Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.10.1939, Side 27

Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.10.1939, Side 27
t> J ó Ð I N 217 islega en vingjarnlega, eins og sá er gleðst í hjarta sínu. En lögregluþjóninum datt ekki í hug að gruna Sóffa. Menn, sem brjóta glugga, eru ekki vanir að standa kyrrir og liefja umræður við þá horðalögðu. Þeir laka til fótanna. Lögregluþjónninn sá mann langt niðri á götunni, sem var að flýta sér að ná í bíl. Með reidda kylfuna tók hann þátt í eltingarleiknum. Sóffi lahhaði á burt, fullur fyrirlitningar. Óheppnin hafði elt liann í hæði skipt- in. Hinum megin við götuna var gisti- hús, sem eklci leit neitt sérstaklega vel út. Það var fyrir þá, sem þurftu mikið að horða, en voru auralitlir. Matarílátin voru þvkk og sterk. And- rúmsloftið var þykkt. Súpan og horð- dúkarnir voru þunnir. Þrátt fyrir skóræflana og buxnagarmana komst Sóffi slysalaust inn og náði í sæti. Þar át hann steikt nautakjöt. flatkökur, soðkökur og fleira þess háttar. Síðan skýrði hann þjóninum frá því að hann ætti ekki grænan túskilding. „Láttu nú hendur standa fram úr ermum og kallaðu á lögregluna“, sagði Sóffi, „og láttu mig ekki þurfa að bíða i það óendanlega“. „Við höfum nú ekki svo mikið við þig“, sagði þjónninn. „Komdu, Konni“. Tveir þjónar tóku hann og fleygðu honum út á götuna. Hann kom niður á vinstra kjammann. Hann stóð upp i mörgum áföngum, fvrst reis haus- inn upp, síðan axlirnar og svo skrokkurinn koll af kolli. Hann barði af sér rykið. Fangelsunin virtist fjar- lægur draumur. „Eyjan“ virtist langt undan. Lögregluþjónn stóð fyrir framan vínsöluslað í stuttri fjar- lægð. Hann hló og gekk í burtu. Sóffi gekk fram með mörgum hús- um áður en hann fékk kjark til þess að hiðla til fangelsisins aftur. í þetta skiptið birtist möguleikinn honum í því að ónáða kvenmann. Ung stúlka, sæmilega til fara, stóð fyrir utan húðarglugga og horfði með mikilli athvgli á rakhursta og blekhvttur. 1 nokkurra feta fjarlægð var stór og drambsamur lögregluþjónn. Þessi laglega stúlka og lögregluþjónninn þarna rétt hjá henni kom Sóffa til þess að trúa þvi, að armur laganna mundi hrátt opna sér leið út á „evna“, litlu og notalegu. Sóffi lagaði á sér bindið, sem kven- trúboðinn hafði gefið honum, dró skyrtuermarnar fram, hallaði hattin- um út á hlið og gekk til stúlkunnar. Hann gaf henni hýrt auga, hóstaði og ræskti sig, brosti til hennar og blikk- aði liana, og gerði annað það sem til- hevrir undir slíkum kringumstæðum. Sóffi hafði annað augað á lögreglu- þjóninum og sá að hann hafði nánar gætur á öllu. Stúlkan gekk nokkur skref frá og hélt áfram að stara á rakburstana. Sóffi geklc djarflega á eftir henni, nam staðar við hlið henn- ar, Ivfti hattinum og sagði: „Þú þarna gullið mitt. Viltu ekki koma með mér heim í garðinn minn ?“ Lögregluþjónninn gaf þeim stöð- ugt gætur. Stúlkan, sem þannig var ónáðuð, þurfti ekki annað en rétta út litla fingurinn til þess aðSóffi kæmist í alla sæluna úti á „eynni“. Honum fannst liann vera farinn að finna hit-

x

Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna
https://timarit.is/publication/1014

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.