Kjarninn - 29.05.2014, Blaðsíða 16
04/12 Viðtal
Höfnun sem hafði skaðleg áhrif
Í Birgi hefur blundað rithöfundur frá unga aldri. Alkunna er
að hann samdi flesta texta Maus, sem margir hverjir vöktu
athygli, en færri vita kannski að Birgir hóf sem barn að
semja sögur, sem hann á margar hverjar enn ofan í skúffum
heima hjá sér.
„Ég reyndi einu sinni að fá bók útgefna eftir mig en var
hafnað. Þegar höfnunin kom þá kom hún á þannig tíma að
það var mjög erfitt að kyngja henni, þannig að ég fór eiginlega
bara inn í skápinn sem höfundur og trúði því ekkert lengur að
þetta væri eitthvað sem ég gæti gert eða ætti eftir að gera.“
Í kjölfar höfnunarinnar kveðst Birgir hafa efast um
hæfileika sína til að gerast höfundur.
Hann efaðist um að hann gæti nokkurn
tímann skrifað eitthvað sem þætti nógu
gott til útgáfu.
„Ég gekk bara í gegnum þetta týpíska
sem allir ganga í gegnum sem fá höfnun
á einhverju stigi í lífinu. Mig langar enn
að skrifa bók. Maður veit samt auðvitað
aldrei hvað virkar hjá manni. Kannski hentar mér betur að
skrifa handrit til að segja sögur. Ég lít á velgengni Vonar-
strætis sem styrkingu við þá hugmynd að skilja gagnrýnand-
ann eftir heima þegar þú ert að flæða, þegar þú ert að skapa.
Þegar gagnrýnandinn er með, og þér líður á meðan þú ert
að skrifa eins og að það verði aldrei nógu gott, þá blettir þú
listaverkið.“
Hugmynd að samstarfi sem þruma úr heiðskíru lofti
Baldvin Z. á að baki kvikmyndina Óróa frá árinu 2010, sem
hann leikstýrði og skrifaði og hlaut góðar viðtökur. Auk
þess kom hann að handritsgerð og/eða framleiðslu sjón-
varpsþáttanna Hæ Gosi og fræðslumyndarinnar Fáðu já. Þá
leikstýrði hann og skrifaði stuttmyndina Hótel Jörð og kom
að gerð Áramótaskaupsins 2011. Birgir Örn segir samstarf
þeirra félaga við gerð Vonarstrætis hafa komið sem þrumu
úr heiðskíru lofti.
„Þegar gagnrýnandinn er
með, og þér líður á meðan
þú ert að skrifa eins og það
verði aldrei nógu gott, þá
blettir þú listaverkið.“