Félagsbréf - 01.01.1955, Side 30
Fyrstu bœkur Almenna bókafélagsins
GRÁT, ÁSTKÆRA FÓSTURMOLD
eftir Alan Paton.
Alan Paton er Suður-Afríkumaður af enskum ættum. Hann er
fæddur í Natal árið 1903. Ættfólk hans var heittrúað, og hefur
hann orðið fyrir sterkum og varanlegum áhrifum frá kristinni trú.
Á yngri árum stjórnaði Alan Paton betrunarhúsi fyrir unga
afbrotamenn í Suður-Afríku. Hann kom því þá til leiðar, að tekin
var upp ný og mildari meðferð sakamanna við stofnun hans og
varð um leið fyrir erfiðleikum, sem venjulega fylgja slíkum nýj-
ungum, en sigraðist á þeim. Ætlun hans var að reyna að koma á
sams konar endurbótum í öllum fangelsum Suður-Afríku, en áður
en það kæmi til framkvæmda, brauzt stríðið út.
Eftir styrjöldina fór Alan Paton í ferðalag til Norðurálfu og
Ameríku, einkum í því skyni að kynna sér, hvernig refsimálum
væri þar háttað. Mun honum hafa þótt mikið til koma, hversu
þessum málum var skipað á Norðurlöndum.
Á leið frá Stokkhólmi til Þrándheims fékk hann fyrst hugmynd-
ina að skáldsögu sinni, Grát, ástkæra fósturmold, eða Cry, the he-
loved country, eins og hún heitir á frummálinu. Hann lauk við að
skrifa þessa bók á þremur mánuðum, og nokkuð af þeim tíma var
hann þó á ferðalagi. Þetta var fyrsta skáldsaga hans, og kom hún
út í Ameríku síðla hausts 1948 og þar næst í Englandi, en hefur
síðan verið þýdd á fjölmörg tungumál og hvarvetna notið almenn-
ings hylli. Kvikmynd og leikrit hefur verið gert eftir sögunni.
Söguefnið er sótt í endurminningar og reynslu höfundarins á
bernsku- og æskudögum og síðar frá starfsárum hans, og lýsir
hún hinum hörmulegu örlögum blökkumannanna í Suður-Afríku
nú á dögum.
Kjarni bókarinnar eða boðskapur hennar birtist í gömlum