Innsýn - 01.04.1984, Side 16
BLS. 3
HVAÐ GERI ÉG NÚ?
Stúlka stendur andspænis
tveim óþægilegum valkostum:
fóstureyðingu, eða einstæð
móðir. Hvorugt er áform
Guðs.
Nemendasjálfboðaliði fer
til frumskóga Afríku til að
vera þar í eitt ár en kemst
að því að hann getur ekki
þolað loftslagið/þjóðfélag-
ið/vinnuna og vill komast
heim eftir sex vikur.
Nýútskrifaður háskólanemi
fær sér vinnu, kaupir sér
dýran bíl og kemst að því að
hann ræður ekki við afborg-
anirnar.
Þegar þú hefur tekið
ranga ákvörðun, hvað gerir
*þú þá næst?
ÞREP NÚLL: KÚVENDING
Að sjálfsögðu er best að
byrja áður en komið er að
fyrsta þrepinu á leið upp
bataveginn, með núllþrepi:
Ef það er ekki þegar of
seint skaltu kúvenda alveg
ákvörðun þinni og gjörðum.
Ekki bíða, ekki hika.
Leiðréttu! Ef þú gerir þér
grein fyrir því að samband
ykkar gengur ekki eða er
óviturlegt, hættu þá við. Ef
þú keyptir eitthvað sem þú
ræður ekki við, skilaðu því
þá, seldu það eða losnaðu
við það einhvern veginn
-jafnvel þó þú tapir á því.
Leiðréttu mistök þín,
hvort sem þér líkar niður-
læging vel eða illa. dátaðu
að ákvörðun þín var vanhugs-
uð eða að loforð var gefið í
kæruleysi, og byrjaðu upp á
nýtt. Það gerir hlutina
erfiðari en þeir eru að
draga það eða bæta öðrum
mistökum við.
Það er eitt stórt EN.
Stundum er það of seint að
snúa við eða að endurbæta.
Vertu samt ábyrg(ur). Stattu
við skuldbindingar þínar.
Ekki skilja við maka þinn né
taka fyrsta flug heim frá
kristniboðslandinu. Ekki
hlaupa burt, líttu heldur á
jákvæðu hliðarnar og
þraukaðu.
FYRSTA ÞREP; SJÁLFSVIÐUR-
KENNING
Þegar þú hefur gert
mistök, viðurkenndu það
hljóðlega og rólega. Það er