Læknablaðið : fylgirit - 15.06.1996, Qupperneq 17

Læknablaðið : fylgirit - 15.06.1996, Qupperneq 17
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82/FYLGIRIT 32 17 Friðbjörg Sigurðardóttir og Þorsteinn Sigurðsson og synir þeirra: Finnur, Þórhallur, Jón Sigurður, ívar Sigurður, Þorsteinn Hróar. maga og var hann með blóðgjöf í báðum hand- leggjum. Skyndilega lenti vélin í niðurstreymi og féll, ég veit ekki hvað mikið, þetta var mjög ónotaleg tilfinning, mér sýndist sjúklingurinn lyft- ast frá sjúkrakörfunni sem snöggvast svo kom höggið og fallið var búið. Flugstjórinn leit bara glottandi til mín hækkaði svo vel flugið og tók stefnuna beina leið til Reykjavíkur. Björn Pálsson var snillingur að fljúga en hann flaug aldrei blindflug. Hann sótti eitt sinn ung- lingspilt til Djúpavogs fyrir mig, ég var þá farinn frá Djúpavogi en beðinn um að sækja þennan pilt. Hann hafði hrapað í klettum og var talsvert meiddur. Ég hringdi í Björn og bað hann að koma og hann kvaðst skyldi fara til Egilsstaða, taka mig með og fljúga svo til Djúpavogs. Ég hringdi til þeirra á Djúpavogi og bað þá að aka jeppa eftir flugbrautinni. Það höfðu verið rigningar undan- farið. Björn kom í Egilsstaði og tók mig með. Nokkur þokuslæðingur var og þegar við komum innundir Öxi, en það er fjallvegur sem liggur til Berufjarðar, hnykklaðist skyndilega þokan á móti okkur svo hratt að Björn þurfti að snar- beygja vélinni til þess að lendi ekki á kafi í þok- unni. Mér fannst vélin ætla að stefna í klettana og varð verulega skelkaður. Hún slapp og við reynd- um við Breiðdalsheiðina og þar sluppum við nið- ur í Breiðdalinn og svo með ströndinni til Djúpa- vogs. Þegar þangað kom leist okkur ekki á völl- inn, það voru alldjúp för eftir jeppann en Björn var ekki að hika, það var lágt í sjó og hann renndi sér niður í vík skammt frá vellinum. Ég bjó um piltinn til bráðabirgða og lét umbúðir á hann. Hann var brotinn um aðra öxlina og skrámaður eftir fallið. Svo tók Björn sig upp aftur þarna í víkinni með mig og piltinn og flaug til Egilsstaða, setti mig þar af og flaug suður til Reykjavíkur. Héraðslæknir á Fljótsdalshéraði Það voru þröng og léleg húsakynni sem við fórum í þegar við komum til Egilsstaða frá Djúpa- vogi. Við vorum komin með þrjú börn en þetta átti ekki að vera til langframa. Strax fyrsta daginn var hringt í mig og ég boðinn velkominn en þetta kall kom ekki úr mínu héraði, Norður-Egilsstaða- héraðinu. Ég hafði ekki gert mér grein fyrir því að Héraðsbúar bæði austan og norðan Lagarfljóts höfðu búið í einu héraði sem síðan hafði verið skipt upp í tvö vegna einhverrar óánægju íbúa norðan fljótsins. Almennt var allt Héraðið ein heild í huga fólksins. Þetta átti eftir að valda leiðindum og misskilningi, stundum. Ekki var heldur um samveru læknanna að ræða, þar sem áður var búið að kljúfa Héraðið í tvennt. Var

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.