Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.10.1939, Qupperneq 30
220
ÞJÓÐIN
I fylkingarbrjósti.
í síðasta hefti „Þjóðarinnar“ birtust
greinar um tvo af forvígismönnum Sjálf-
stœðisflokksins, ráðherrana Ólaf Thors og
Jakob Möller. Frá lesendum „Þjóðarinn-
ar“ hafa borizt þakkir fyrir að kynna
landsmönnum þannig æviatriði hinna
merkustu stjórnmálamanna, og mun tima-
ritið halda áfram þessum greinaflokki.
Pétur Halldórsson, borgarstjóri.
Pétur Halldórsson borgarstjóri og
alþingismaður í Reykjavík er borinn
og ljarnfæddur Reykvikingur, fædd-
ur 26. apríl 1887. Hann varð stú-
dent árið 1907, fór til Kaup-
mannahafnar, lauk þar heimspeki-
prófi, en hvarf síðan heiin og keypti
bókaverzlun Sigfúsar Eymundsson-
ar, sem hann hefir átt síðan.
Pétur Halldórsson hefir þegar frá
öndverðu vakið á sér óskipt traust
og sérstakar vinsældir allra, sem
honum liafa kynnzt. Hann hefir skip-
að mörg virðingarsæti og ábyrgðar-
störf, en aldrei hefir liann troðið séi'
í öndvegi, heldur verið kjörinn til
starfa af öðrum.
Hann var kosinn í bæjarstjórn
Revkjavikur 1921. Hann liefir þvi
nú um tvo áratugi verið starfandi
sem einn aðalforystumaður í l)æjar-
málum höfuðborgarinnar, verið for-
seti bæjarstjórnar, átt sæti í bæjar-
ráði, og verið borgarstjóri, siðan Jón
Þorláksson féll frá 1935. í þeirri
stöðu hefir honum auðnazt að gera
hinar miklu hugsjónir Jóns Þorláks-
sonar og stórkostlegu framfaramál
Reykjavíkur, Sogsvirkjunina og
hitaveituna, að veruleika.
Þegar Einar Arnórsson varð
hæstaréttardómari 1932, var Pétur
Halldórsson fenginn til framboðs, og
hefir hann verið þingmaður Revlc-
vikinga síðan.
Pétur Ilalldórsson hefir ekki að-
^ins starfað að stjórnmálum og svo-
KÖlIuðum opinberum málum. Hann
befir verið einn af forvígismönnum
Góðtemplarareglunnar hér á landi,
og var um skeið stórtemplar. Hann
var og aðalforgöngumaður að stofn-
un Gagnfræðaskóla Reykvíkinga,
þegar Menntaskólanum var lokað til
hálfs fyrir æskulýð Reykjavíkur.
Pétur Halldórsson var hinn mesti
fræknleikamaður á yngri árum, i-
þróttamaður, ramur að afli, þéttur
á velli og þéttur í lund, söngmaður