Þjóðhagsreikningar 1973-1984 - 01.07.1985, Blaðsíða 21
-19-
áður hafa birst, um einkaneyslu þessara ára hafa að mestu
verið reistar á áætlunum. Undantekning var þó árið 1973,
en uppgjöri þess árs hafði áður verið lokið og niðurstöður
birtar.
Uppgjöri einkaneyslunnar i' heild sinni fylgir nú
tegundaskipting einkaneyslunnar, það er skipting i' matvöru,
drykkjarvöru o.s.frv. fyrir sama ti'mabil, og eru niður-
stöður birtar i' töflum 2.1-2.4.
Uppgjör ársins 1980 er gert með tvennum hætti, eins og
áður hefur komið fram, það er bæði i' samræmi við eldra
uppgjörskerfið og hið nýja. Mismunurinn, sem þarna kemur
fram, nemur 800 m.kr. og má rekja þannig:
1980
Einkaneysla skv. eldra
uppgjörskerfi
Frá dragast: Útgjöld hins
opinbera vegna
heilbrigðismála
m.kr.
9.638
800
Einkaneysla samkvæmt
hinu nýja kerfi 8.858
Framreikningur einkaneyslunnar frá 1980 til áranna
1981-1984, eins og hann birtist i' þessari skýrslu, er
reistur á einkaneyslutölum samkvæmt hinu nýja kerfi.
Framvegis verða áætlanir Þjóðhagsstofnunar um einkaneyslu
byggðar á nýja uppgjörskerfinu.
3.3 Samneysla
Til samneyslu telst sá hluti af framleiðsluvirði hins
opinbera, sem það framleiðir til eigin nota á viðkomandi
rekstrarti'mabili. Eigin not i' þessu sambandi telst
heildarframleiðsluvirðið að frádreginni sölu á vöru og
þjónustu. Heildarframleiðsluvirðið ákvarðast ekki á
markaðnum, eins og um markaðsvöru væri að ræða, heldur er