Kjarninn - 29.05.2014, Blaðsíða 69
03/04 álit
Pewex-verslun (ríkisrekin verslun sem tók við erlendum
gjaldeyri) og keypt þér smá Coca-Cola.
Neysluhyggjan sem fylgir vestrænum lífsstíl er oft gagn-
rýnd, og ekki að ástæðulausu. Og Pólverjar sem fá einungis
útborguð 60 prósent af þeim launum sem greidd eru í Vestur-
Evrópu eiga rétt á því að vera óánægðir. En þessar neikvæðu
hliðar mega ekki skyggja á allar þær fjölmörgu jákvæðu
hliðar sem umbreytingin hefur haft í för með sér. Pólverjar
lifa mun þægilegra lífi og hafa efni á mun fleiri tækifærum
nú en nokkru sinni áður í sögu sinni.
Þessar breytingar eru orðnar svo hvers-
dagslegir fyrir okkur, svo inngrónar í
daglegt líf, að það gleymist stundum hversu
nýtilkomnar þær eru. Í ár fagna Pólverjar
þreföldu afmæli. 25 ár eru liðin frá pólitískri
og efnahagslegri umpólun, 15 ár frá því
að Pólland gekk í NATO og tíu ár frá því
að landið gekk í Evrópusambandið. Þessir
áfangar minna okkur á hversu þakklát við megum vera fyrir
þær breytingar sem átt hafa sér stað frá því að umpólunin
hófst.
Það var nefnilega ekkert öruggt að svona myndi spilast
úr aðstæðum Póllands. Nágranni landsins í austri, Úkraína,
er enn að berjast við að ná þeim pólitíska og efnahagslega
stöðugleika sem Pólverjar eru fyrir margt löngu búnir að ná.
Fyrir 25 árum voru þessi tvö lönd á nákvæmlega sama stað.
Í stað þess að fylgja vegferð foringja með einræðistilburði
og inngróinnar spillingar sneri Pólland sér í hina áttina.
Landið valdi markaðsumbætur, frjálsa verslun og hallaði
sér að vestrænum stjórnmála- og öryggisstofnunum. Skiptu
þær ákvarðanir máli við að gera líf Pólverja betra? Sönnunin
liggur í búðingnum (e. the proof is in the pudding).
Ég kláraði kaffið mitt og gekk í rólegheitunum að salnum
þar sem danstími dóttur minnar fór fram. Dyrnar opnuðust
og krakkarnir þyrptust út. Dóttir mín hljóp upp að mér, greip
í hendina á mér og dró mig til hliðar.
„Sjáðu pabbi, ég get gert pírúettu! Það er þegar þú snýst
„Það sló mig hvað
Pólland hefur um-
breyst mikið á þeim
25 árum sem liðin
eru frá árinu 1989.“