Kjarninn - 29.05.2014, Blaðsíða 107
03/03 Kjaftæði
Þetta er quid pro quo. Það gerir enginn neitt fyrir neinn,
sem gerir ekki neitt fyrir neinn.
Í raun er það ágætis regla að fylgjast með því hverjir
augýsa mest og sneiða svo framhjá þeim framboðum. Því
sem kjósandi hefur maður ekki hugmynd um hvers konar
farangur þau taka með sér inn í Ráðhúsið. Að minnsta kosti
ekki fyrr en eftir kosningar.
Hægt að kaupa atkvæði á ýmsa vegu
Það eru margar leiðir til að kaupa atkvæði aðrar en að lofa
fólki niðurfellingu á skuldum sínum. Vinstri græn eru
eiginlega á sömu Framsóknarlínu um einhvern popúlískan
sósíalisma þegar þau lofa gjaldfrjálsum leikskóla. Það þarf
að efla innviði leikskóla í Reykjavík, mögulega þarf einka-
framtakið að eiga þar skrens. Og hvaða rökvilla er að líkja
þessu við grunnskólann? Eru ekki allir nokkuð sammála að
grunnskólastigið mætti alveg við meiriháttar uppfærslu?
Þetta er þessi undarlega lenska vinstri manna, að heimta að
allir hafi það jafn skítt, í stað þess að allir hafi það jafn gott.
En versta leiðin á atkvæðamarkaðnum er sú að höfða til
lægsta samnefnarans. Að daðra við innflytjendahatur og
heimóttarskap og láta eins og frjálslynt samfélag á norður-
slóðum rúmi ekki hvaða trúarbrögð sem er. Kannski er ágætt
að oddviti Framsóknar hafi viðrað þessar hugmyndir, til þess
að undirstrika hversu lítið erindi hún á í borgarstjórn og til að
draga allar þessar rottur fram úr fylgsnum sínum. Núna vitum
við að minnsa kosti hvar við eigum að leggja gildrurnar og því
miður gæti forsætisráðuneytið verið á listanum.
Skemmtilegra og betra samfélag
Það má vel vera að það sé gamaldags og
asnalegt að gefa trúfélögum lóðir. Þeim
lögum má þá bara breyta á Alþingi. En ég
held að moska múslima, hof ásatrúarmanna,
kirkja rússneska rétttrúnaðarins og búddahöllin verði til
þess að draga úr fordómum, svala forvitni og gera samfélagið
fjölbreyttara, litríkara og skemmtilegra.
„Guð blessi þetta
gengi og hálsakots-
skeggin þeirra.“