Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.2007, Blaðsíða 27
Leatherheads
seinkar
Ákveðið hefur verið að seinka
frumsýningu nýjustu myndar George
Clooney, Leatherheads, um fjóra
mánuði. Ástæðan er sögð vera
hversu önnum kafinn Clooney er en
enn á eftir að skjóta nokkur atriði.
Upphaflega átti að frumsýna
myndina 7. desember en nýja
dagsetningin er 4. apríl 2008. Óhætt
er að segja að kvennagullið Clooney
sé allt í öllu í myndinni þar sem hann
leikstýrir, skrifar handritið (reyndar í
félagi við annan) og leikur aðalhlut-
verkið. Leatherheads er rómantísk
gamanmynd sem gerist á þriðja
áratug 20. aldar og segir frá eiganda
liðs í ameríska fótboltanum sem
verður ástfanginn af unnustu eins
leikmannsins.
Allt lítur út fyrir að Vin Diesel muni leysa Arnold Schwarzenegger af í hlutverki tortímandans:
VIN DIESEL NÆSTI TERMINATOR?
Framleiðendur Terminator 4
eiga nú í samningaviðræðum við
hinn eitilharða Vin Diesel um að
hann taki að sér hlutverk tortím-
andans í myndinni. Eftir að Arn-
old Schwarzenegger snéri sér að
pólitík og var kosinn ríkisstjóri
Kaliforníu hefur hann hætt kvik-
myndaleik. Því þurfa framleið-
endur Terminator 4 að finna stað-
gengil og lítur allt út fyrir að Diesel
verði maðurinn. Áður en Dies-
el kom til sögunnar hafi Dwayne
„The Rock“ Johnson verið sterk-
lega orðaður við hlutverkið.
Það er fyrirtækið The Halcyon
sem framleiðir myndina. Ástæða
þess að verið er að leita að nýj-
um tortímanda er ekki einungis
sú að Arnold er bundinn af pólit-
íkinni heldur einnig að fyrirtækið
hyggst gera þrjár myndir í viðbót
er er kappinn orðinn heldur gam-
all í hlutverkið. Terminator 4, 5 og
6 munu allar gerast í framtíðinni
eða eftir að heiminum hefur verið
rústað með kjarnavopnum. áfram
verður John Connor aðalpersóna
myndanna en í þeim verður hann
orðinn fullorðinn maður sem
leiðir frelsishreyfinguna í stríði
gegn vélmennunum.
James Middleton, framleið-
andi sjónvarpsþáttanna The
Sarah Connor Chronicles sem
eru byggðir á Terminator-mynd-
unum, segir að fjórða myndin
verði án efa gerð. Michael Ferris
og John D. Brancato muni skrifa
handritið en þeir skrifuðu hand-
ritið að þriðju myndinni. Ekki er
ljóst hvort Nick Stahl eða Claire
Danes muni snúa aftur í hlutverk
sín.
Frí prufa af
Manager 2008
Tölvuleikjaframleiðendurnir SEGA
og Sports Interactive hafa tilkynnt að
Football Manager 2008 sé tilbúinn til
framleiðslu. Leikirnir hafa verið þeir
allra vinsælustu undanfarinn áratug
og virðist ekkert lát vera á því. Prufa
af leiknum var gefin út á sunnudag-
inn í síðustu viku og var henni hlaðið
niður 250.000 sinnum á tveimur
fyrstu dögunum. Aðdáendur leiksins
geta nálgast prufuna á síðunni
sigames.com en hægt er að ná í tvær
útgáfur hennar, stærri og minni.
Leikurinn kemur út á Íslandi 19.
október.
1000 orð eftir
ósögð
Variety segir frá því að Eddie Murphy
og leikstjórinn Brian Robbins, sem
leikstýrði meðal annars Norbit og
Starship Dave, séu að lenda
samkomulagi um að gera gaman-
myndina A Thousand Words undir
merkjum DreamWorks. Myndin
fjallar um mann sem kemst að því að
hann á aðeins þúsund orð eftir ósögð
áður en hann deyr. Steve Koren, sem
skrifaði meðal annars handritið að
Click og Almighty-myndunum
tveimur, hefur samþykkt að sjá um
handritsskrifin.
mánudagur 8. október 2007DV Bíó 27
FERð ISku hLAuT
guLLNA LuNDANN
„Ég hef verið að vinna að þessari plötu í
tvö ár með tveimur bíómyndahléum og hef
endurgert sum lögin alloft. Ég þyrfti eigin-
lega að gefa út takmarkað upplag með „out-
takes“. Það kemur bara seinna. Eða þegar ég
er dauður,“ segir tónlistarmaðurinn Örn Elías
Guðmundsson, betur þekktur sem Mugison,
sem þessa dagana leggur lokahönd á nýjustu
plötu sína, Mugiboogie. Þetta er þriðja sóló-
plata Mugsions; hinar eru Lonely Mountain
(2003) og Mugimama, Is This Monkey Music?
(2005) sem sló rækilega í gegn. Stefnt er að
því að platan komi út 17. október.
Lúxuskomplex og þrjár teskeiðar af
þunglyndi
Þegar blaðamaður talaði við Mugison á
föstudaginn var hann að reyna að komast að
niðurstöðu um í hvaða röð hann vildi hafa
lögin tólf á plötunni. Hann segir það geta ver-
ið mikinn höfuðverk. „Venjulega þegar ég hef
gert diska hef ég sett lélegt lag á undan góðu
lagi því þá verður góða lagið helvíti gott. Það
er smá vesen með þessa plötu því það eru allt
of mörg góð lög,“ segir Mugison kíminn. „Það
er því svolítið erfitt að raða þessu af því að það
er leiðinlegt ef gott lag skyggir á gott lag. Þetta
er algjör lúxuskomplex. En ég hlýt að lenda
þessu einhvern veginn.“
Að sögn Mugisons er góður slatti af blóði,
svita og tárum í nýju lögunum. „Svo eru
nokkrir aulahrollar, smá væmni og þrjár te-
skeiðar af þunglyndi stráð yfir þetta allt sam-
an,“ segir Mugison. En allt í einu er eins og
tónlistarmaðurinn hafi ekki mikla trú á plöt-
unni þegar blaðamaður spyr hvort þetta sé
hans besta efni hingað til. „Nei, ég hugsa að
hinar tvær séu betri,“ segir hann og hlær dátt.
Reiðhjól og orrustuflugvél
Mugison hefur gert tónlist fyrir þrjár kvik-
myndir: Niceland, Little Trip to Heaven og
Mýrina. Hann segir mikinn mun á þeirri
vinnu og að gera sólóplötu. „Ég hugsa að það
sé svipað og munurinn á því að hjóla á reið-
hjóli og fljúga orrustuflugvél. Bíómyndirn-
ar eru þá reiðhjólið. Það er mjög skemmti-
legt að vinna við myndirnar en þetta er miklu
meiri hópíþrótt. Í sólóstöffinu þarf maður að
setja miklu meira í þetta, sérstaklega í texta og
söng því maður gólar eiginlega ekkert í bíó-
myndunum. En ég hef farið að syngja alltaf
meira og meira á plötunum mínum og nýj-
asta platan er nánast ekkert nema söngur.
Það er meira að segja röddun. Ég held bara
að ég sé tekinn við af Bó Hall sem konungur
sjálfraddana.“
Spilar í Bretlandi, Þýskalandi og
Danmörku
Platan var að mestu leyti tekin upp í einka-
stúdíói Mugisons í bílskúrnum hans á Súða-
vík. Eitthvað var þó tekið upp í upptökuveri
Sigur Rósar í Mosfellsbæ. Mugsion sparar
ekki hólið þegar hann segir frá þeim sem spila
með honum á plötunni. „Þetta eru klikkað-
ir hljóðfæraleikarar. Addi og Guðni Finns úr
Spock sjá um bassa og trommur, Davíð Þór er
á hammond, píanó og einhverja synta – hann
er náttúrlega mega snillingur – og svo spilar
Pétur Ben á hellings rafmagnsgítar. Hann er
náttúrlega bara Jimi Hendrix Íslands.“
Stefnan er að taka hring um landið í nóv-
ember til að fylgja plötunni eftir og þá eru tón-
leikar í Bretlandi, Þýskalandi og Danmörku á
teikniborðinu. Ekkert hefur þó verið ákveðið
um útgáfu annars staðar en á Íslandi.
kristjanh@dv.is
ALLT OF MÖRg
gÓð LÖg
Mugison leggur nú lokahönd á sína þriðju sólóplötu:
Vesen? „Það er smá vesen með þessa
plötu því það eru allt of mörg góð lög.“
Dwayne „The Rock“ Johnson
Var orðaður við hlutverkið áður
en diesel kom til sögunnar.
Vin Diesel Verður að öllum
líkindum næsti terminator.