Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.2007, Page 11
Bikarinn fór í Hermann Hreiðarsson getur ekki reimað á sig takkaskó þessa dag-ana án þess að skora. Eyjamaður-inn skeiðaði upp vinstri vænginn og
skoraði annað mark sitt í jafnmörg-
um leikjum þegar Portsmouth sigr-
aði Fulham 2-0. Arsenal heldur efsta
sæti ensku úrvalsdeildarinnar eft-
ir leiki helgarinnar. Steve McClar-
en, landsliðsþjálfari Englendinga,
var meðal þeirra áhorfenda í New-
castle sem sáu Michael Owen skora
níu dögum eftir að hann gekkst und-
ir aðgerð vegna meiðsla í nára. Fern-
ando Torres kom í veg fyrir að Liver-
pool tapaði sínum öðrum heimaleik
í vikunni þegar hann jafnaði gegn
Tottenham í uppbótartíma. Að sama
skapi virðist Tottenham ekki geta
haldið forystu. Manchester United
hætti loks að skora eitt mark í leik og
skoraði fjögur gegn Wigan, sem var
heppið að fá ekki á sig fleiri. Chelsea
vann sinn fyrsta deildarleik undir
stjórn Avrams Grant þegar liðið lagði
Bolton 1–0. Liðið hafði ekki unnið
í deildinni síðan í lok ágúst og ekki
skorað í tæpar átta klukkustundir.
Manchester City heldur áfram á sig-
urbraut en liðið vann Middlesbrough
3-1 í Manchesterborg.
Blackburn reif sig upp eftir von-
brigðin í UEFA-bikarnum í vikunni
og sigraði Birmingham 2–1. David
Bentley og Benni McCarthy skoruðu
mörk Rovers. Craig Gardner skoraði
sitt annað mark í vikunni fyrir Aston
Villa þegar hann skoraði sigurmark-
ið gegn West Ham. Markið skoraði
Gardner úr glæsilegri aukaspyrnu.
enski
Arsenal hefur ekki tapað í 10 leikjum í röð og er efst í deildinni.
Robin van Persie skoraði gull af marki.
enn skorar
hermann
Íslendingarnir
stóðu sig vel um
helgina og voru í
sigurliðum.
boltinn
tryggingar hf.
tryggingar hf.