Búskapur hins opinbera 1945-1980 - 01.01.1983, Blaðsíða 7
5
1. Inngangur.
f skýrslu þessari er að finna ýmsar upplýsingar um búskap hins opinbera, en með
því er átt við búskap ríkisins, sveitarfélaganna og almannatryggingakerfisins.
Reikningar eru settir fram fyrir hvern þessara þriggja aðila fyrir sig og jafnframt
fyrir þá alla sameiginlega.
Starfsemi opinberra fyrirtækja er ekki tekin með í skýrslu þessari enda er
starfsemi þeirra gerð upp með hverri atvinnugrein fyrir sig í framleiðsluuppgjöri
Pjóðhagsstofnunar. Hreinar tekjur eða tap nokkurra ríkisfyrirtækja fram til
ársins 1968 og helstu bæjarfyrirtækja til ársins 1975 hefur þó verið tekið inn í
þessa reikninga. Eftir það eru aðeins tilfærðar greiðslur, sem fyrirtækin inna af
hendi til hins opinbera eða fá frá því.
Reikningarnir eru fyrir árin 1945—1980. Áður hefur verið birt í ritinu „Úr
þjóðarbúskapnum“ útgefnu af Framkvæmdabanka íslands, í desember 1960,
búskapur ríkisins og sveitarfélaganna fyrir árin 1945—1954, búskapur ríkisins
fyrir árin 1955—1960, útgefið í júní 1962, og almannatryggingakerfið fyrir árin
1945—1959, útgefið í febrúar 1964. Reikningar fyrir allt tímabilið eru settir fram
hér þannig að upplýsingar um opinbera búskapinn sé að finna á einum stað og
janframt hefur framsetning á reikningunum verið samræmd.
Reikningarnir eru tvískiptir. Annars vegar er tekju- og útgjaldareikningur
sem sýnir tekjur og gjöld á hverju ári og hins vegar eignabreytingareikningur
eða fjármagnsstreymi eins og það heitir í nýja forminu en á eignabreytinga-
reikning færist m.a. fjármunamyndun og fjármagnstilfærslur ársins. Efnahags-
reikningur er ekki færður fyrir opinbera búskapinn. Gerð er nánari grein fyrir
reikningagerð þessari í köflum 3—5 varðandi eldra formið en í kafla 6 varðandi
það nýja. Framsetningu samkvæmt nýja forminu er að finna í töflum 26 til 32.
Allar fjárhæðir í skýrslunni eru í gömlum krónum og á verðlagi hvers árs, að
því undanskildu að í kaflanum um þróun útgjalda eru fjárhæðir fyrri ára
jafnframt settar fram á verðlagi ársins 1980. Þetta á jafnframt við um töflu 25,
„Opinber útgjöld og verg þjóðarframleiðsla" 1945—1980.
2. Búskapur hins opinbera og tengsl hans við almenna þjóðhagsreikningagerð.
Reikningakerfi opinbera búskaparins, eins og það birtist í þessari skýrslu, er
hluti af stærra reikningakerfi fyrir þjóðarbúskapinn í heild sem unnið er
samkvæmt þjóðhagsreikningakerfi Sameinuðu þjóðanna (1). Því kerfi verður
ekki Iýst hér, heldur látið nægja að vísa í skýrslu þjóðhagsstofnunar, Fram-
leiðsluuppgjör þjóðhagsreikninga 1973-1978, sem nýlega er komin út. Hér
verður hins vegar fjallað um tengsl þeirrar skýrslugerðar, sem hér birtist, við
þj óðhagsreikningagerðina.
(1) United Nations: A System of National Accounts, Studies in Methods; Series F no. 2 Rev. 3; New
York 1968.