Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2007, Blaðsíða 33
FÖSTUDAGUR 31. áGúST 2007DV Sport 33
Martin Jol, stjóri Tottenham, er enn undir pressu
eftir þrjá tapleiki í fyrstu fjórum leikjum liðsins.
Tottenham er með haug af góðum
knattspyrnumönnum en árangur stendur á sér. Á
góðum degi getur Tottenham spilað góðan
fótbolta, eins og sýndi sig gegn Derby. Fulham
ákvað að selja Zat Knight í vikunni og sér
sennilega ekki eftir því, þar sem hann var
handtekinn skömmu síðar. 2 á Lengjunni.
Einn minnst áhugaverði leikur umferðarinnar að
mati DV Sport. Mido heldur þó uppteknum hætti
og skorar sigurmark leiksins í fyrri hálfleik. Það
verður sem salt í sárið hjá Birmingham því félagið
var nálægt því að kaupa Mido í upphafi tímabils-
ins. Steve Bruce mun kvarta sáran undan
dómgæslunni í leiknum en ætti frekar að eyða
kröftum sínum í að styrkja liðið. 1 á Lengjunni.
Reading tók West Ham í bakaríið í síðustu
viðureign liðanna og vann 6–0 sigur. Brynjar
Björn var á skotskónum í þeim leik og skoraði
fyrsta markið. West Ham hefur orðið fyrir miklu
áfalli að undanförnu og leikmenn liðsins meiðast í
bílförmum. Það vantar virkilega sterkan mann á
miðjuna og Reading gengur á lagið. 2–1 sigur
Reading þar sem Kevin Doyle skorar bæði mörk
heimamanna og Dean Ashton skorar fyrir West
Ham. 1 á Lengjunni.
Bolton tók við sér um síðustu helgi og rótburstaði
Reading, 3–0. Það býr mikið í þessu Bolton-liði og
vonandi fyrir stuðningsmenn liðsins nær Sammy
Lee að kalla fram það besta í mönnum. Yakubu
leikur líklega sinn fyrsta leik fyrir Everton og vill
sanna sig fyrir nýja stjóranum. Hér mætast tveir
ekta breskir stjórar og baráttan verður í fyrirrúmi.
1–1 þar sem Nicky Hunt og Yakubu skora mörkin.
X á Lengjunni.
Derby verður engin fyrirstaða fyrir Liverpool.
Strákarnir frá Bítlaborginni líta vel út þessa
dagana og gera harða atlögu að
Englandsmeistaratitlinum á þessari leiktíð. Derby
vann Liverpool síðast í mars árið 1999 og þarf að
bíða lengur eftir þeim næsta. 4–0 öruggur sigur
hjá Liverpool. Dirk Kuyt verður ekki í liðinu þar
sem hann skoraði tvö mörk í síðasta leik. 1 á
Lengjunni.
Wigan hefur komið á óvart það sem af er
leiktíðinni. Spurningin er hins vegar hvort liðið
nái að halda þetta út. Newcastle er erfitt heim að
sækja, þar sem liðið er með eina bestu
stuðningsmenn Englands. Michael Owen skoraði í
vikunni og vonandi fyrir knattspyrnuunnendur er
hann kominn í gírinn. DV Sport spáir Newcastle 2-
0 sigri gegn Wigan. Viduka og Owen með mörkin.
1 á Lengjunni.
Eftir slaka byrjun á tímabilinu vann Manchester
United loks sinn fyrsta leik um síðustu helgi. Hann
var hins vegar ekki sannfærandi og ljóst að meira
þarf til ef liðið á að ná að verja meistaratitil sinn.
Sunderland hefur aftur á móti dalað eftir góðan
heimasigur á Tottenham í fyrstu umferð.
Sunderland tapaði fyrir Luton í deildarbikarnum í
vikunni og er ekki líklegt til afreka á Old Trafford.
3–0 sigur United. 1 á Lengjunni.
Arsenal komst í riðlakeppni Meistaradeildar
Evrópu í vikunni, sem er ákveðinn léttir fyrir
félagið. Arsenal er enn taplaust. Portsmouth er
með skæða menn innanborðs en það sækir ekkert
lið gull í greipar Arsenal á Emirates-vellinum.
Portsmouth er með þrjá fyrrverandi leikmenn
Arsenal innan sinna raða. Harry Redknapp hefur
sýnt að Sol Campbell og Kanu eiga enn nóg eftir.
Lauren er annað mál. 1 á Lengjunni.
Manchester City varð að sætta sig við síðasta tap
sitt á tímabilinu um síðustu helgi þegar liðið
heimsótti Arsenal. Nú eru það harðjaxlarnir í
Blackburn sem taka á móti Sven-Göran og
lærisveinum hans. Blackburn spilar fast, með
meistara Robbie Savage fremstan í flokki, og
lætur City-menn finna til tevatnsins. Inn á milli
leynast hins vegar léttleikandi menn eins og
Santa Cruz og McCarthy. Þeir skora sitthvort
markið í 2–0 sigri Blackburn.
Aston Villa festi kaup á Zat Knight í vikunni og
blekið var varla þornað á samningnum þegar
hann var handtekinn fyrir vörslu fíkniefna. Góð
kaup þar á ferðinni. Villa-menn hafa haft ágætis
tak á Chelsea á Villa Park og velgt þeim oft á
tíðum undir uggum. Þrátt fyrir það er Chelsea of
stór biti fyrir Aston Villa að kyngja og vinnur
Chelsea þennan leik með einu marki. Florent
Malouda skorar eina mark leiksins. 2 á Lengjunni.
Síðustu fimm viðureignir
Fulham 0–4 Tottenham
Fulham 1–1 Tottenham
Tottenham 0–0 Fulham
Fulham 1–0 Tottenham
Tottenham 1–0 Fulham
1. Chelsea 4 3 1 0 7:4 10
2. Man. City 4 3 0 1 4:1 9
3. Liverpool 3 2 1 0 5:2 7
4. Wigan 4 2 1 1 6:3 7
5. Everton 4 2 1 1 6:4 7
6. Arsenal 3 2 1 0 4:2 7
7. Newcastle 3 1 2 0 5:3 5
8. Portsmouth 4 1 2 1 6:5 5
9. Blackburn 3 1 2 0 4:3 5
10. Man. United 4 1 2 1 2:2 5
11. Aston Villa 3 1 1 1 3:3 4
12. West Ham 3 1 1 1 2:3 4
13. Birmingham 4 1 1 2 6:7 4
14. Middlesbrough 4 1 1 2 5:6 4
15. Reading 4 1 1 2 2:5 4
16. Sunderland 4 1 1 2 3:7 4
17. Tottenham 4 1 0 3 5:5 3
18. Fulham 4 1 0 3 5:7 3
19. Bolton 4 1 0 3 6:8 3
20. Derby 4 0 1 3 3:9 1
Markahæstu leikmenn:
Nicolas Anelka Bolton 3
Frank Lampard Chelsea 3
Antoine Sibierski Wigan 3
Mido Middlesbrough 2
Charles N’Zogbia Newcastle 2
Roque Santa Cruz Blackburn 2
Cameron Jerome Birmingham 2
Matt Oakley Derby 2
Robin Van Persie Arsenal 2
Deiberson Geovanni Man. City 2
Steed Malbranque Tottenham 2
John Utaka Portsmouth 2
Michael Chopra Sunderland 2
Benjani Mwaruwari Portsmouth 2
David Healy Fulham 2
Leon Osman Everton 2
Obafemi Martins Newcastle 2
England – úrvalsdeild
1. Coventry 3 2 1 0 6:2 7
2. Ipswich 3 2 1 0 6:2 7
3. Wolves 3 2 0 1 6:4 6
4. Stoke 3 2 0 1 5:4 6
5. Watford 3 2 0 1 4:5 6
6. Colchester 3 1 2 0 7:4 5
7. Bristol City 3 1 2 0 5:4 5
8. Crystal Palace 3 1 1 1 6:4 4
9. Leicester 3 1 1 1 6:4 4
10. Scunthorpe 3 1 1 1 4:3 4
11. Blackpool 3 1 1 1 3:3 4
12. Plymouth 3 1 1 1 6:6 4
13. Hull 3 1 1 1 5:5 4
14. Charlton 3 1 1 1 5:5 4
15. Sheff. United 3 1 1 1 3:3 4
16. Norwich 3 1 1 1 3:3 4
17. Barnsley 3 1 1 1 6:8 4
18. Cardiff 3 1 0 2 2:2 3
19. W.B.A. 3 1 0 2 3:3 3
20. Burnley 2 1 0 1 2:3 3
21. Southampton 3 1 0 2 5:8 3
22. Q.P.R. 2 0 1 1 2:4 1
23. Preston 3 0 1 2 0:5 1
24. Sheff. Wednesday 3 0 0 3 4:10 0
Markahæstu leikmenn:
Brian Howard Barnsley 4
Alan Lee Ipswich 4
Freddy Eastwood Wolves 3
James Scowcroft Crystal Palace 3
Enska 1. deildin
1. Leyton Orient 3 3 0 0 5:1 9
2. Carlisle 3 2 1 0 4:1 7
3. Tranmere 3 2 0 1 5:2 6
4. Luton 3 2 0 1 6:4 6
5. Hartlepool 3 2 0 1 5:3 6
6. Yeovil 3 2 0 1 3:2 6
7. Huddersfield 3 2 0 1 2:2 6
8. Swindon 3 1 2 0 4:3 5
9. Bristol Rovers 3 1 2 0 3:2 5
10. Swansea 3 1 1 1 4:3 4
11. Bournemouth 3 1 1 1 2:2 4
12. Cheltenham 3 1 1 1 2:2 4
13. Millwall 3 1 1 1 1:1 4
14. Crewe 3 1 1 1 3:4 4
15. Oldham 3 1 0 2 2:3 3
16. Brighton 3 1 0 2 3:5 3
17. Southend 3 1 0 2 3:6 3
18. Nottingham Forest 3 0 2 1 1:2 2
19. Northampton 3 0 1 2 3:5 1
20. Doncaster 3 0 1 2 2:4 1
21 Walsall 3 0 1 2 2:5 1
22 Port Vale 3 0 1 2 1:4 1
23 Gillingham 3 0 0 3 1:6 0
24 Leeds 3 3 0 0 8:3 -6
Enska 2. deildin
David Healy
Hóf ferilinn með Manchester
United en spilaði aðeins einn
leik. Þaðan fór hann til
Preston þar sem hann sló í
gegn. Kom til Fulham frá
hinu fallna stórveldi Leeds og
hefur smollið eins og flís við
rass hjá liðinu.
Mikael Forssell
Talinn einn besti leikmaður
Finna og sá leikmaður sem á
að taka við af Jari Littmanen.
Hefur sýnt það að hann getur
skorað mörk en hefur átt í
erfiðleikum með hnéð á sér og
verið töluvert frá sinn stutta
feril.
Mark Noble
Kemur í gegnum
unglingastarf West Ham og
var valinn besti ungi
leikmaður liðsins árið 2005.
Finnst best að spila á miðri
miðjunni og ekki ólíklegt að
þar verði hann í vetur þar sem
hálft liðið er slasað.
Yakubu
Kemur væntanlega inn á í
sínum fyrsta leik fyrir félagið.
Það er búist við miklu af
Yakubu enda dýrasti
leikmaður Everton. Hann er
annar markahæsti leikmaður
deildarinnar síðustu fjögur ár
á eftir Thierry Henry.
Stephen Pearson
Maðurinn sem skoraði 60
milljóna punda markið í fyrra
þegar hann tryggði Derby upp
í úrvalsdeildina. Kom frá Celtic
í jánúar í fyrra og hefur sýnt
að þarna fer góður leikmaður.
Er besti vinur James
McFadden hjá Everton.
Nicky Butt
Eftir söluna á Scott Parker til
West Ham hefur Butt fengið
að spila meira og nýtt
tækifærið vel. Baráttuglaður
miðjumaður sem lætur vel
finna fyrir sér. Var orðaður við
Sunderland en ákvað að vera
hjá Newcastle.
Roy Keane
Mætir aftur til Old Trafford þar
sem hann er enn í guða tölu.
Sunderland mun væntanlega
eiga undir högg að sækja en
Keane sýndi það og sannaði á
síðustu leiktíð að þarna fer
góður framkvæmdastjóri.
John Utaka
Þrátt fyrir að vera aðeins 25
ára gamall er hefur Utaka
spilað með sjö félögum.
Gerðist svo frægur með
Rennes, hans fyrra félagi, að
skora tvær þrennur í röð.
Hraður og leikinn leikmaður
sem vert er að taka eftir.
Kasper Schmeichel
Hefur nýtt sér að tveir
aðalmarkmenn City-liðsins,
Andreas Isaksson og Joe Hart
eru meiddir og allt í einu er
Schmeichel orðinn
aðalmarkvörður í Manchest-
er-borg. Núna er það hins
vegar City ekki Utd sem nýtur
góðs af Schmeichel-nafninu.
Ashley Young
Náði sér ekki á strik með Villa
eftir að hafa verið keyptur
dýrum dómum frá Watford í
fyrra. Er hins vegar að nálgast
formið sem hann var í upp á
sitt besta hjá Watford.
Gríðarlega fljótur leikmaður
sem einnig getur skorað mörk.
Síðustu fimm viðureignir
Middlesbrough 1–0 Birmingham
Birmingham 0–3 Middlesbrough
Birmingham 2–0 Middlesbrough
Middlesbrough 2–1 Birmingham
Middlesbrough 5-–3 Birmingham
Síðustu fimm viðureignir
Reading 6–0 West Ham
West Ham 0–1 Reading
Reading 3–1 West Ham
West Ham 1–0 Reading
Reading 2–0 West Ham
Síðustu fimm viðureignir
Bolton 1–1 Everton
Everton 1–0 Bolton
Everton 0–4 Bolton
Bolton 0–1 Everton
Bolton 3–2 Everton
Síðustu fimm viðureignir
Liverpool 2–0 Derby
Derby 0–1 Liverpool
Liverpool 1–1 Derby
Derby 0–4 Liverpool
Derby 0–2 Liverpool
Síðustu fimm viðureignir
Wigan 1–0 Newcastle
Newcastle 2–1 Wigan
Newcastle 3–1 Wigan
Wigan 1–0 Newcastle
Wigan 1–0 Newcastle
Síðustu fimm viðureignir
Man.Utd 0–0 Sunderland
Sunderland 1–3 Man.Utd
Man.Utd 2–1 Sunderland
Sunderland 1–1 Man.Utd
Man.Utd 4–1 Sunderland
Síðustu fimm viðureignir
Portsmouth 0–0 Arsenal
Arsenal 2–2 Portsmouth
Portsmouth 1–1 Arsenal
Arsenal 4–0 Portsmouth
Arsenal 3–0 Portsmouth
Síðustu fimm viðureignir
Blackburn 2–0 Manchester City
Manchester City 0–3 Blackburn
Blackburn 4–2 Manchester City
Blackburn 2–0 Manchester City
Manchester City 0–0 Blackburn
Síðustu fimm viðureignir
Aston Villa 0–0 Chelsea
Chelsea 4–0 Aston Villa
Chelsea 1–1 Aston Villa
Aston Villa 1–1 Chelsea
Chelsea 2–1 Aston Villa
SÍÐUSTU LEIKIR SPÁ DV STAÐANFYLGSTU MEÐ ÞESSUM