Sagnir - 01.04.1988, Page 7
LEIÐRÉTTINGAR í SÖGNUM 9.
Bls. 23; í þriðja dálki frá "Mikilvægi
fiskveiðanna. . . " til bls. 24 að "Bændastéttin réð
kyrrstöðu..." hefur textinn víxlast og er réttur
s vona:
Mikilvægi fiskveiðanna nyrst í Noregi leiddi
einnig til þess að útgerð þilskipa hófst þar fyrr
en á íslandi og tækniþróun í fiskveiðum var örari
en hér þekktist. Þrátt fyrir þetta var fólkið háð
versluninni og gat því brugðið til beggja vona um
afkomuna ef aflinn brást. 21)
KYRRSTAÐA í ÝMSUM MYNDUM
Þegar saga fiskveiðiþjóðanna í Færeyjum,
Nýfundnalandi, N-Noregi og íslandi er skoðuð,
kemur í ljós að ýmislegt í þróun fiskveiða þeirr.a
er þeim sameiginlegt. Það var sameiginlegt íslandi
og Færeyjum, að fiskveiðar skiptu ekki höfuðmáli
fyrir lífsafkomu þjóðanna. En í N-Noregi og á
Nýfundnalandi voru fiskveiðar aðalatvinnugreinin
og það sem mestu máli skipti fyrir lífsafkomu íbúa
þessara landa.
Það er því ljóst að með því að einskorða sig
við fiskinn var afkoman hæpnari en t.d. á íslandi,
þar sem hinn rótgróni landbúnaður var til staðar
og sá fólki fyrir þeirri næringu sem nauðsynlega
þurfti. En fiskveiðin var einskonar aukageta sem
hjálpaði til þegar fiskur gekk á grunnslóð og var
veiðanlegur með þeim frumstæðu aðferðum sem
íslendingar höfðu tileinkað sér gegnum tíðina.
Bls. 31; í myndatexta segir "Hþepfnersverslun á
Skagaströnd kringum 1913. Einar Blandon t.v.j
Carl Hemmert t.h. í myndaskrá segir "Ur
Hophnersverslun á Skagaströnd 1913. Mennirnir á
myndinni eru Carl Berndsen og Edwald Hemmert...
Mun það vera rétt.
Mistökin áttu sér stað vegna þess að aftan á
myndina eru skrifuð nöfnin Einar Blandon og Carl
Hemmert, en samkvæmt nýfengnum upplýsingum frá
Héraðsskjalasafni Blönduóss er það ekki rétt.
Bls. 88; þar hefur misritast nafn höfundar De
Norskefiskeriers historie 1815-1880. Þar stendur
T. Solhang, en á að vera T. Solhaug.
Beðist er velvirðingar á þessum mistökum.