Læknablaðið : fylgirit - 15.06.1996, Síða 21

Læknablaðið : fylgirit - 15.06.1996, Síða 21
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82/FYLGIRIT 32 21 Pobedinn á Ieið til Borgarfjarðar. Efri dalurinn fannst mér ætíð vera fallegri, þótt Jökla væri stundum meira hrikaleg en falleg. Þegar ég þurfti að fara í lækniserindum upp í Hrafnkelsdal eða á Efradal þá fór ég stundum upp á heiðina upp frá Brú og á þjóðveginn nærri Rangalóni. Kyrrðin á heiðinni verkaði róandi og stundum svæfandi á mann og það kom fyrir að ég lagði bílnum og sofnaði milli þúfna. Það er hægt að hlusta á kyrrðina! í báðum þessum sveitar- félögum hélst byggð betur en í öðrum hreppum á Héraði þar sem byggð hefur því miður mjög grisj- ast. Erfiðar vitjanir í víðlendu læknishéraði Einn morgunn snemma var hringt til mín frá Eiríksstöðum á Jökuldal. Hafði unglingsstúlka þar á bænum veikst kvöldið áður með innanverkj- um og var komin með talsvert háan hita. Ég fór fljótlega að tygja mig til ferðar en áður en ég komst af stað barst kall frá bæ í Jökulsárhlíðinni, þar á bæ var unglingspiltur lasinn með innantökur en hitalaus. Mér fannst kallið frá Eiríksstöðum meira aðkallandi og ók sem leið lá upp í Jökuldal- inn. Þoka var á og rigningarúði, ekki var flugfært og vonlaust að treysta á flug ef senda þyrfti stúlk- una á sjúkrahús. Þegar í Eiríksstaði kom og ég hafði skoðað stúlkuna var ég þess fullviss að um botnlangabólgu væri að ræða, ef ekki sprunginn botnlanga. Ég hringdi strax á Fjórðungssjúkra- húsið á Akureyri og var skólabróðir minn Bjarni Rafnar fyrir svörum. Bað ég hann ásjár með stúlkuna og jafnframt að senda sjúkrabíl á móti mér austur. Ég var með sjúkrabörur í skottinu eins og vanalega en þær pössuðu alveg í Póbed- ann, en Póbedinn var rússnesk bifreiðategund og var einnig pláss fyrir fylgdarmann aftur í. Hleypti ég talsverðu lofti úr dekkjunum til að gera bílinn mýkri á veginum. Var stúlkan borin út í bíl og búið vel um hana. Ferðin norður gekk fremur vel þótt vegurinn væri ekki upp á það besta. Mættust bflarnir á hlaðinu á Grímsstöðum á Fjöllum. Til baka var haldið og komið við í Hlíðinni. Þar var unglingspiltur með óverulega verki í kviði og nær hitalaus. Þegar heim kom lá fyrir beiðni um að koma upp í Fljótsdal, hafði kona prestsins dottið illa og fengið frekar ljótt sár á annað hnéð sem þurfti að hreinsa vel áður en saumað var. Bjarni Rafnar talaði við mig daginn eftir og sagði þetta slæma sendingu frá mér, sprunginn botnlangi eins og mig grunaði. Stúlkan átti lengi í þessu og þurfti ég að taka hana inn á sjúkraskýlið er hún kom austur og greri hún seint en um síðir. Annarri ferð upp á Jökuldal frá 1955 eða 1956 ætla ég að segja frá. Það er ekki fyrir það að þessi ferð hafi verið mikið öðruvísi en margar aðrar en í þessari ferð var ég sjálfur veikur. Ég hafði tekið einhverja víruspest sem var að stinga sér niður á Héraði og hafði hitaslæðing með þessu og mikla vöðvaverki og jafnframt bólgu. Ég gat til dæmis varla skrifað læsilega skrift. Það kvað svo rammt að ég talaði við landlækni, Vilmund Jónsson. Svörin hjá honum voru aðeins; „Ég hefi enga lœkna til afleysingar, það hafa margir lœknar gjarnan fengið svona pest!“ Þar með var það af- greitt. Um þetta leyti var erfitt umferðar, snjór og vegir tepptir víða á Héraði. Til var einn snjóbíll. Hann var kanadískur af Bomardier gerð, þungur í vöfum og slæmur á brekkuna og ennþá erfiðari í hliðhalla, en þetta var eini snjóbfllinn. Nú kom kall ofan frá Aðalbóli á Jökuldal, telpa um það bil sjö ára gömul hafði stokkið niður af háum vegg og handleggsbrotnað. Var þá slegið á það ráð að fá snjóbflinn. Bergur Ólafsson frændi minn ók bfln- um. Var þegar afráðið að stytta leiðina með því að fara heiðina og fara uppfrá Eyrarlandi í Fljótsdal og fá dráttarvél til að draga snjóbílinn upp. Þegar norður kom á heiðina var skollin á hríðarþoka svo dimm að lítið sem ekkert sást. Við höfðum átta- vita svo að við komumst rétta leið á fjallsbrúnina á móti Aðalbóli. Skíði höfðum við tekið með, bratt er þarna niður og svo fór að ég datt í miðri brekku

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.