
en þar er allt á milli bardagamanna,
innbrotsþjófa og galdramanna. leik-
menn geta svo stýrt hverju einasta
smáatriði allt frá hárlit, augnlit, húð-
lit og svo framvegis. Leikurinn ger-
ist í sagnaheimi Tolkiens, Middle-
Earth, og þurfa leikmenn að leggja
lið í stríðinu gegn Sauron og hans
myrkru öflum. Hægt er að rekast á
persónur á borð við Gandalf og alla
hina og skoða öll þau svæði sem
þekkjast úr sögunum. Í gegnum leik-
inn bæta svo leikmenn sig í hinum
ýmsu hæfileikum. Leikmenn geta
svo bæði ráfað um Miðgarð einir síns
lið eða slegist í för með öðrum leik-
mönnum og þannig myndað sitt eig-
ið föruneyti. Allir helstu óvinir íbúa
Miðgarðs mæta til leiks, hvort sem
það eru orkar, nazgúlar, balroggar
eða aðrar forynjur. Það eru tæplega
tíu ár frá því að fyrirtækið Midway
hóf að þróa leikinn og hefur þeim
tekist alveg ótrúlega vel upp. Aldrei
áður hefur einn stærsti og stórfeng-
legasti sagnaheimur ævintýrabók-
menntanna verið jafnnálægur að-
dáendum sínum og nú. Þúsundir
leikmanna munu spila leikinn og
allir á sama vettvangi. Hægt verður
að eiga í samskiptum við aðra leik-
menn. The Lord of the Rings Online
minnir margt á hinn ótrúlega vin-
sæla World of Warcraft en leikirnir
eiga margt sameiginlegt. Nóg rými
er þó fyrir báða leiki, en vinsæld-
ir Hringadróttinssögu munu eflaust
tryggja leiknum vinsældir. Leikurinn
er aðeins fáanlegur á PC í augnablik-
inu og ekki er vitað hvort hann verð-
ur gefinn út á önnur stýrikerfi.
dori@dv.is
God of War 2
Ævintýra/hasarleikur
PS2
tölvuleiKur
H H H H H
hinn mikilfenglegi heimur tölvuleikjanna!
God of War 2
stórkostlegur
tölvuleikur.
miðgarður
Heim í StoFu
Þekktar forynjur Nazgúll-
inn lætur sig ekki vanta.
Flott grafík miðgarður er massífur.
Harðir bardagar
Barist er við orka og
önnur kvikyndi.
Gegn illum öflum Saurons
Leikmenn þurfa að leggja sitt af
mörkum í baráttunni um miðgarð.