Innsýn - 01.04.1984, Qupperneq 12

Innsýn - 01.04.1984, Qupperneq 12
U31SI93U 12 Benna upp á axlirnar. Og þarna beint fyrir framan Benna voru lítil svört augu, sem störðu á hann. "Farðu nær!" Benni togaði í hár föður síns. Hann lét andlitið fast upp að vírnetinu. Lítill hvítur hvolpur með svörtum blettum í kringum bæði augun virtist brosa til hans. Benni stakk fingri inn á milli vírgirðingarinnar, og hvolpurinn sleikti hann með mjúkri tungunni. Benni var hræddur við að tala. Ef ti'l vill segði hann eitthvað rangt, en hann varð að fá hvolpinn sinn. "Sérðu þennan litla gamla hvolp?" spurði hann. Pab'bi hló. "Ég sé þennan litla unga hvolp." Mamma kom við búrið með annarri hendinni, "hann er svo sætur." Benni reyndi að koma hendinni í gegnum girðing- una. Nú lét pabbi hann niður og hann gat ekki séð litla hvolpinn lengur. Hann leit upp til pabba síns. "Langar þig í þennan?" spurði pabbi. "Ó, já!" Benni var alveg viss um það. "Allt í lagi. Getum við fengið þennan?" spurði pabbi eftirlitsmanninn. "Þennan litla með hvíta feldinn og svörtu blettina í kringum augun", bætti Benni við. Maðurinn brosti. Hann teygði sig upp í búrið og tók hvolpinn úr búrinu. Hann lét hann í útrétta arma Benna. Æ, hve hann er mjúkur og hlýr og loðinn. Benni gróf andlitið í feld hvolpsins. Hann kitlaði dálítið í hægra eyrað. Þegar þau voru komin í bílinn aftur, þrýsti Benni hvolpinum fast að sér. Hann leit á pabba og mömmu þar sem þau sátu í framsætinu. Og þá datt honum nokkuð í hug! "Ég hef ættleitt hvolp- inn, er það ekki?" Mamma og pabbi brostu til hans. "3ú", sagði mamma. "Og ég er viss um að þú munt elska hann mjög mikið." Ekki bara að Benni elskaði hvolpinn, heldur elskaði hvolpurinn Benna líka. Þau óku öll þangað sem Benni átti heima, þar sem hann átti mömmu og pabba og stundum jafnvel afa líka. Og nú átti hvolpurinn þau líka. __________________________• Ólrikka Sveinsdóttir þýddi.

x

Innsýn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Innsýn
https://timarit.is/publication/992

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.