Boðberi K.Þ. - 01.06.1992, Blaðsíða 4

Boðberi K.Þ. - 01.06.1992, Blaðsíða 4
stöðu. Sé um skuld að ræða í almennum við- skiptareikningi, ber hún aðeins vexti, en ekki annan kostnað svo sem lántökugjöld, stimpilgjöld o.fl. V. Miklar áhyggjur hafa lagst á þjóðina í seinni tíð og gætir þeirra mjög í allri umræðu fjölmiðla. Þessu valda margs konar ótíðindi, m.a. óvissa um samninga okkar við aðrar þjóðir varðandi EES og GATT, ásamt fyrir- sjáanlegum og ófyrirséðum samdrætti í land- búnaði. Síðar bættist við spá um minnkandi ferðamannastraum og loks um enn frekari samdrátt í þorskveiðum. Raunar ber fræði- mönnum engan veginn saman í áliti sínu eða túlkun á þessum tíðindum, en engu að síður gætir vaxandi bölsýni og atvinnuleysi með þjóðinni er orðið meira en flestir muna. Það er talsverð nýlunda fyrir okkur íslend- inga að fást við vanda af þessu tagi. Við höfum tamið okkur eins konar veiðimann- ahugsun og reiknum gjarnan með góðum afla, hækkandi verði og miklum tekjum. Við erum því fremur óvanir að takast á við sam- drátt og kreppuástand og höfum ofurlitla til- hneigingu til að láta hugfallast. Þetta megum við þó alls ekki gera. Það má hvorki láta aðsteðjandi vanda, fjölmiðla né stjórnmálamenn draga allan kjark og sjálfs- bjargarviðleitni úr fólki, þótt vissulega séu margar blikur á lofti. Við slíkar aðstæður á þjóðin að endur- meta stöðu sína, leita nýrra leiða og atvinnu- tækifæra og leggja aukna áherslu á menntun, jafnframt því að gæta ítrasta hófs í fjár- málum og eyðslu. Þannig er hægt að nýta tímabundið andstreymi til nokkurs ávinn- ings og það ber okkur að reyna með öllu móti. Með félagskveðju Hreiðar Karlsson BÆNDUR í sumar bjóðum við tvœr gerðir af baggaplasti í tveimur verðflokkum. Eins og undanfarin ár bjóðum við Teno plastið frá Svíþjóð á sama verði og ífyrra. Einnig bjóðum við enskt plast - Silaflex - sem er á mun lœgra verði. $MiHAN 4

x

Boðberi K.Þ.

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Boðberi K.Þ.
https://timarit.is/publication/993

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.