Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.10.1939, Síða 7
Þ J Ó Ð I N
197
Fjársukk ríkisins 1937.
Nokkur atriði úr ríkisreikningnum og athugasemdum yfirskoðunarmanna.
Landsreikningurinn fyrir árið
1937 kom út í nóv. Hann er afar
fróðlegt plagg um meðferð fjármál-
anna á því ári, ekki sízt þar sem
honum fylgja mjög ítarlegar athuga-
semdir og aðfinnslur frá hinum
þingkj örnu yfirskoðunarmönnum,
sérstaklega einum þeirra, Jóni
Pálmasyni alþingismanni frá Akri.
Sumar athugasemdirnar eru undir-
skrifaðar af öllum þremur endur-
skoðendum, þeim Jóni Pálmasyni,
.Törundi Brynjólfssyni og Sigurjóni
Ólafssvni, en auk þeirra gerir Jón
Pálmason einn margar athugasemd-
ir. .Tón Pálmason hefir áður vakið
athygli á sér fyrir skorinorða og
hreinskilna gagnrýni á fjárreiðum
ríkis og ríkisstofnana, og á hann
skildar þakkir alþjóðar fyrir að
hafa rótað svo upp í fjármálaspill-
ingunni.
Sameiginlegar athugasemdir allra
yfirskoðunarmanna.
Af þeim skulu þessar nefndar:
I fimmtu athugcisemd segir: —
„Ivostnaður við pósthúsið í Regkja-
vík liefir orðið kr. 211.296,74, eða
kr. 51.296,74 hærri en fjárlög heim-
ila. Mestur hluti þessarar umfram-
greiðslu stafar af launagreiðslum
fyrir yfirvinnu, vinnu á helgidög-
um, vinnu vegna fría o. fl.
Þar sem kostnaðurinn við starf-
rækslu þessarar stofnunar fer sí-
hækkandi, og er á þessu ári langt
umfram það, sem fjárlög ákveða,
virðist ástæða til að atliuga, hvort
ekki væri unnt að breyta fyrirkomu-
lagi á störfum hennar, svo draga
megi eitthvað úr kostnaðinum.“
í sjöundu atliugasemd segir:
„Rekstrargjöld landssímans hafa
orðið kr. 255.950,36 hærri en fjárlög
heimila. Aðallega liggja hækkanirn-
ar í meiri launagreiðslum og meiri
endurnýjun og viðhaldi, en Alþingi
gerði ráð fyrir.
Launagreiðslur í Reykjavík og við
1. fl. stöðvar hafa orðið kr. 741.-
394,00, en áætlað var í þessu skyni
kr. 628.970,00. Þannig hefir verið
greitt kr. 112.424,00 umfram það, er
Alþingi áætlaði."
Fjórtánda athugasemd hljóðar
svo:
„Fangahælið á Litla-Hrauni.
Yfirskoðunarmönnum virðist sitt-
hvað athugaverl við rekstur hælis-
ins á Litla-Hrauni. Skulu hér nefnd
nokkur atriði:
1. Bifreiðakostnaður:
a. Fært til gjalda á
reikningi búsins.. kr. 4241.50
b. Fært til gjalda á
reikningi hælisins — 4230.05
c. Halli á 3 bifreiðum — 6211.17
Samtals kr. 14682.72