Læknablaðið : fylgirit - 01.09.1977, Qupperneq 19
13
Einnig ber lækni að hafa fyrirvara, er hann daanir horfur, svo sem
batahorfur, eftir tölfræðilegum líkum.
28. grein: Gerðadómur úrskurðar ágreiningsmál, sem kunna að rísa
milli lækna eða milli læknis og læknafélags og varða við Codex
Ethicus, verði þau ekki jöfnuð á annan hátt.
Sami gerðadómur úrskurðar einnig mál, sem til hans er skotið sam-
kvænt 19. gr. laga L.í. frá 26. júní 1965 og varða bein eða óbein
brot á nefndum lögum eða lögum aðildarfélaga L.I.
Örskurðum gerðadóms verður ekki áfrýjað, en vísað getur hann frá
sér þeim málum, sem hann telur sér óviðkomandi eða álítur, að
vísa beri til almennra dómstóla.
I gerðadómi sitja fimm menn. Einn kýs læknadeild Háskólans, og
er hann formaður dcmsins. Tvo kýs L.I. á hverjum aðalfundi, og
skal annar þeirra vera héraðslæknir. Þá kýs hvor málsaðili einn
lækni í dóminn, og skal hann vera félagi I L.í.
Varamenn skulu kosnir jafnmargir og af sömu aðiljum. Ef dómara
er rutt eða hann er forfallaður, tekur varamaður sæti í hans
stað í dóminum.
Nú lætur annar málsaðili eða báðir undir höfuð leggjast að nefna
I dóm, og skulu þá hinir föstu dcmendur tilnefna dómara fyrir
hans (eða þeirra) hönd.
Allar kærur og erindi til gerðadóns skal senda stjóm L.I.
Skylt er gerðadómi að tryggja svo sem framast er auðið óvilhalla
úrskurði. Fari málsaðili fram á, að einum hinna föstu dómenda
sé rutt, á hann rétt á að það sé gert. Skal þá sá varamaður, sem
dómurinn kveður til, taka hans sæti. Nú er formanni rutt, og
velur dónurinn sér þá formann.
Gerðadónur tryggir málsaðiljum jafnræði til að kynna sér allt,
sem varðar málavexti og málsmeðferð, og jafnræði til að láta uppi
álit sitt. Ekki mega dómendur afla sér gagna, sem máli skipta,
nem þeir láti báðum aðiljum í té vitneskju um þau, áður en dón-
ur gengur. Rétt hefur gerðadómur til að stefna báðum málsaðiljum
fyrir sig, enda geta þeir og krafist, að svo sé gert. Ferðir •
sínar kosta þeir sjálfir, svo og þeirra dómenda, sem þeir hafa
kosið sér, ef þeir búa utan Reykjavíkur.
Ifn málsmeðferð hlítir gerðadómur að öðru leyti þeim réttarfars-
reglum, sem í gildi eru, svo fremi málsaðiljar hafa ekki komið
sér saman um annað. Þó er honum heimilt að hafa hliðsjón af
sanngirni, ef úrskurður yrði bersýnilega vafasamur að öðrum kosti
Gerðadónur skal dæia í hverju máli, sem hann fær til meðferðar,
svo fljóft sem verða má og eigi síðar en innan missiris frá því
málsaðiljar kusu dómendur, nema málsaðiljar koni sér saman um
lengri frest.
Stjóm L.I. ber að fylgjast með framvindu máls og gera allt, sem
er í hennar valdi, til að koma í veg fyrir óeðlilegan drátt á
afgreiðslu þess.