Boðberi K.Þ. - 01.06.1992, Blaðsíða 6

Boðberi K.Þ. - 01.06.1992, Blaðsíða 6
höfðu flutt skýrslur sínar hófst almenn umræða um málefni kaupfélagsins. Til máls tóku nokkrir fundarmenn, en engin tillaga kom fram, sem afstöðu þurfti að taka til. Að þeirri umræðu lokinni voru bornar fram og samþykktar tillögur um breytingar á samþykktum Kaupfélags Pingeyinga. Egill Olgeirsson hafði orð fyrir nefnd þeirri, sem fengið hafði það hlut- verk að móta tillögurnar. Með honum störfuðu að tillögugerðinni Þorgeir B. Hlöðversson, Böðvar Jónsson, Hreiðar Karlsson, Sigurjón Jóhannes- son og Indriði Ketilsson. Með breytingunum hafa samþykktir K.Þ. verið samræmdar nýsettum lögum um samvinnufélög. Úthlutað var úr Menningarsjóði K.Þ. kr. 110.000,- til Skógræktarfélags Suður-Þingeyinga og kr. 110.000,- til Húsgulls á Húsavík. Hvoru þessarra félaga voru því veittar eitt þúsund krónur fyrir hvert starfsár Kaupfélags Þingey- inga. Ragnar Jóhann Jónsson flutti mjög athyglisvert erindi um breytta stöðu smásöluverslunarinnar. Það efni var sérmál fundarins og allnokkuð rætt. Að beiðni úndirritaðs hefur Ragnar tekið erindið saman og er það birt í þeim búnaði í þessu blaði. Brynjar Sigtryggsson gaf ekki kost á sér til endurkjörs í stjórn K.Þ. f hans stað var kosinn frændi hans, Gunnar Páll Jóhannesson, Húsavík. Egill Olgeirsson og Helga Valborg Pétursdóttir voru endukjörin til stjórnarsetu. í varastjórn voru kjörnir Kristján Kárason, Hlöðver Pétur Hlöðversson og Bárður Guð- mundsson, dýralæknir. Stjórn Kaupfélags Þingeyinga er nú þannig skipuð: Egill Olgeirsson, stjórnarformaður, Ari Teitsson, varaformaður, Helga Valborg Pétursdóttir, rit- ari, Böðvar Jónsson, Halldóra Jónsdóttir, Skarp- héðinn Sigurðsson, Gunnar Páll Jóhannesson. Varamenn í stjórn eru: Kristján Kárason, Hlöðver Pétur Hlöðversson, Bárður Guðmunds- son. Fulltrúi starfsmanna í stjórn K.Þ. er Þorkell Björnsson. Hér lýkur að segja frá aðalfundi K.Þ. 1992. Þormóður Jónsson Þú átt ESSO alltaf að - Einnig um helgar GótJar vörur, goft verð og greiðslukortaþjónusta á bensinstöðvum ESSO ESSO Olíufélagifl hf Grill, gasgrill og grillvörur, ýmis garðáhöld, útileíkföng og dót fyrir börnin, áhöld fyrir gorðinn, veiðidót, útilegudót og að sjálfsögðu allt mögulegt fyrir bílinn. oo0 BTU H-brennan, ryðtrlr - dn 6

x

Boðberi K.Þ.

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Boðberi K.Þ.
https://timarit.is/publication/993

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.