Þjóðhagsreikningar 1973-1984 - 01.07.1985, Blaðsíða 30
-28-
vegar voru innborganir fiskvinnslunnar i' Verðjöfnunarsjóð
fiskiðnaðarins, umfram útborganir, til skamms ti'ma taldar
til óbeinna skatta. Þvi' hefur nú verið breytt, þannig að
greiðslur i' Verðjöfnunarsjóð eru taldar með tekjum i'
sjávarútvegi, en greiðslur úr sjóðnum er litið á sem
ráðstöfun á eins konar kyrrsettum hagnaði. Þessi
breyting tengist ekki hinu nýja SNA-kerfi.
Öðru máli gegnir um framleiðslustyrki. Skilgreiningu
þeirra i' ráðstöfunaruppgjöri hefur verið breytt nokkuð frá
og með árinu 1980. Fyrst má þar nefna að til styrkja var
talin sérstök reiknuð afskrift af samgöngumannvirkjum, en
hún er nú felld niður. Þá voru ýmis útgjöld hins opinbera
vegna rannsóknastofnana talin til styrkja, en þau eru nú
flokkuð sem samneysla, eins og áður er getið. Einnig voru
gerðar nokkar aðrar minniháttar breytingar, sem ekki verða
raktar hér.
3.8 Samandregnar niðurstöður endurskoðunarinnar
1973-1980.
Hér að framan hefur nú verið fjallað um einstaka
þætti ráðstöfunaruppgjörsins, en þeir verða nú dregnir
saman i' heild, og verður leitast við að bera saman niður-
stöður um landsframleiðslu, eins og þær hafa áður birst,
við þær niðurstöður, sem endurskoðunin nú leiðir til.
Annars vegar er borið saman við ti'mabilið 1973-1980
samkvæmt eldra þjóðhagsreikningakerfinu, og hins vegar er
gerður samanburður á niðurstöðum ársins 1980 samkvæmt eldra
og yngra þjóðhagsreikningakerfinu.
Eins og ráða má af töflu 1.2 og samanburði við áður
birtar þjóðhagsreikningatölur, leiðir endurskoðun uppgjörs-
ins 1973-1980 til hærri niðurstöðu um verga lands-
framleiðslu en áður. A verðlagi hvers árs er munurinn
mestur si'ðasta árið, þ.e. 1980, og er þá orðinn tæp 10%.
Meginhluta þessarar hækkunar má rekja til einkaneyslunnar,
eins og áður greinir.
Eftirfarandi yfirlit sýnir niðurstöður endurskoðunar-
innar fyrir hvert ár 1973-1980 og samanburð við fyrri
áætlanir: