Fréttatíminn


Fréttatíminn - 07.03.2014, Side 69

Fréttatíminn - 07.03.2014, Side 69
Tíska & snyrtivörur Nýjasta nýtt í tísku- og snyrtivörum Helgin 7.—9. mars 2014 Máttur þarans Í dag vita flestir að mengun í andrúms-lofti hraðar öldrun húðarinnar auk þess að geta valdið fitusöfnun, þurrki og útbrotum. Þarinn er þeim eiginleik- um gæddur að veita náttúrulega vörn gegn þessum skaðlegu áhrifum og þann vísdóm hefur fólk þekkt frá örófi alda. Þarinn er auk þess svo meinhollt ofurfæði að með því að borða hann reglulega ættum við hreinlega að glansa að innan sem utan. Þarinn er algeng fæða um gjörvalla Asíu og hefur löngum ver- ið borðaður til að lengja lífið þar sem hann er uppfullur af steinefnum, vítamínum og andoxunarefnum. Snyrtivöruframleiðendur uppgötvuðu mátt þarans þegar þeir fóru að veita þessari harð- geru plöntu athygli í byrjun tuttugustu aldar- innar. Eftir töluverðar rannsóknir kom í ljós að þarinn hefur örvandi áhrif á húðprótein- ið sirtuin sem skiptir sköpum fyrir öldrun húðarinnar en auk þess er hann uppfullur af fitusýrum sem auka raka og örva collagen framleiðslu húðarinnar. Síðan þá er þarinn algengt innihald í mörgum af þeim undra- kremum og vökvum sem vinna gegn öldrun húðarinnar. Til eru fornar sögur af konum sem stunduðu þaraböð. Þessar konur lærðu af formæðrum sínum að þaraböð veittu húð- inni æskuljóma en í dag hafa rannsóknir sýnt að þarinn er gæddur þeim eiginleikum að þegar hann leggst á skinn dregur hann vökva og í leiðinni aukaefni úr húðinni. Þarinn er enn ein sönnun þess að náttúran veit hvað hún syngur. Veist þú hvaða vísindamaður stendur á bak við þína húðlínu? Græðandi húðvörur gegn öldrun, hannaðar af frönskum vísindamönnum Hagkaup Kringlunni, Hagkaup Smáralind, Árbæjarapótek, Apótek Vesturlands og Lyfjur um land allt. Vörurnar eru prófaðar undir eftirliti húðsjúkdómalækna. 100% náttúrulegar 0% rotvarnarefni 0% paraben 0% BHT-BHA 0% EDTA 0% phenoxyethanol 0% silicone 0% mineral oil 0% propylene glycool

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.