Þjóðhagsreikningar 1973-1984 - 01.07.1985, Page 26
-24-
um árabil. Skýrslur þessar tilgreina fjölda þeirra
rúmmetra, sem eru i' byggingu á hverjum ti'ma, og jafnframt
upphaf og lok framkvæmda. Þessar framkvæmdir, mældar i'
rúmmetrum, hafa sraan verið verðlagðar með hliðsjón af
byggingarkostnaði á hvern rúmmetra samkvæmt visitölu bygg-
ingarkostnaðar. Hefur þá jafnan verið tekið tillit til
árlegra verðhækkana á byggingarkostnaði. Hins vegar hefur
grundveliinum að vi'sitölunni verið breytt nokkrum sinnum á
undanförnum áratugum, nú si"ðast með lögum nr. 18 frá 23.
mars 1983. Þá var vi'sitalan sett sem 100 i' janúar 1983,
eftir verðlagi i' fyrri hiuta desember 1982. Þessi breyting
á grundvellinum, bæði nú si"ðast og eins áður, hefur leitt
til nokkurrar hækkunar á mati á byggingarkostnaði hvers
rúmmetra. Þessi hækkun á rúmmetraverðinu hefur ekki verið
tekin inn i' tölurnar um fjármunamyndun fyrr en nú, og þá
frá og með árinu 1980. Astæðan er sú, að breytingu á grund-
velli vi'sitölunnar má rekja bæði til breytinga á byggingar-
háttum og byggingarreglugerðum. Hér er þvi' tæpast, nema þá
að nokkru leyti, um að ræða verðbreytingu heldur miklu
fremur breytingu á gæðum, það er magni. Hins vegar hefur
þessi gæðabreyting ekki orðið á þvi' eina ári, er hinn nýi
grundvöllur var tekinn upp, heldur nær hún yfir lengra
ti'mabil. Vandinn er þvi' sá, hve stóran hluta þessarar
breytingar eigi að li'ta á sem magnbreytingu og þá jafnframt
yfir hve langt árabil eigi að dreifa þessari
magnbreytingu. Hér hefur verið valin sú leið að taka alla
breytinguna i' fjárhæðum inn á árinu 1980 i' tengslum við
upptöku hins nýja þjóðhagsreikningakerf is. Af þessu
leiðir raunar, að sleppt er þeirri magnbreytingu, sem rekja
má til breytinga á grundvelli byggingarvi'sitölunnar. Hinn
möguleikinn var að dreifa magnbreytingunni af handahófi
yfir undanfarin þrjáti'u ár eða svo, og verður það að teljast
si'st betri kostur.
f eftirfarandi yfirliti er gerður samanburður á tölum
um fjármunamyndun frá 1973-1984. Annars vegar eru birtar
tölur samkvæmt eldra uppgjörskerfi 1973-1980 og hins vegar
uppgjör fyrir árin 1980-1984 með áðurnefndum breytingum.