Árbók Læknafélags Íslands - 01.01.1934, Blaðsíða 32
32
tryggingunni í hendur, eru þau færð viðkomandi lækni til tekna i
viðskiftareikningi. Vottorðin eru greidd á skrifstofu tryggingarinnar,
gegn kvittun, hvenær sem óskað er. Læknar utan af landi verða að
gefa umboð til að hefja greiðsluna. í árslok hver verður læknum
send tilkynning um það, sem þeir kunna að eiga óhafið, og geta
þeir þá ávísað því eða gefið umboð til að hefja það.
Ýms fróðleikur.
ntoxicationes acutae.
Ekki er ávallt létt að ákveða, að um bráða eitrun sé að ræða.
Sjúklingarnir hafa oft tekið inn eitrið til þess að stytta sér aldur, og
er því litt mark takandi á framburði þeirra, þó við meðvitund séu,
og gefið gætu upplýsingar. Auk þess hafa þeir oft falið eða eyði-
lagt glös eða hylki, sem eitrið var i, til þess að villa aðstandend-
um og lækni sýn.
Sumar eitranir gefa allskýr klinisk einkenni (strychnin, mor-
phin), og svo má auðvitað grípa til efnarannsókna á magavökva
eða þvagi.
En ef um eitrun er að ræða, riður mjög á að eyða ekki tíman-
um í óþarfar rannsóknir, heldur hefjast þegar handa, jafnvel þó að-
eins sé við grun að styðjast.
Venjulega hefir eitrið verið tekið pr. os, og má því búast við,
að nokkuð af því sé enn óbreytt í maganum, jafnvel þó að nokkrar
stundir séu liðnar. Er því fyrst og fremst gripið til magaskolunar.
Skola skal með miklu af volgu vatni (10—15 lítrum), og jafnvel
endurtaka skolunina, ef t. d. um morfineitrun er að ræða, vegna
þess að morfin, sem hefir resorberast, útskilst að nokkru aftur í
maganum. Ef tæki vanta til útskolunar, má reyna að láta sjúkling-
inn kasta upp. Uppsölumeðal, sem allsstaðar má ná í, er grænsápa
— 1 teskeið í pela af volgu vatni. Auk þess má framkalla uppköst
með því að kitla kokið með fingri eða fjöður. Stöku sinnum er
magainnihaldið þannig, að það stýflar slönguna, og er þá nauðsyn-
legt að láta sjúklinginn kasta upp. Önnur uppsölulyf eru chlor. apo-
morphic 0,01—0,02 subcutant, rad. ipec. pulv. gr. 1-2 eða sol. sulph.
cupr. 1—50, 1 teskeið hvað eftir annað, ef með þarf.
Ef sjúkl. er í coma, er mjög hæpið að emetica verki, og getur
auk þess verið hættulegt að nota þau, ef svo stendur á.
Avnars er ávallt rétt að tæma tractus intest. með því að gefa
laxantia (sulf. natr., sulf. magnes. eða ol. ricini. 01. ricini þó ekki
við phosphoreitrun) eða clysma. Við alkaloideitranir er auk þess