Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2007, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2007, Blaðsíða 37
DV Helgarblað föstudagur 31. ágúst 2007 37 skráð markmiðverða að veruleika leiðinlegu á vinnustað, segir það bara upp og ræður sig í vinnu á öðrum stað. Fer af reit A yfir á B yfir á C og svo framvegis. Og þetta er ekki bara mín skoðun. Ég heyri þetta hjá við- skiptavinum mínum sem margir reka stór fyrirtæki. Ég er núna með menn frá Póllandi, Úganda, Serbíu, Rúm- eníu og Marokkó. Mér er alveg sama hvaðan fólk kemur, hvað ahúðlit það hefur eða hverrar trúar það er. Ef fólk er duglegt og jákvætt vil ég hafa það í kringum mig.“ Gerði samning við eiturlyfjabarón Hann trúir því líka að karma teng- ist híbýlum fólks. „Ég átti íbúð hérna ofar á Lauga- veginum, þar sem var slæmt karma í gangi. Það var fíkniefnasala í húsinu, ég kærði, fékk á mig handrukkara og innbrotsþjóf og öllu stolið úr íbúð- inni. Lögreglan ráðlagði mér að kæra ekki þjófnaðinn, því þá væri ég bara að kalla yfir mig enn verri hluti. Ég fór bara og talaði við yfirmann fíkniefna- sölunnar, „the drug lord“, samdi við hann að ég myndi flytja út og fá gott fólk sem hann mætti ekki hrófla við í íbúðina og þetta gekk allt eftir. Þeg- ar ég ákvað svo að kaupa Bónstöðina gerðist það einhvern veginn sjálfkrafa að íbúðin seldist og borgaði upp Bón og þvott... Svona virkar karma!“ Áfengissali Falleg miðaldra hjón á næsta borði eru farin að brosa að þessum glaðværa unga manni. Ragnar gefur sig á tal við þau og þau segjast vera frá Hollandi. Áður en ég veit af hef ég misst viðmælanda minn ofan í kort af Reykjavík og hann er farinn að merkja með X-um við hvernig þau komist á þann stað sem þau stefna á. „Var ég búinn að segja þér að ég er líka áfengisheildsali?“ spyr hann allt í einu. „Ég keypti áfengisheildsölu í einhverju bríeríi í ársbyrjun með vini mínum. Þá keypti ég líka húsnæði á Höfða með mörgum herbergjum til útleigu, en seldi það svo öðrum fjár- festum. Mér líður svolítið eins og skattheimtumanni ríkisins í þessari áfengissölu!“ segir hann brosandi. „Álögur, tollar og gjöld á áfengi er svo gríðarlegt að maður þarf að selja þetta í brettavís til að það borgi sig. En við eigendurnir höfum haldið mörg góð partý í því skyni að kynna vínið!!!!“ Í lúxus í Brasilíu Sjálfur er hann mikill reglumaður. Reykir ekki, segist þykja bjór góður í hófi en hafi aldrei lent í óreglu né próf- að eiturlyf. „Ég fór sem skiptinemi til Brasilíu og þar var allt í boði en ég hafði vit á að afþakka allt slíkt. Í Brasilíu lærði ég hvað við höfum það gott á Íslandi. Hér er kalda vatnið kalt, heita vatnið heitt, við höfum heilsugæslu og allir hafa þak yfir höfuðið. Ég fór sem Rótarí skiptinemi sem þýddi það að ég átti að dvelja á þremur heimilum á einu ári, en þau urðu reyndar fjögur.Fjórða fjölskyldan bara bauð mér að koma! Í Brasilíu horfði ég upp á sárustu fá- tækt og mesta ríkidæmi sem ég hef séð. Ég bjó fyrst hjá fjölskyldu sem var á mörkum fátæktar og endaði hjá fjöl- skyldu þar sem eldabuska hafði eld- að morgunmatinn minn og mér ekið í skólann af einkabílstjóra. Og þarna sá ég að það er ekkert samasem merki milli peninga og hamingju. Frá þess- um tíma hefur Brasilía verið eftirlæt- is staðurinn minn. Ég ferðaðist mikið, fór til Argentínu og Paragvæ og lærði spænsku og portúgölsku.“ Talaði við Clint Eftir heimkomuna lauk Ragnar stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Kópavogi og þaðan lá leiðin í Ferða- málaskólann. „Ég er því með próf sem ferða- markaðsráðgjafi og hef leyfi til að reka ferðaskrifstofu og skipuleggja ferð- ir,“ segir hann. „Skömmu eftir að ég lauk náminu gerðist ég rekstrarstjóri Paintball á Íslandi og hef verið farar- stjóri með hópa þaðan mörgum sinn- um. Núna er ég mótsstjóri þessa fjöl- mennasta skólamóts landsins. Í fyrra kepptu fimmtán hundruð nemendur og ég á ekki von á færri keppendum núna í október. Paintball er „action leikur“, íþrótt þar sem keppendur fá hermannagalla, grímur fyrir andlitið og skjóta úr nokkurs konar byssu með málningarkúlum í. Þetta hefur þó ekk- ert með hernað að gera og eftir að ég kynntist Paintball, því meira er ég á móti stríði. Þetta er allt annað en að skjóta af byssu...“ Sem þú hefur gert, eða hvað?! „Já, reyndar. Ég lék í myndinni „Flags of our Fathers“ og þar skaut ég af byssu! Og talaði við Clint!“ Sameinaði áhuga á leiklist og ferðalögum Suður-Ameríka heillar Ragnar enn. Fyrir nokkrum árum hélt hann á gamlar slóðir, en þá í þeim tilgangi að kynna Brasilíu fyrir íslenskum sjón- varpsáhorfendum. „Ég gerði sjónvarpsþátt fyrir Skjá- Einn um Rio de Janero, höfuðborgina Brasilíu, kúltúrinn og karnivalið. Þar fékk ég tækifæri til að sameina áhuga minn á ferðalögum og leiklist. Ég á vonandi eftir að gera meira af þessu, en fyrst þarf ég að kynna heillandi heim Suður-Ameríku fyrir vinum mínum. Ég á marga drauma. Einn er að fara á fleiri námskeið í leiklist, aðallega gamanleik, mig langar að gera fleiri sjónvarpsþætti og á eftir að kaupa fleiri fyrirtæki.“ Hverju viltu hafa áorkað þegar þú verður gamall maður og lítur yfir far- inn veg? „Ég hef átt fullkominn dag og ég hef skrifað niður nákvæmlega hvern- ig fullkominn dagur verður þegar ég verð gamall. Ég veit hvar ég ætla að vera og með hverjum. En ég vil fá að ítreka að hamingjan kemur að innan. Það fer eftir viðhorfi fólks gagnvart líf- inu hvernig því líður. Það veikjast all- ir, lenda í peningahremmingum eða einhverjum ógöngum en það kalla ég bara „so what?“ Það sleppur eng- inn við einhverja slæma lífsreynslu. Það þarf bara að læra að horfa ekki á vandamálið heldur lausnirnar.“ Auk Suður-Ameríku eru aðrir stað- ir sem heilla Ragnar. Á einum þeirra ætlar hann að búa seinna í lífinu. „Ég er mjög skotinn í Ítalíu og þangað fer ég alltaf í vikufrí eftir Pa- intball mótið í Svíþjóð. Á Íslandi finnst mér fallegustu staðirnir vera Vestfirðirnir og Hafnarfjörðurinn. Ég ætla að flytja til Hafnarfjarðar þegar ég kaupi einbýlishúsið. En fyrst ætla ég að kaupa íbúðina sem ég sá fyrir ári. Daginn sem verðið á henni lækk- ar verður hún mín! En þann dag sem íbúðin sem maður býr í er stærsta fjárfestingin manns, er maður í vond- um málum fjárhagslega séð.“ Og með þessu meinarðu hvað? „Húsnæðið sem við búum í er kostnaður. Ef maður á hins vegar íbúð sem maður leigir út og skilar arði – eða fyrirtæki sem skilar arði, erum við að tala um allt annan hlut En þessi fjármálapæling er tilefni í heilt viðtal út af fyrir sig. Ég mæli með fyrir áhugasama að kynna sér bókina; Ríki pabbi fátæki pabbi eftir Robert Kiyosaki – sem er ein bók af mörgum í samnefndri bókaseríu um fjármálalæsi.“ Má aldrei gleyma að þakka Hvað eru margar klukkustundir í sólarhringnum hjá þér? „Tuttugu og fjórar eins og hjá Bill Gates, Donald Trump og öllum öðr- um. Ég skipulegg mig bara vel og hef skrifað í dagbók hvað ég ætla að gera á hverjum degi alveg frá því ég var í grunnskóla. Líkurnar á að mað- ur gleymi einhverju þegar maður á svona bók eru hverfandi!“ Ertu alltaf svona jákvæður? „Já, ég er jákvæður 98% af tíman- um. Ég byrja helst hvern dag á að lesa eitthvað, kannski bara eina eða tvær blaðsíður. Að lesa eitthvað uppbyggi- legt að morgni dags færir mann nær markmiðunum,“ segir hann. „En það má aldrei gleyma að þakka fyrir það sem maður hefur nú þegar.“ Takk fyrir mig.“ annakristine@dv.is „Hamingjan kemur að innan. Það fer eftir viðhorfi fólks gagnvart lífinu hvernig því líð- ur. Það veikjast allir, lenda í peningahremmingum eða einhverjum ógöngum en það kalla ég bara „so what?“ Það sleppur enginn við einhverja slæma lífsreynslu. Það þarf bara að læra að horfa ekki á vandamálið heldur lausnirnar.“ D V m yn d: S te fá n Ka rls so n.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.