Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.10.1939, Síða 36

Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.10.1939, Síða 36
226 Þ J Ó Ð I N smáþorpinu Woodcut Green, og framkoma hennar og hegðun öll vakti engar grunsemdir. En hvernig stóð á þvi að Anna settist að í Woodcut Green? í marga mánuði hafði sá orðrómur verið uppi í Þýskalandi að Englend- ingar liefðu i huga að gera einhverj- ar sérstakar og óvæntar ráðstafanir vegna hernaðaraðgerða sinna á meg- inlandinu. Fangarnir voru stöðugt krafðir sagna, alll frá því er þeir voru teknir höndum og svo áfram, en raunin varð sú að þeir voru ein- staklega fáfróðir um allar fyrirætl- anir hreska hersins, eða svo létu þeir að minnsta kosti, og það má vel vera að það hafi engin látalæti verið. Njósnarar í Englandi sendu stöðugt þær fregnir að eitthvað óvenjulegt væri í aðsigi, og að Bretar ætluðu að taka upp nýjar aðferðir til þess að ófriðurinn tæki skjótan endi. Einn njósnarinn upplýsti það liaustið 1915 að Bretar væru í þann veginn að lileypa skipi af stokkunum, sem gæli farið yi'ir land, en er liann var nánar inntur eftir þessu varð liann að viðurkenna, að liann væri alls ófróð- ur um þetta, en liann hafði hlustað á lal tveggja manna á gildaskála einmn, og þar hefði þetta borið á góma. Er þetta var athugað nánar bentu allar líkur til að mennirnir hefðu verið að ræða um þekkta smá- sögu eftir H. G. Wells, sem hafði verið hirt árið 1903. Annar njósnarinn skýrði frá því að Bretar væru að smíða einskonar konguló, sem ætti að skríða yfir svæðið millum herlínanna og klippa sundur vírgirðingarnar rétt við nefið á Þjóðverjunum. Fjöldi slíkra sagna harst um allt Þýzkaland, og allar voru þær fjarri lagi. Menn lögðu heldur ekki trúnað á sögur þessar, er þeir liöfðu atliug- að þær nánar, en þó voru til menn i njósnarliði Þjóðverja, sem óttuðust að einhver fótur kynni að vera fyrir þcssum hlægilegu sögum, og þegar einn njósnarinn í Lineoln skýrði frá því að vélaverksmiðjurnar þar hefðu með höndum smíði nýrrar árásar- vélar, ákváðu Þjóðverjar að rann- saka málið nánar og fá það upplýst. Njósnarinn i Lincoln skýrði enn- fremur frá því að allir þeir, sem að jiessu verki ynnu væru eiðsvarnir, og að þeir ynnu undir strangasta eftir- lili daga og nætur að einhverju læki, sem ekki væri byssa, en þó einhvers- konar vígvél. Hann fékk fyrirskipun um að krvfja málið til mergjar, livað sem hað kostaði, en þar brást hon- um algerlega bogalistin. Verka- mennirnir i Lincoln unnu að verkinu með mestu skyldurækni, og létn engar upplýsingar frá sér fara varð- andi slúðursögurnar í borginni, eða gáfu yfirleitt til kynna að liverju þeir væru að vinna. Annar njósnari, sem naut bins mesta trausts var sendur þangað, en allt kom fyrir ekki, en þá var leitað til Önnu og bún kölluð í skyndi frá trúnaðarstörfunum í Antwerpen. Af þessum orsökum var Anna komin til Englands, en hvernig datt henni í hug að leita lil jafn afskekkts smáþorps og Woodcut-Green, og liafa þar aðalbækistöðvar sínar. Það

x

Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna
https://timarit.is/publication/1014

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.