Læknablaðið : fylgirit - 01.09.1977, Page 3

Læknablaðið : fylgirit - 01.09.1977, Page 3
I ENDURSKOÐUN Á SIÐAREGLUM LÆKNA Á aðalfundi Læknafélags íslands að Laugar- vatni á sl. ári var samþykkt tillaga um, að lög og siðareglur félagsins skyldi endurskoða. Ákveðið var, að nefnd skyldi gera tillögur fyrir aðalfund þessa árs, en þær yrðu síðan til umræðu fram að aðalfundi næsta árs. í nefnd þessa skipaði stjórnin læknana Snorra Pál Snorrason, dósent, Þórodd Jónasson, héraðs- lækni og Pál Sigurðsson, ráðuneytisstjóra. Nefnd- in hefur skilað ýtarlegum tillögum til lagabreyt- inga, en því miður hefur ekki unnizt tími til að ganga frá endanlegum tillögum um Codex ethicus. Hins vegar hefur nefndin unnið með stjórn félags- ins að undirbúningi dagskrár læknaþings um siða- mál. Spyrja má, hvort nú sé sérstök þörf á umræðum um siðamál. Vissulega verður vart gagnrýni á hepðun Tækna, eins op oft áður. tel þó ekk'. að siðgæði stéttarinnar fari hnignandi eða sið- gæðisvitund einstakra lækna sé sljórri en áður var. Allur þorri lækna vinnur dyggilega í anda hefðbundinna siðalögmála stéttarinnar. Fræðsla og umræða um siðamál er ávallt tíma- bær og endurskoðun á Codex ethicus er þörf á fárra ára fresti. Hegðunar- og siðareglur hljóta að fylgja breyttum lífsháttum, lífsviðhorfum og starfsháttum. Kjarni þeirra breytist þó ekki. Lækni ber að láta sér "um alla hluti fram annt

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.