Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2007, Page 39
DV Helgarblað
bætir við : „Það var í rauninni ekkert
svona sérstakt þrykk á þeirra fatn-
aði.“ Verslanir H&M hafa alltaf ver-
ið með veglega markaðssetningu og
flottar auglýsingaherferðir þegar nýj-
ar fatalínur eru kynntar og má búast
við einhverju svipuðu þegar íslenska
fatalínan er væntanleg í verslan-
ir. „Þetta er náttúrulega frekar stórt
dæmi og ég veit að þeir ætla að gera
einhvern flottan viðburð úr þessu.
Kynningarpartíið verður líklegast í
Stokkhólmi þó við myndum óska
þess að fara og kynna þetta í hverri
borg en geðveikast væri náttúrulega
ef að Steed Lord myndu fara eitthvað
út og spila í kynningarpartíinu en
þetta á allt eftir að koma betur í ljós,“
segir Sara.
Bjóst aldrei við þessum
vinsældum
Þrátt fyrir að Nakti apinn hafi
ekki verið til í nema rúm tvö ár hef-
ur verslunin getið sér gríðarlega gott
orð hérlendis sem og erlendis og má
segja að með því að koma hönnun
sinni í sölu í H&M sé um ákveðin
tímamót að ræða hjá íslenskri versl-
un. „Ég hefði aldrei búist við þessu
þegar ég opnaði verslunina mína
með fjórar flíkur hangandi á einni
klifurgrind. Ég hef samt alltaf vitað
hvert ég ætlaði mér með þetta en
datt aldrei í hug að búðin yrði svona
vinsæl. Ég ákvað bara að gera það
sem mér fannst flott og bjóst alveg
við því að öllu þessu tískuliði myndi
ekkert finnast þetta flott og jafnvel
að fólki fyndist þetta eitthvað væm-
ið og pínu hallærislegt “ segir Sara en
alltaf er nóg að gera í kringum versl-
unina. „Við erum að fara til San Di-
ego að sýna í næstu viku þar sem við
verðum með svona sýningarbása
með fötunum okkar og svo förum við
til Parísar á sýningu í október,“ bætir
hún við.
Gerðist allt mjög hratt
Steed Lord er að sama skapi frek-
ar ung hljómsveit sem hefur einung-
is verið starfandi í eitt og hálft ár og
samanstendur af þremur bræðrum,
þeim Erling, Eðvard og Einari, auk
söngkonunnar Svölu Björgvinsdóttur
sem einmitt er kærastan hans Einars.
„Ég bjó úti í Svíþjóð svo ég kom að-
eins seinna inn í hljómsveitina. Það
er ótrúlegt að hugsa til þess að þeg-
ar ég flutti heim henti ég bara upp
stúdíói og gerði eitt lag með Steed
Lord og áður en ég vissi af var ég,
sem hafði verið brjálaður gangster-
rappari, byrjaður að gera elektrótón-
list og kominn í þröngar gallabuxur í
staðinn fyrir víðu hip hop-buxurnar,“
segir Elli sem fluttist til Svíþjóðar til
að læra að tattúvera. „Það er líka allt
búið að gerast mjög hratt hjá okkur.
Við erum búin að vera að spila mjög
mikið erlendis bæði í klúbbum og á
tónlistarhátíðum, til dæmis á Glo-
bal Gathering sem er stærsta dans-
hátíð í Evrópu og um daginn vor-
um við í Kaupmannahöfn að spila á
tónlistarhátíð sem fór framan utan-
dyra. Það voru fullt af plötusnúðum
og nokkrar hljómsveitir að spila þar
en við vorum aðalbandið og gerðum
allt vitlaust,“ segir hann og bætir við
að breiðskífa frá sveitinni sé vænt-
anleg í kringum mánaðamótin okt-
óber nóvember. „Platan er tilbúin og
við munum fylgja henni vel eftir með
tónleikum hér heima og erlendis en
við höfum þegar fengið mjög marg-
ar eftirspurnir um að spila úti. Það
er komið nafn á hana sem er samt al-
gjört leyndarmál,“ segir Elli en sveitin
er að fara að spila á sérstöku Kitsune-
kvöldi á Gauknum í kvöld, föstudag,
ásamt tveimur plötusnúðum og eig-
endum Kitsune sem er eitt stærsta
elektróplötufyrirtæki í Frakklandi.
Starfar í London
Grafíski hönnuðurinn Siggi Egg-
erts er búsettur í London að svo
stöddu þar sem hann er með vinnu-
stofu í Egg Building en áður starfaði
hann á vinnustofu Atla Hilmarsson-
ar. Siggi hefur getið sér gott orð fyr-
ir verk sín og hannaði meðal annars
heimasíðuna fyrir Nakta apann. „Ég
hef alltaf verið að reyna að fá Sigga til
að hanna eitthvað fyrir mig í Nakta
apann en hann hefur alltaf verið svo
hræddur um að ég myndi algjörlega
rugla upp hönnuninni hans með ein-
hverjum brjálæðislega neonbleik-
um og grænum litum en hann er
mjög stílhreinn,“ segir Sara og hlær.
„Ég væri alveg ógeðslega spennt að
vinna með honum því hann er mjög
klár í því sem hann er að gera og
myndu margir segja að hann sé einn
af okkar bestu grafísku hönnuðum.
Það er því aldrei að vita hvað gerist,
ég mun allavega aldrei gefast upp,“
segir Sara.
Götutískan verður vinsælli
Umræðurnar færast brátt út í götu-
tískuna sem hefur notið mjög vax-
andi vinsælda upp á síðkastið og er
einkennandi fyrir fatnað Nakta apans
og þá hönnun sem krakkarnir gerðu
fyrðu H&M. Aðspurð hvort þau haldi
að vinsældir götutískunnar fari ekki að
minnka á næstunni eru þremenning-
arnir öll sammála um að svo sé ekki.
„Þvert á móti held ég að götutískann
sé bara að verða vinsælli. Ég var að lesa
að það hefði verið geðveik sprengja á
Bandaríkja- og Japansmarkaði í götu-
tískunni og að vinsældirnar aukist með
ári hverju. Ég held að því fylgi líka að
þetta eru þægileg föt en samt mjög kúl
og í tísku,“ segir Sandra og Sara bæt-
ir því við að götutískan þyki kannski
ekki jafnýkt og hér áður fyrr. „Ég held
að fólkinu sem fannst einu sinni al-
veg ótrúlega ýkt að klæðast einhverri
peysu úr Nakta apanum finnist það
bara mjög beisik í dag.“
Spennt að sjá útkomuna
Sara, Elli og Sandra segjast öll
vera mjög spennt að sjá hvernig
hönnunin komi út en þau eru búin
að senda allt frá sér og sýnishorn af
fatnaðinum eru væntanleg til lands-
ins á næstunni. „Við erum bara að
bíða eftir sýnishornunum en þau eru
bara á leiðinni til landsins í þessum
töluðu orðum,“ segir Elli og bætir
því við að þau séu búin að fá sendar
myndir af fötunum eins og þau komi
endanlega til með að líta út. „Mér
sýnist þetta bara vera algjörlega eins
og við vildum öll hafa þetta og þetta
lítur bara allt saman mjög vel út,“
segir hann að lokum. Þeim sem vilja
kynna sér betur stíl hönnuðanna er
bent á vefsíðurnar myspace.com/
steedlord, dontbenaked.com og van-
illusaft.com. krista@dv.is Dansrá› Íslands | Faglær›ir danskennarar Borgartún 6 | 105 Reykjavík | sími 553 6645 | fax 568 3545 | dans@danskoli.is | www.dansskoli.is
VI‹ BJÓ‹UM
UPP Í DANS
Innritun og
uppl‡singar
í síma 553 6645
e›a á dansskoli.is
Mambó
Tjútt
Freestyle
Break
Salsa
Brú›arvals
Barnadansar
Samkvæmisdansar
Sérnámskei› fyrir hópa
N‡justu tískudansarnir
Börn – Unglingar – Fullor›nir
Yfir 100 námskeið fyrir fólk í atvin
nulífi á Íslandi
www.idan.is
Nýr námsvísir
kominn út
þín menntun - þinn frami
idan@idan.is - www.idan.is
ÍSLENSKIR HÖNNUÐIR
HANNA FYRIR H&M
Hljómsveitin Steed Lord Hannaði neonmynstur fyrir H&M.