Fréttatíminn - 07.03.2014, Qupperneq 4
Vetrarleikarnir í Hlíðarfjalli
Einar Stefánsson snjó-
brettakappi.
Frá VG til
Dögunar
Þorleifur Gunn-
laugsson, vara-
borgarfulltrúi
Vinstri grænna,
mun leiða
lista Dögunar í
borgarstjórnar-
kosningunum í
Reykjavík í vor.
Uppstillingar-
nefnd lagði fram
tillögu um skipan
átta efstu sæta á
listanum og var
hún samþykkt
samhljóða. Í öðru
sæti er Ása Lind
Finnbogadóttir
framhaldsskóla-
kennari og því
þriðja Salmann
Tamimi tölvunar-
fræðingur.
Styrkþegarnir í Gerðarsafni.
Listamenn í Kópavogi styrktir
Alls 22 listamenn og hópar fengu styrk úr lista- og menningarsjóði
Kópavogsbæjar fyrr í vikunni, samtals 5,3 milljónir króna. Styrkirnir
voru afhentir við hátíðlega athöfn í Gerðarsafni. Hlutverk lista- og
menningarsjóðs er að auðga menningarlífið í bænum og eru verk-
efnin sem styrkt voru af margvíslegum toga. Má nefna tónleikahald,
barnamenningu, kórastarf, danssýningar og kvikmyndagerð, að því
er fram kemur í tilkynningu bæjarins. Fjöldi umsókna berst lista- og
menningarsjóði á ári hverju og er stærsta úthlutunin úr honum í
upphafi árs en einnig eru veittir svokallaðir skyndistyrkir síðar á
árinu. Í upphafi athafnarinnar söng Karlakór Kópavogs en öflugt
kórastarf er í bænum. Lista- og menningarráð hefur veitt kórunum
rekstrarstyrki á ári hverju og hefur nú ákveðið að gera samning
við kórana um slíka styrki til næstu þriggja ára. Kórarnir eru auk
karlakórsins, Kvennakór Kópavogs, Samkór Kópavogs og Söngvinir,
kór aldraðra. - jh
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
HVessir eftir Hádegi með slyddu, en snjó til
fjalla s- og V-til.
HöfuðborgarsVæðið: ÉL UM MoRGUninn, En
SÍðAn SLAGViRði oG SLyDDA
ágætt um morguninn, en síðan a og na-
stormur með snjókomu a- og n-til.
HöfuðborgarsVæðið: ÚRKoMULAUST, En
SnjóKoMA EðA SLyDDA SÍðDEGiS.
HríðarVerður og HVasst á Vestfjörðum,
norður- og austurlandi.
HöfuðborgarsVæðið: ÚRKoMULAUST Að MESTU,
En ALLHVöSS n-ÁTT.
slæmt á milli landshluta
Sömgöngur á milli landshluta gætu
hæglega raskast um helgina. Síðdegis í
dag, föstudag, hvessir af SV með slyddu á
láglendi en snjókomu hærra uppi. Djúpri
lægð er spáð upp að suðurströndinni á
morgun. Þá gerir A og nA-storm og
víða með snjókomu eða slyddu
annað kvöld, síður þó V-til.
Lægðinni er spáð yfir landið og
snýst í n-átt á sunnudag með
stórhríðarveðri um tíma um
mest allt norðanvert landið.
Horfur á að ekki skáni fyrr en
seint um kvöldið.
2
-1 0
-2
2
1
0 -1 0
2
0
-3 -2 -1
0
einar sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
Vetrarleikarnir, iceland Winter Games, voru settir
í Hlíðarfjalli á Akureyri í gær, fimmtudag. Um er að
ræða alþjóðlega vetrarleika þar sem keppt er í ýmsum
greinum en helst ber að nefna frjálsa aðferð á skíðum
og ýmsar snjóbrettagreinar. Fjöldi erlendra keppenda
tekur þátt í leikunum sem og íslenskir keppendur og má
þar nefna Einar Stefánsson snjóbrettakappa frá Akur-
eyri sem talinn er fremstur í sinni röð hér á landi, að því
er fram kemur í tilkynningu.
„Markmið vetrarleikanna í Hlíðarfjalli er að sýna
og sanna að vettvangurinn er kjörinn til að halda mót
af þessu tagi með það í huga að efla mótið ár frá ári.
Hér er því um að ræða mikilvægan þátt í uppbyggingu
vetrarferðamennsku á norðurlandi og Íslandi almennt,“
segir Davíð Rúnar Gunnarsson, viðburðastjóri hjá Við-
burðastofu norðurlands, sem stendur fyrir Vetrarleik-
unum ásamt skíðastöðunum í Hlíðarfjalli. - jh
Á árinu mun Heilsugæsla höfuð-borgarsvæðisins skera niður um 100 milljónir og segir Svanhvít
Jakobsdóttir, forstjóri stofnunarinnar,
það liggja í hlutarins eðli að þegar búið
sé að skera niður í mörg ár skerðist
þjónustan. „Frá haustinu 2008 höfum við
skorið niður og það kemur við þjón-
ustuna. Við getum ekki búið við minnk-
andi fjárveitingar ár eftir ár án þess að
það komi einhvers staðar niður. Það er
óhjákvæmilegt,“ segir hún.
Innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæð-
isins er nú verið að skoða hvort stytta
eigi opnunartíma síðdegisvaktar en slík
móttaka er rekin á öllum stöðvunum auk
þess sem lækka á kostnað við rannsókn-
ir, sýna aðhald við tækjakaup og fækka
störfum. „Það verður óhjákvæmilega
fækkun starfa hjá okkur, bæði hjá stoð-
þjónustu, hjúkrunarsviði og ritaraþjón-
ustu. „Við munum reyna að ráða ekki inn
vegna barnsburðarleyfa og launalausra
leyfa starfsfólks.“
Hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðis-
ins eru 129 stöðugildi hjúkrunarfræðinga
en frá 2009 til 2013 var þeim fækkað um
10. Á þessu ári verður þeim svo fækkað
um 7,5 til viðbótar og segir Svanhvít
stefnt að því að útfæra fækkunina þannig
að þegar stöður losni verði ekki ráðið í
þær og þannig forðast að fara í beinar
uppsagnir. „Þetta á einnig við um annað
starfsfólk eins og lækna og ritara. Al-
mennt ráðum við ekki í afleysingar, nema
í heimahjúkrun sem við sinnum í Krag-
anum og í móttöku svo hún sé mönnuð
yfir sumartímann.“
Að sögn Ólafs G. Skúlasonar, formanns
Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga,
hafa félaginu borist fjölmargar fyrir-
spurnir frá hjúkrunarfræðingum í starfi
hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
vegna fyrirhugaðrar hagræðingar á
síðustu dögum. Næstkomandi miðviku-
dag heldur félagið fund þar sem hjúkr-
unarfræðingum Heilsugæslu höfuð-
borgarsvæðisins verða kynnt réttindi
sín. „Þegar verið er að gera breytingar
á starfskjörum sem leiða til lækkunar
launa þá þarf að gera það samkvæmt
ákvæðum kjarasamninga og það þekkja
einfaldlega ekki allir rétt sinn. Fundur-
inn verður haldinn vegna fjölda fyrir-
spurna frá hjúkrunarfræðingum Heilsu-
gæslu höfuðborgarsvæðisins. Við viljum
standa vörð um réttindi félagsmanna og
tryggja að hlutirnir séu gerðir í samræmi
við kjarasamninga og lög,“ segir hann.
dagný Hulda erlendsdóttir
dagnyhulda@frettatiminn.is
Hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins eru 129 stöðugildi hjúkrunarfræðinga. Frá árinu 2009 til 2013 var þeim fækkað um 10 og
á þessu ári verður þeim svo fækkað um 7,5 til viðbótar. Stefnt er að því að grípa ekki til beinna uppsagna, heldur að ráða ekki í
stöður sem losna. Ljósmynd/Hari.
HeilbrigðismÁl ÁFramHaldandi niðurskurður í Heilsugæslunni
Við getum
ekki búið við
minnkandi
fjárveitingar
ár eftir ár án
þess að það
komi ein-
hvers staðar
niður.
Störfum fækkað hjá Heilsu-
gæslu höfuðborgarsvæðisins
niðurskurður hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins á árinu verður 100 milljónir. Verið er að skoða
styttingu á opnunartíma síðdegisvakta og ekki verður ráðið í afleysingar. Fækka á stöðugildum
hjúkrunarfræðinga um 7,5 og heldur Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga fund í næstu viku þar sem
hjúkrunarfræðingum hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins verða kynnt réttindi sín.
4 fréttir Helgin 7.-9. mars 2014