Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.2007, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.2007, Blaðsíða 24
mánudagur 8. október 200724 Fókus DV á þ r i ð j u d e g i í kvöld TekjuhæsTa Tónleikaferðin nú hefur verið reiknað út hversu mikið hljómsveitin Rolling StoneS græddi á BiggeR Bang-tónleikaferðalaginu sem hófst árið 2005 og lauk í ágúst síðastliðnum. túrinn kom hljómsveitinni í heimsmetabók guinness. Heildarinnkoma tónleika- ferðalagsins var tæplega fimm hundruð og sextíu milljónir dollara sem samsavar- ar um þrjátíu og fjórum milljörðum íslenskra króna. Skrípalæti í helgidómnum stórsveit samma í tónleikaferð Stórsveit Samúels Jóns Samúlsson- ar (Samma í Jagúar) leggur af stað í stutta tónleikaferð um landið á miðvikudaginn sem stendur fram á sunnnudag. Fyrsti viðkomustað- urinn er Domo á djassklúbbnum Múlanum í heimasveitinni Reykja- vík. Á fimmtudag spilar hljóm- sveitin í framhaldsskólanum á Grundarfirði, daginn eftir á Græna hattinum á Akureyri, Herðubreið á Seyðisfirði er tónleikastaður laugardagskvöldsins og lokatón- leikarnir fara svo fram í Rauða húsinu á Eyrarbakka. Geisladiskur sveitarinnar, Fnykur, hefur fengið frábæra dóma og er nú uppseldur hjá útgefanda en nýtt upplag er á leiðinni til landsins. Blaða·maður KK • starfsmaður blaðs, sá sem hefur atvinnu af að skrifa í blöð - Íslensk orðabók „Ég heiti Sigurjón M. Egilsson og er ritstjóri DV. Mér er ekki sama hvernig fjölmiðlum er stjórnað eða hvernig fréttir þeirra eru unnar. Sjálfstæði, kjarkur og sanngirni skiptir öllu hjá fjölmiðli eins og DV. Fólk á skilið dagblað sem talar þeirra máli. Ég tala þínu máli.“ Talar þínu máli F í t o n / S Í A sýningar haustsins í MÍR Rétt er að vekja athygli á kvik- myndasýningunum sem fara fram í MÍR-salnum við Hverfisgötu alla sunnudaga í haust. Myndirnar sem sýndar verða eru eins og oftast áður úr ýmsum áttum; heimildarmyndir um afrek Sovétmanna á sviði geim- vísinda, leiknar myndir byggðar á vísindaskáldsögum, sex verðlauna- myndir sem sækja efni til Förður- landsstyrjaldarinnar miklu og loks verða sýndar tvær ballettmyndir á jólaföstu. Næsta sunnudag verður sýnd hin fræga mynd Andrejs Tar- kovský, Solaris. Nánari upplýsingar um dagskrána er að finna á mmed- ia.is/felmir. ævar Örn gerir víðreist Glæpasögur eftir Ævar Örn Jóseps- son gera víðreist um þessar mund- ir en bækur hans komu út í Þýska- landi, Danmörku og Svíþjóð í lok september. Að því er fram kemur á heimasíðu Uppheima, sem gefur út bækur Ævars, er höfundurinn sjálfur líka á flandri. Í lok október verður hann gestur á mikilli glæpasagnahátið í Berlín (Krimi- tage Berlin) ásamt fleiri íslenskum glæpasagnahöfundum. Þann 11. nóvember áritar Ævar Örn síðan nýútkomna Svarta engla á sænsku og les upp í stærstu bókabúðinni í Helsingborg. Íslenska óperan sækir fram og tekur áhættu. Britten og Stravinsky hafa nýverið hljómað í Gamla bíói, nú er röðin komin að Richard Strauss sem ekki hefur heldur verið talinn til léttari klassíkera. Þeir, sem vilja ekki hafa neina framúrstefnu í Íslensku óperunni, eru tæpast mjög kátir, en geta alltént huggað sig við að Verdi er næstur á dagskrá. Ariadne auf Naxos er sérkennileg ópera. Hún er eins konar blanda af gamanóperu, opera buffa, og hefðbundinni óperu, opera seria. Þetta er djörf list- ræn tilraun og má kannski deila um það hversu vel hún hafi tekist frá hendi þeirra Strauss og librettist- ans, Hugos von Hofmannsthals. Sá síðarnefndi var raunar frægt leikritaskáld á sinni tíð, þó að leik- ir hans séu sjaldséðir nú. Einn þeirra, Jedermann, byggður á kunnum miðaldaleik, rataði meira að segja. á sviðið í Iðnó fyrir áttatíu árum; spurning hvort hann sé dauður úr öllum æðum enn. Sam- starf þeirra Strauss og Hofmansthals var afar frjótt, en frægust af óperum þeirra er sjálfsagt Der Ros- enkavalier, þó að ekki hafi hún orðið fyrir valinu að þessu sinni. Ariadne auf Naxos skiptist í tvo hluta: eins kon- ar forleik og svo óperuna sjálfa sem er langur ein- þáttungur – á köflum satt að segja ansi langur. For- leikurinn fer fram að tjaldabaki; þar eru söngvarar að undirbúa sig, listrænir stjórnendur og svo tón- skáldið sjálft sem er ungt og metnaðarfullt. Sýning- in á að fara fram í húsi auðkýfings nokkurs sem ætl- ar að skemmta gestum sínum með henni. Í þessum forleik skýrist hvers vegna aðalóperan er svo kynleg sem raun ber vitni. Ekkert er ókeypis, segja frjálshyggjumennirn- ir, ekki heldur listin, það þarf alltaf einhver að taka upp veskið. Og sá sem borgar getur sett ýmis skil- yrði. Þarna er sem sé líka mættur gamanleikflokk- ur, úr hinni ítölsku commedia dell‘arte-hefð og nú heimtar ríki kallinn, patróninn, að alvöruóperan sé flutt um leið og gamanleikurinn. Allt kemst í upp- nám, tónskáldið unga ætlar að vera með einhverja stæla, en hann er talaður til af reyndari mönn- um; að lokum reyna menn að finna einhverja leið út úr þessari klemmu. Afraksturinn er seinni hluti kvöldsins, hin eiginlega ópera um Ariadne. Ariad- ne er fræg persóna úr goða- og hetjufræði Grikkja, hún verður fyrir því að maðurinn sem hún elskar og fórnar öllu fyrir, hafnar henni og skilur hana í ofan- álag eftir á eyðiey. Hún leggst í þunglyndi, en lifnar að lokum öll við þegar Bakkus sjálfur kemur í heim- sókn og ástin kviknar á ný. Í Gamla bíói situr hún að vísu eftir á sviðinu þegar guðinn svífur á brott. Hinn þýski leikstjóri sýningarinnar, Andreas Franz, hefur greinilega ekki viljað láta þetta enda eins vel og höfundar óperunnar; hvers vegna skil ég ekki. Af hverju mega leikrit – og alveg sérstaklega óperur – ekki bara enda vel?! Það er tæpast með öllu vandalaust að gera þetta verk sannfærandi í augum nútímaáhorfenda. Grunnhugmynd þess virðist sú að tefla upphafinni óperuhefð gegn jarðbundinni kómík; þar liggja vísast að baki djúpar hugsanir um hið tragíska og kómíska sem klassíkin vildi halda aðskildu, en efa- gjarn og tilraunaglaður nútíminn hefur fremur vilj- að hrista saman. Andreas Franz fer í sviðsetningu sinni þá leið að leggja mikla áherslu á dekadans- inn, úrkynjunina, sem löngum hefur verið tengd fyrri aldamótunum; en ég átta mig ekki alveg á því að sú nálgun varpi skýrara ljósi á hugmyndir verks- ins. Leikstjórinn kýs einnig að setja óperuna sjálfa upp paródískt sem ég hef ekki séð gert áður og mér finnst ekki virka sérlega vel; þó að margir leik- enda standi sig bráðvel og einstakir leikpartar verði skoplegir, og salurinn hlæi oft og einatt, þá verður þessi skrípagangur fremur leiðigjarn þegar á líður. Ég hygg líka að þessi túlkunarmáti hefti söngfólk- ið, einkum þau sem fara með hlutverk Ariadne og Bakkusar, Hönnu Dóru Sturludóttur og Kolbein Jón Ketilsson. Hanna Dóra náði sér ekki verulega á strik fyrr en undir lokin, söng þá glæsilega, en Kolbeinn Jón, sem er auðvitað einn af okkar allra fremstu söngvurum var ekki í toppformi á frumsýningunni, að mér skilst vegna lasleika. Það heyrðist vissulega og vonandi syngur hann betur á næstu sýningum. Þó að karlhlutverkin séu hér fleiri að tölu er Ari- adne mikil kvennaópera; auk Hönnu Dóru eru þær Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og Arndís Halla Ás- geirsdóttir í veigamestu hlutverkunum. Þær standa sig báðar mjög vel, bæði leik- og sönglega. Arndís Halla sveiflaði sér fimlega í kröfuhörðum kolórat- úrum Zerbinettu, sem er fulltrúi hinnar holdlegu ástar og finnst ekki tiltökumál að skipta um ást- menn, andstætt Ariadne sem trúir bara á hina einu sönnu ást. Guðrún Jóhanna, sem fer með hlutverk tónskáldsins, vakti sérstaka athygli fyrir óþvingaða og lipra sviðsframkomu. Tónskáldið er karlmað- ur en hlutverkið skrifað fyrir sópran, þetta er sem sé buxnarulla svokölluð, eins og Strauss var svo spenntur fyrir. Hér er söngkonan færð í svart pils sem mér finnst skrýtið, því að Guðrún Jóhanna hef- ur líkamsvöxt og strákslegt yfirbragð sem hefði átt að geta notið sín vel, miklu betur en þegar bringu- breiðar óperudívur eru settar í hlutverkið. Karlsöngvararnir skiluðu sínum hlut einn- ig undantekningalaust vel; ástæðulaust að taka neinn þeirra út úr. Sömuleiðis aðrar söngkonur. Og Ingvar E. Sigurðsson var ágætur í allstóru talhlut- verki. Hann talar á íslensku, en söngvararnir svara á þýsku; þetta var svolítið skrýtið fyrst, en vand- ist fljótt. Umgerð sýningarinnar, búningar, ljós og sviðsmynd, er litskrúðug; sviðið með klassísku yfir- bragði en í baksýn myndverk með vísun í symból- ista og dekadenta. Undirtektir áhorfenda voru góðar og mikið klappað í lokin. Ég hygg að fögnuðurinn hafi þó fremur beinst að frammistöðu flytjenda, söngv- ara jafnt sem hljómsveitar, en áhrifamætti leiksins í heild. Sú leið, sem leikstjórinn fer, orkar, þegar upp er staðið, of yfirborðslega. Klisjukennd lýsing úrkynjaðs umhverfis og kómíkin í sviðsetningunni hafa ekki nógu djúpar rætur í verkinu sjálfu. En kannski er verkið bara ekki nógu vel heppnað, þó að þéttofinn tónavefur Strauss sé að vanda tilkomu- mikill og á köflum hrífandi melódískur. Íslenska óperan: ariadne auf naxos eftir Richard Strauss og Hugo von Hoffmansthal Leikstjóri: andreas Franz Hljómsveitarstjóri: kurt kopecky Leikmynd: axel Hallkell Jóhannesson Búningar: dýrleif Ýr Örlygsdóttir/ margrét einarsdóttir Lýsing: björn bergsteinn guðmundsson HHHHH leikdómur Jón Viðar Jónsson leiklistargagnrýnandi „Klisjukennd lýsing úrkynjaðs umhverfis og kómíkin í sviðsetningunni hafa ekki nógu djúpar rætur í verkinu sjálfu.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.