Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.10.1939, Page 35
1> J Ó Ð 1 J
225
Bókasafn á hvert heimili
fyrir 10 kr.
Menntamálaráð liefir ákveðið að
líefja mikla og vandaða bókaútgáfu
á næstunni.
Á Alþingi var tekin ákvörðun um
að sameina hana starfsemi Þjóðvina-
félagsins.
Að útgáfustarfsemi þessari munu
vinna menn úr öllum lýðræðisflokk-
um landsins á ópólitískum og þjóð-
legum grundvelli.
Safnað verður föstum áskrifend-
um um land alt. Fyrir 10.00 kr. ár-
g'jald munu þeir fá svo margar og
góðar bækur, að betri kaup verði
ekki liægt að gjöra á íslenzkum
bókamarkaði. Út verða gefnar bæði
frumsamdar og þýddar bækur, svo
sem æfisögur merkra manna, valin
skáldverk og alþýðleg fræðirit.
Þessar bækur verða gefnar út á
fyrsta ári:
1. Markmið og leiðir eftir Aldous
Huxley.
2. Sultur, eftir Knut Hamsun, í
þýðingu Jóns Sigurðssonar frá Kald-
aðarnesi.
3. Alþýðleg beilsufræði, eftir Jó-
liann Sæmundsson lækni.
4. Viktoría drottning eftir Lytton
Strachey, þýdd af Kristjáni Alberts-
syni.
5. Almanak Þjóðvinafélagsins.
6. Tímaritið Andvari.
7. Uppreisnin í eyðimörkinni eftir
T. L. Lawence.
l'akmarkið er að koma upp úrvals
bókasafni á hverju beimili til sjávar
og sveita.
Áskriftarlistar liafa verið sendir út
um allt land. Sýnið bókaútgáfunni
skilning og velvild og aukið þeklc-
ingu sjálfra yðar með því að skrifa
nafn yðar á áskriftarlistann.
Leifur Auðunsson.
Bernhard Newmann:
Kvennjósnarinn.
— Framhaldssaga —
Anna beimsótti fangaherbúðirnar,
komst í kynni við einn Irann og sá
svo um að bann var látinn laus, en
lionum voru þó gefnar gætur, og svo
lét bún bann beimsækja sig annað
veifið. Með þessu móti liafði hún
upp úr honum flest það er máli
skipti um bagi lians sjálfs, f jölskyldu
hans, vini og ættingja, og lærði af
honum ýms dagleg orðatiltæki og
annað slíkt. IJann kenndi henni einn-
ig hinn írska framburð á enskunni,
—- en það gerði það skiljanlegt að
einhverrar vankunnáttu gætli í mál-
inu af og til. Eftir nokkrar vikur var
bún sannfærð um að bún skildi til
sæmilegrar hlitar lífskjör fólks og
hugsunarhátt eins og hann gengur
og gerist í írsku smáþorpi. Að því
loknu snéri hún sér til miðstöðvar
þýsku Iiernjósnanna, sem útvegaði
henni meðmæli, og sá svo um að þau
voru eins og þau áttu að vera að
fullu og öllu. Þá lagði liún leið sína
til Noregs og þaðan til Belfast, og að
endingu settist hún að í friðsamlega