Innsýn - 01.04.1984, Blaðsíða 18
18
ÞRIÐ3A ÞREP: EKKI OFGERA
Eftir að þú hefur
viðurkennt mistök þín og
tekið afleiðingunum skalt þú
reyna að bregðast við á
rökréttan hátt. Ekki vera
eins og fótboltakappinn sem
brenndi af víti og sagði
svo: "Ég get ekkert; ég fæ
aldrei að leika með liðinu
aftur." Eða gáfnaljósið sem
fær eitt "B" í eðlisfræði og
hugsar "Ég er algjör tossi.
Búin að eyðileggja einkunn-
arspjaldið."
Fyrir utanaðkomandi er
auðvelt að sjá hversu
óskynsamleg viðbrögð þetta
eru, ekki satt? En við
hugsum oft svona - og orð
okkar ýkja vandamálið.
Dauði, slys og veikindi,
geta verið hræðileg eða
jafnvel hörmuleg, en fátt
annað er svo í rauninni.
í stað þess að fórna
höndum væri betra að líta á
málið raunsæjum augum og búa
til mynd í huganum eins og
ef um myndavél væri að ræða.
Hér er lítið dæmi um
hvernig hægt er að ýkja
vandamál: Það er föstudags-
síðdegi og þú þarft að ganga
frá einhverju máli fyrir
hvíldardaginn. Þú rýkur
niður í bæ og vonar heitt að
þú fáir bílastæði alveg við
innganginn. Rétt þegar þú
ert að ná í hið fullkomna
bílastæði grípur einhver
annar það. "Þessi hallæris
..." segir þú við sjálfan
þig "tók bílastæðið mitt."
En myndi myndavél líta á
þetta eins? Nei, myndband
myndi sýna tvo bíla á leið í
stæði A (ekki "þitt stæði"),
og annar komst þangað á
undan hinum.
Kringumstæður koma okkur
ekki í uppnám; við komum
okkur sjálf í uppnám vegna
þess hvernig við hugsum um
kringumstæðurnar . Þess
vegna er nauðsynlegt að
"sigta" hugsanir okkar og
útiloka setningar eins og
"það eru allir að tala um
mig", "ég næ mér aldrei
aftur" , "nú er allt ónýtt".
í staðinn skallt þú hugsa
skynsamlega: "Ég er ekki
fullkominn, aðeins mann-
legur", "ég er nú ekki
algjör tossi, mér mistekst
sumt en annað gengur vel",
"sumir eru e.t.v. að tala um
mig, en ekki allir, og þeir
sem tala um mig munu
sjálfsagt hafa eitthvað
annað að tala um á morgun" ,
"ég þarf ekki að vera svona,
með Guðs hjálp get ég
breyst."
Ef þú (a) skoðar stað-
reyndir og atburði í
rökréttu ljósi og (b) hugsar
betur og skýrar, mun
árangurinn verða (c)
breyttar tilfinningar.
Mistök þín verða ekki eins
yfirþyrmandi, og þú munt