Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2007, Síða 22
Menning
föstudagur 19. október 200722 Menning DV
Dómsdags-
mynd í Þjóð-
minjasafninu
Sýningin Á efsta degi verður
opnuð í Bogasal Þjóðminja-
safns Íslands á morgun kl. 15.
Sýndar verða þrettán fornar og
fagurlega útskornar furufjalir,
nú kenndar við bæinn Bjarna-
staðahlíð í Skagafirði, en munu
upprunalega hafa verið úr
mikilfenglegri dómsdagsmynd
sem prýtt hefur dómkirkju Jóns
helga Ögmundssonar biskups á
Hólum í Hjaltadal. Á sýning-
unni er saga þessara merku
myndfjala rakin og gerð grein
fyrir rannsóknum og kenning-
um fræðimanna í tengslum við
þær. Um er að ræða ómetanleg
menningarsöguleg verðmæti
sem vakið hafa áhuga margra
fræðimanna, allt frá Bólu-
Hjálmari og Jónasi Hallgríms-
syni til sérfræðinga nútímans.
Bækur
Ný útgáfa af víðlesnustu bók heims kemur út í dag:
Ólafur Ragnar tekur við nýrri biblíu
Forseti Íslands, Ólafur Ragn-
ar Grímsson, veitir fyrsta eintaki
hinnar nýju útgáfu Biblíunnar við-
töku fyrir hönd íslensku þjóðarinn-
ar við hátíðlega athöfn í Dómkirkj-
unni í dag. Biskup
Íslands, Karl Sig-
urbjörnsson, sem
jafnframt er forseti Hins íslenska
Biblíufélags, mun afhenda Biblíuna
af hálfu félagsins og JPV útgáfu.
Frá upphafi hefur þýðingarstarf-
ið verið stutt dyggilega af hálfu Al-
þingis og ríkisstjórnar. Í virðingar-
og þakkarskyni fyrir þann stuðning
ganga biskup og forráðamenn út-
gáfunnar yfir í Alþingishúsið að
lokinni athöfn í kirkjunni og af-
henda þar forseta Alþingis, Sturlu
Böðvarssyni, forsætisráðherra, Geir
H. Haarde og dóms- og kirkjumála-
ráðherra, Birni Bjarnasyni, hina
nýju útgáfu að gjöf. Að því loknu
verður haldinn fréttamannafundur
í húsakynnum þingsins.
Unnið hefur verið að þýðing-
unni í rúman hálfan annan
áratug. Þýtt var úr frummál-
unum, hebresku og grísku,
tillit tekið til stíls frumtext-
ans, íslenskrar biblíumáls-
hefðar, þarfa hins almenna
lesanda og notkunar í
helgihaldi kirkju og safnaða. Þetta
er fyrsta heildarþýðing Biblíunnar
sem út kemur á íslensku í hartnær
heila öld, en sú sjötta frá upphafi.
Hin nýja útgáfa er einkar vönd-
uð að allri gerð, með afar aðgengi-
legu letri í tveimur litum,
tímatali, orðaskýringum
og yfirliti yfir mikilvæga
ritningarstaði. Einnig
eru falleg litprentuð kort
yfir sögustaði. Biblían er
prentuð í tveimur stærð-
um, bundin inn á fimm mismun-
andi vegu og er með gylltu sniði og
lesborðum. Bókin verður fáanleg í
bókabúðum frá kl. 12 í dag. Athöfn-
in í Dómkirkjunni hefst kl. 11 og er
öllum opin.
Heimsatlas
21. aldar
Bókin Jörðin í öllu sínu veldi
eftir Douglas Palmer er kom-
in út hjá Máli og menningu.
Í bókinni eru birtar glæsileg-
ustu myndir sem nokkru sinni
hafa verið
teknar af
plánetunni
Jörð, að því
er fullyrt er í
tilkynningu.
Gervitungla-
myndir frá
bandarísku
geimferða-
stofnunni NASA hafa verið
unnar með fullkomnustu tækni
og útkoman er myndaatlas sem
sýnir allt yfirborð jarðarinnar,
verk sem mætti kalla heims-
atlas 21. aldarinnar. Í bókinni
er meðal annars hægt að sjá
hvernig Amazonfljótið streymir
frá upptökum sínum í Andes-
fjöllum til sjávar í Atlantshafi
og hvernig árstíðirnar og veðrið
breyta ásýnd jarðarinnar.
Blótgælur
Ljóðabókin Blótgælur eftir
Kristínu Svövu Tómasdóttur
er komin út hjá Bjarti. Kristín
Svava er tuttugu og tveggja ára
og búsett í Reykjavík. Blótgæl-
ur er hennar fyrsta bók. Krist-
ín hefur meðal annars fengið
verðlaun í ritgerðasamkeppni
framhaldsskólanema um
heimastjórnartímann árið 2004
og hefur skrifað Bakþankap-
istla í Fréttablaðið undanfarin
misseri.
Gjörningaklúbburinn kveður
Nú eru síðustu forvöð að sjá yfirlitssýningu Gjörningaklúbbsins í
Hafnarhúsi sem lýkur á sunnudag. Sýningin hefur notið mikilla vinsælda
og þykir gefa góða yfirsýn yfir þróun hópsins á þeim ellefu árum sem
hann hefur starfað saman. Á sýningunni eru myndbönd af gjörningum,
ljósmyndir, vídeóverk, þrívíð verk, búningar og aðrir munir sem tengjast
ferli hópsins.
Sjón þarf vart að kynna fyrir
nokkrum Íslendingi. Hann hóf rit-
höfundarferil sinn sumarið 1978
með ljóðabókinni Sýnir og á því
þrjátíu ára skáldaafmæli á næsta
ári. Nýja ljóðabókin hans, Söngur
steinasafnarans, er sú tólfta í röð-
inni en Sjón hefur jafnframt skrifað
sex skáldsögur, söngtexta, líbrettó
og kvikmyndahandrit. Hann var
tilnefndur til óskarsverðlauna fyrir
einn söngtexta sinn í kvikmyndinni
Dancer in the Dark og fyrir skáld-
söguna Skugga-Baldur hlaut hann
Bókmenntaverðlaun Norðurlanda-
ráðs árið 2005.
Kennari í Berlín
Á dögunum flutti Sjón tíma-
bundið til Þýskalands þar sem hon-
um bauðst gestaprófessorsstaða við
Freie Universität í Berlín þar sem
hann kennir eitt námskeið um ís-
lenskar og norænar bókmenntir.
„Útgangspunkturinn er mitt höf-
undarverk og hvernig ég hef nálg-
ast bókmenntirnar. Þetta er dálít-
ið skemmtilegt vegna þess að þetta
krafðist þess að ég þurfti að skoða
hvar ég staðset mig annars veg-
ar í bókmenntaheiminum, og hins
vegar hvernig ég upplifi íslenskar
og norrænar bókmenntir og stöðu
JÁTAST
undir einlægniskröfuna
VIÐTAL
Sjón „Það hefur alltaf verið á hreinu
hjá mér að ljóðin koma á sínum
hraða. Nú bara var einhvern veginn
komið að þessu.“
MYND JOHANNES JANSSON/NORDEN.ORG
Í vikunni kom út ný
ljóðabók eftir Sjón, sú
fyrsta í tæpan áratug.
Í viðtali við Kristján
Hrafn Guðmundsson
segir skáldið meðal
annars frá ástæðu
þess að hann sendir
frá ljóðabók á þessum
tímapunkti, dvöl sinni
í Þýskalandi nú á
haustmánuðum þar
sem hann sinnir
kennslu og einstöku
sambandi manna við
steina.