Búskapur hins opinbera 1945-1980 - 01.01.1983, Page 19

Búskapur hins opinbera 1945-1980 - 01.01.1983, Page 19
17 eins og fram kemur í töflum 26-32. Breytingin 1980 er m.a. gerð til þess að samræma reikningagerðina við þjóðhagsreikningak’erfi Sameinuðu þjóðanna SNA (1). Jafnhliða þessari formbreytingu hefur skilgreiningu ýmissa hugtaka eins og samneyslu, tilfærslna og framleiðslustyrkja verið breytt til samræmis við SNA. Helstu breytingar sem þetta hefur í för með sér eru, að nú færast heilbrigðismálaútgjöld undir samneyslu en færðust áður sem tilfærslur. Rekstur Flugmálastjórnar færist nú með samneyslu en gjöld Flugmálastjórnar umfram tekjur hafði áður verið farið með sem styrk. Pá færast rannsóknastofnanir o.fl. v/atvinnuveganna undir samneyslu en útgjöld vegna slíkra stofnana hafði verið farið með sem styrki. Þá eru einnig nokkrar breytingar á því hvað færist á útgjaldareikning og hvað færist á eignabreytingar eða fjármagnsstreymi. Athygli skal vakin á því, að sú breyting á skilgreiningum hugtaka, sem hér er tekin upp fyrir árið 1980, nær enn sem komið er ekki til þeirra heildaryfirlita sem Þjóðhagsstofnun birtir um þjóðarframleiðsluna og skiptingu hennar í samneyslu, einkaneyslu o.fl. Hins vegar er áformað að taka þessar nýju skilgreiningar einnig upp þar. Reikningar fyrir ríkið, sveitarfélögin, almannatryggingakerfið og hið opin- bera í heild eru nú settir fram á einu yfirliti, þá fylgir einnig tegunda- og viðfangsefnasundurliðun. Skal nú nánar vikið að þessari reikningagerð og þá litið á hið opinbera sem eina heild. 6.1 Tekjur. Helstu breytingar í meðferð skatta frá eldra forminu eru þær að lóðarleigur, sem færðust með óbeinum sköttum, eru nú færðar með eignatekjum, erfðafjár- skattur er færður sem fjármagnstilfærsla í stað þess að færast með beinum sköttum, framlag frá happdrætti Háskóla íslands, sem fært var með óbeinum sköttum, er nú einnig fært sem fjármagnstilfærsla. Sektir og framlög til almannatrygginga færðust áður með beinum sköttum en eru nú flokkuð sérstaklega. Með framlögum til almannatrygginga er átt við slysa-, lífeyris- og atvinnuleysistryggingasjóðsgjöld. 6.2 Útgjöld. Eins og áður er getið fylgir nú tegunda- og viðfangsefnasundurliðun, sbr. töflu 27, og skal nú gerð frekari grein fyrir því helsta sem færist undir einstaka liði. í lok þessarar greinargerðar eru framleiðslustyrkir og fjármagnstilfærslur sundur- liðaðar en ekki skýrðar frekar. Opinber stjórnsýsla. Hér færast m. a. útgjöld vegna æðstu stjórnar ríkisins, utanríkismála og efnahags- og fjármála. Aðalskrifstofur ráðuneytanna færast hver með sínum málaflokki. (1) Auk þeirra heimilda er hér einnig byggt á nýrri handbók Sameinuöu þjóðanna; United Nations: Classification of the Functions of Government New York 1980. 2

x

Búskapur hins opinbera 1945-1980

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Búskapur hins opinbera 1945-1980
https://timarit.is/publication/996

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.