Fréttatíminn - 07.03.2014, Blaðsíða 34
.„Ég hef mikinn áhuga á upplýsingalögum og kortum. Það
má segja að „Open Street Map“ og þörfin fyrir að safna upp-
lýsingum hafi verið þráhyggja mín í nokkur ár,“
segir Svavar Kjarrval sem situr í stjórn Einhverfufélagsins.
„Það er ekki hægt að móta okkur öll í sama mótið,
við verðum að fá viðurkenningu eins og við erum. Því
fagna ég þeirri vakningu sem átt hefur sér stað í um-
ræðunni um einhverfu á undanförnum tveimur árum,“
segir Jóhanna Vigdís Arnardóttir sem leikur í upp-
færslu Borgarleikhússins á verkinu Furðulegt
háttalag hunds um nótt sem fjallar um
dreng á einhverfurófinu. Jóhanna Vig-
dís segir umræðuna um einhverfu og
Asperger mjög mikilvæga. „Ég hef
heyrt af unglingsstelpum sem hafa
ekki fengið greiningu fyrr en allt er
komið í óefni því stelpur virðast eiga
auðveldara með að sigla í gegnum
bernskuna og skólakerfið án þess
að nokkur átti sig á því að þær
séu ef til vill á einhverfurófi. Þær
lýsa því hins vegar að um leið og
þær fengu greiningu hafi allt
orðið miklu betra, þær fengu
þar með viðurkenningu á því
hverjar þær væru – og höfðu
leyfi til að vera þannig,“ segir
hún. „Þegar greiningin var
komin var eins og einhver
segði: „Þetta er allt í lagi, þú
mátt bara vera eins og þú ert,“ segir
hún. „Þetta er kannski eins og með
alla aðra minnihlutahópa. Við þurfum
að berjast fyrir því að allir fái að vera eins
og þeir eru. Við þurfum að vera vakandi fyrir
því að við erum öll mismunandi og við þurfum
öll að vera í sama liði og berjast fyrir því að það
sé leyfilegt. Það þýðir ekki að þeir sem eru í til-
teknum minnihlutahópi þurfi sjálfir að berjast fyrir
réttindum sínum, svo sem transfólk, svo ég nefni eitt-
hvað, heldur verðum við öll að berjast fyrir réttindum
þeirra,“ segir hún.
Svavar Kjarrval er menntaður
tölvunarfræðingur og situr í
stjórn Einhverfusamtakanna.
Hann er þrítugur en var greindur
á einhverfurófi þegar hann var
26 ára.„Ég hef mikinn áhuga á
upplýsingalögum og kortum. Það
má segja að „Open Street Map“
og þörfin fyrir að safna upplýs-
ingum, hafi verið þráhyggja mín
í nokkur ár,“ segir Svavar. Hann
segir greininguna hafa hjálpað
sér við að mynda tengsl við fólk.
„Ég hafði mínar grunsemdir og
ákvað að panta tíma til að stað-
festa þær. Það breytti sýn minni
að fá þessa greiningu því maður
fer að máta sum einkenni við sig,
hluti sem maður sá ekki áður.
Svo get ég líka spurt aðra sem
eru á rófinu út í ýmislegt sem ég
talaði ekki um áður. Ég átti mun
erfiðara með félagsleg samskipti
áður. Í skólanum bað ég aldrei
um hjálp, fannst betra að gera
hlutina sjálfur og leið betur í ein-
staklingsverkefnum en hópaverk-
efnum. Mér finnst almennt erfitt
að treysta á frammistöðu annara,“
segir Svavar.
Fannst þér þú vera öðruvísi en
annað fólk áður?
„Nei mér fannst aðrir frekar
vera öðruvísi en ég. Munurinn
á milli manneskju sem er á ein-
hverfurófi og annara er aðallega
menningarleg. Dæmi um það er
hefðin að kveðja fólk. Áður fyrr
kvaddi ég aldrei þegar ég fór úr
veislum, en hér á landi telst það
eðlilegt að maður fari upp að
manneskjunni sem heldur veisl-
una og kveðji hana. En í Víetnam
er það talið eðlilegt að kveðja
ekki. Áður fyrr reyndi ég ekki að
heilla fólk með einhverjum siðum,
óskrifuðum reglum sem ég vissi
ekki einu sinni af.“
Umræðan er mikilvæg, segir Jóhanna Vigdís Arnardóttir leikkona
sem leikur í verkinu „Furðulegt háttalag hunds um nótt”..
Munurinn á fólki á einhverfurófi og öðrum er
menningarlegur, segir Svavar Kjarrval sem var greindur á
einhverfurófi þegar hann var 26 ára.
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
sk
h
ön
nu
n
Rannís óskar eftir einstaklingum til að meta umsóknir
í menntahluta Erasmus+ áætlunar ESB sem er ný
styrkjaáætlun um menntun, æskulýðsstarf og íþróttir.
Óskað er eftir einstaklingum sem hafa:
l yfirgripsmikla þekkingu á íslensku menntakerfi
l skilning og þekkingu á stefnumiðum ESB um menntun
l reynslu af stjórnun innlendra og alþjóðlegra verkefna
l góða íslensku- og enskukunnáttu, sérstaklega í rituðu máli
l reynslu af því að meta verkefnisumsóknir
l skapandi huga og góða rökhugsun
Um er að ræða tímabundin verkefni í tengslum við
umsóknarfresti Erasmus+.
Aðeins um Erasmus+
Erasmus+ er ný styrkjaáætlun Evrópusambandsins á sviði
menntunar, æskulýðsstarfs og íþrótta sem gildir 2014-2020.
Markmið Erasmus+ er að auka gæði og stuðla að samstarfi
í menntun og þjálfun innan þeirra 33 Evrópulanda sem eiga
aðild að áætluninni. Menntahluti Erasmus+ styrkir verkefni
sem snúa að námi og þjálfun nemenda og starfsfólks og stór
fjölþjóðleg samstarfsverkefni.
Áhugasamir eru beðnir um að senda inn ferilskrá fyrir
17. mars á netfangið erasmusplus@rannis.is.
Nánari upplýsingar á www.erasmusplus.is.
Ef einhverjar spurningar vakna, vinsamlegast setjið
ykkur í samband við Margréti Sverrisdóttur,
margret.sverrisdottir@rannis.is
Erasmus+
Mat á umsóknum
Umsóknarfrestur 17. mars
Hátækni á
HeimsmælikvarðaNox Medical hefur þróað svefnrann-sóknabúnað sem vakið hefur verð-
skuldaða athygli.
Síða 2
krabbi fyrir og
eftir kreppuMatthea Sigurðardóttir kynntist sitt hvorri hlið heilbrigðiskerfisins þegar hún glímdi við krabbamein.
Síða 4
karlar mikilvægir í
umönnun
Fjöldi karla í umönnunarstörfum hjá öldrunarheimilum Akureyrar tvöfaldaðist síðasta sumar.
Síða 8
einstakur grunnur
til rannsóknaKrabbameinsskrá okkar Íslendinga hefur verið starfrækt í hálfa öld. Hún þykir ein sú fullkomnasta í heimi.
Síða 10
1. tölublað 2. árgangur
10. janúar 2014
Öldruðum mun fjölga hratt á næstu árum og áratugum. Eftir tuttugu ár verða fimmtán pró-sent landsmanna yfir sjötugu en eru níu prósent nú. Álag á heilbrigðisþjónustu mun aukast til muna og kostnaður samfara því. Heilbrigðis-kerfið er ekki tilbúið að takast á við þennan nýja veruleika.
Síða 6
Ellisprengja
Lúsasjampó
eyðir höfuðlús og nit
Virk
ni s
tað
fest
í
klín
ísku
m p
rófu
num
*
Öflugt - fljótvirkt - auðvelt í notkun Virkar í einni meðferð
Fljótvirkt: Virkar á 10 mínútum
100% virkni gegn lús og nit
Náttúrulegt, án eiturefna
* Abdel-Ghaffar F et.al; Parasitol Res. 2012 Jan; 110(1):277-80. Epub 2011 Jun 11.
FÆST Í ÖLLUM APÓTEKUM
Fyrir 2 ára og eldri www.licener.com
Mjög
auðvelt
að skola
úr hári!
Kemur næst
út 14. mars
Nánari upplýsingar veitir
Gígja Þórðardóttir,
gigja@frettatiminn.is,
í síma 531-3312.
Leitið upplýsinga á auglýsingadeild
Fréttatímans í síma 531 3310 eða á
auglysingar@frettatiminn.is
Fréttatímanum
er dreift á heimili á
höfuðborgarsvæðinu
og Akureyri auk
lausadreifingar um land allt.
Dreifing með
Fréttatímanum á
bæklingum og fylgiblöðum
er hagkvæmur kostur.
Ert þú að huga
að dreifingu?
34 fréttaskýring Helgin 7.-9. mars 2014