Innsýn - 01.04.1984, Qupperneq 6

Innsýn - 01.04.1984, Qupperneq 6
6 verður gagnslaust. Foreldr- ar þeirra eru farandsvinnu- fólk. Þegar vinna býðst annars staðar í dalnum flytja þau þangað. Börnin gleyma öllu sem þau læra um Oesú. í hverri viku þurfti ég að stappa í mig stálinu vegna hvíldardagsskóladeild- arinnar. Ég var sífellt að hugsa: Hvaða gagn er að þessu? Ég áleit að börnin hlustuðu ekki. Þau pískr- uðu, gáfu olnbogaskot, létu ískra í stólunum og slógu hvert annáð. Sum þeirra blótuðu. Það urðu alltaf nemenda- skipti í hverri viku, en nokkur komu að staðaldri. Bræðurnir sjö og indversku systurnar komu alltaf. Tvíburarnir skrópuðu oft, en systir þeirra kom. Mike var ekki sá yngsti bræðranna sjö, heldur ekki sá stærsti, en hann var fyrirferðamestur, háværast- ur, kjarkmestur, horaðastur og freknóttastur. Tíu ára gamall var hann uppnefndur sjöbræðrakóngurinn. Eitt kvöldið sá ég Mike ýta og hrinda bræðrum sínum í sætin. Hann slengdi þeim yngsta niður á stól sinn þegar hann var að hossa sér. Hann hvessti augun á þann elsta fyrir að vera með hvíslingar. Eftir bænina sagði Hr. Brown: "Ef ykkur reynist erfitt að líkjast 3esú eða að reyna að segja öðrum frá kærleik Oesú, ættuð þið að lofa okkur að heyra um það." Mike rétti upp hendina eins og örskot. Hann stóð upp og sagði: "Það er afskaplega auðvelt að hrifsa súkkulaðibita í búðinni hjá Grady. Gamli maðurinn sér það aldrei. Hann er alltaf með nefið niður í blaðinu. Eins og um daginn, ég náði í brauð og fór framhjá sælgætishillunni. Ég stans- aði og stakk súkkulaðiplötu undir skyrtuna. Grady leit ekki upp. Ég fór hinu megin við sælgætishilluna og eitthvað segir: "Þjófur! Þú ert þjófur og þú verður ekki á glerhafinu, aldrei. Þú verður bara maulandi á þessu súkkulaði og vinkar til hr. Brown og allra hinna þegar þau svífa upp." Ég brosti. Hvílíkur prakkari þó lítill sé. Hann hélt áfram: "Ég laumaði súkkulaðinu aftur upp á sinn stað og borgaði fyrir brauðið. Skrýtið, ég hafði aldrei séð Grady brosa svona fallega fyrr." Ég fylgdist með Mike það sem eftir var kvöldsins. Það var einhver lífsljómi bak við þessar freknur sem ekki var hægt annað en taka eftir. Ég hugsaði glöð um

x

Innsýn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Innsýn
https://timarit.is/publication/992

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.