Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.10.1939, Blaðsíða 26

Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.10.1939, Blaðsíða 26
216 PJÓÖIN brauð. Þó að maður þurfi ekki að greiða með peningum alla þá hjálp, sem slíkar stofnanir veita, þá verður maður a.ð gi’eiða hana með undir- gefni eða svo fanst Sóffa. Það er eins vist og nótt fvlgir degi, að sá, er fær rúm á slíkum stofnunum, verður að fara i hað, og á sama hátt fylgir hverjum hrauðbita, er þannig er þáð- ur, spurningar og hnýsni um einka- hagi manns. Þess vegna er hetra að vera „gestur ríkisins“ þó að gestur- inn verði að hlýða ákveðnum regluni, því að yfirvöldin í fangelsinu skifta sér ekki svo mikið af högum „lieið- ursmanna“. Þar sem Sóffi hafði nú ákveðið að fara til „eyjarinnar“, fór hann þegar að gera ráðstafanir til þess að undir- húa för sína þangað. Það var nú lílill vandi að koma því í kring. Skemmti- legasla leiðin var sú, að fá sér dýr- an mat á gistihúsi. Siðan vrði hann auðvitað að lýsa vfir því, að hann ætti engan eyri, og þá vrði hann af- hentur lögreglunni, án þess að mik- ið bæri á. Yfirvöldin mundu svo sjá um framhaldið. Sóffi stóð upp af bekknum, labbaði út úr garðinum, vfir „aspalts“-auðn- irnar, þar sem Breiðgata og Fimmta- gata mætast. Hann rölti upp Breið- götu og nam staðar fvrir framan glæsilegt kaffihús, þar sem öllu lost- ætu og fögru ægði saman. Sóffi var uppþembdur af sjálfs- trausti. Það náði alla leið frá neðsta vestishnappnum upp að hálsmáli. Hann var rakaður. Og klæðnaður hans var sæmilegur. Ivventrúboði hafði gefið honum jakka og slifsi á guðræknissamkomu. Ef hann gæti komizt í sæti við eitthvert horðið, án þess að tekið væri eftir honum, þá var honum horgið. Sá hluti lians, sem tók upp fvrir horðið, gat varla vakið grunsemdir veitingaþjónsins. Steikt rjúpa, ein flaska af léttu víni og síðan önnur af hetra vini, ásamt vindli, — það fannst Sóffa nægilegt. Yindillinn þurfti svo sem ekki að kosta meira en eina krónu. Þetta allt mundi ekki kosta svo mikið, að kaffihússtjórnin teldi ástæðu til þess að hefna sín nokkuð sérstaklega á honum, en samt sem áður mundi hann leggja upp saddur og ánægður í ferðina til vetrarbústaðarins. Þegar Sóffi kom inn úr dyrunum, tók yfirþjónninn strax eftir því, hvernig huxurnar hans og skórnir litu út. Sterkar hendur snéru honum við og ýttu honum í flýti út fyrir útidyrnar. Sóffi sneri af Breiðgötu. Honum leist ekki svo á, að sú leið, sem hezt fullnægði þeim kröfum, sem magi hans gerði, mundi liggja til „eyjarinnar“ þráðu. A horninu á 6. götu var stór „húð- ar“-gluggi. Bafmagnsljós og falleg „vöru“-sýning gerði liann mjög á- berandi. Sóffi tók stein og fleygði honum gegnum gluggann. Fólk kom hlaupandi hinum megin við hornið, lögregluþjónn var í fararhroddi. Sóffi stóð kyrr, með höndurnar í vös- unum, og hrosti, er hann sá gvltu hnappana. „Hvar er maðurinn, sem gerði þetta?“ spurði lögregluþjónninn, og var i veiðihug. „Haldið þér ekki að eg eigi ein- hvern hlut í þvi“, spurði Sóffi hæðn-

x

Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna
https://timarit.is/publication/1014

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.