Sveitarstjórnarmál - 01.12.1962, Síða 4
9
SVEITARST J ÓRNARMÁL
Skeljungur 2,4 — — 2,7 — —
Olíuv. íslands 2,3 — — 3,3 — —
Samtals 10,1 millj. kr. 11,7 millj. kr.
Heildarútsvarsgreiðsla olíufélaganna
allra er þá 1962 um 1,6 millj. kr. hæni en
hún var 1961.
Árið 1961 skiptist heiklar útsvarsgreiðsl-
an þannig milli sveitarfélaganna, að Reykja-
vík fékk 4,4 millj. kr., en önnur sveitar-
félög 5,7 millj. kr. samanlagt.
Af landsútsvarinu 1962 fær Reykjavík 1,1
millj. kr. í fjórðungshlut og um það bil /3
af 8,8 millj. kr. sem í Jöfnunarsjóð fara og
er sú upphæð sem næst 2,9 millj. kr. Yrði
hlutur Reykjavíkur þá árið 1962 um 4
millj. kr. á móti 4,4 millj. kr. 1961. Virðist
því landsútsvarið á olíufélögin Reykjavík
í óhag frá því sem áður var.
Fjórðungshluti landsútsva'ra olíufélag-
anna sem er 2,9 millj. króna, skiptist milli
199 sveitarfélaga, af 229 á öllu landinu, svo
það eru aðeins 30 sveitarfélög Jrar sem eng-
in slík verzlun fer fram.
Al' Jjessum 2,9 millj. kr. fær Reykjavík í
sinn hlut 1,1 millj, en hin sveitarfélögin
öll saman, 198 að tölu, fá 1,8 millj. kr.
Af þessum 198 sveitarfélögum fá 33 yfir
10 Jjús. kr. hvert og öll saman fá þau 1,5
millj. krónur. Eftir eru þá 165 sveitarfélög,
sem samanlagt fá 300 þús. krónur, eða að
meðaltali 1800 krónur hvert sveitarfélag.
Nú er skiptingin á þessum 300 Jms. kr. mjög
misjöfn, og er lægsta tala í skiptingunni
18 krónur. Samanlagt eru 114 sveitarfélög
með fjórðungshluta undir 2000 krónum og
98 sem fá minna en 1000 krónur í sinn hlut.
Þessi fyrsta skipting landsútsvara er að
ýmsu leyti athyglisverð og verður væntan-
lega að henni vikið síðar og landsútsvörun-
um yfirleitt. J. G.
Skuldabréfalán
vegna gatnagerðar.
Bæjarstjórnin á Akranesi hefur boðið út
skuldabréfalán vegna gatnagerðar á Akra-
nesi og borið fram tilmæli til bæjarbúa, að
Jieir kaupi skuldabréf til þess að tryggja
með því áframhald gatnagerðar í kaup-
staðnum. Hér er um að ræða liugmynd,
sem vert er fyrir aðrar sveitarstjórnir að
gefa gaum. í auglýsingu frá bæjarstjóra í
bæjarblöðum á Akranesi segir svo:
„Akurnesingar!
Undanfarin tvö ár hefir Bæjarstjórn
Akraness beitt sér fyrir varanlegri gatna-
gerð á Akranesi, og hefur náðst mikilsverð-
ur áfangi að því marki að gera götur bæjar-
ins úr varanlegu efni, þar sem 20% gatna-
kerfisins er Jægar fullgert.
Nú hefir bæjarstjórnin gefið út skulda-
bréfalán að upphæð alls 2,5 millj. króna, til
Jaess að tryggja fjárhagsgrundvöll áfram-
haldandi gatnagerðar.
Skuldabréf Joessi eru í 3 flokkum, að
upphæð 10 þús., 5 Jjús., 2 þús. og bera
vexti jafna víxilvöxtum. Víxilvextir í dag
eru 9%.
Skuldabréfin verða dregin út á 10 árum
og verða Jjau greidd í Sparisjóði Akraness,
sem einnig sér um greiðslu vaxta.
Það eru tilmæli Bæjarstjórnar Akraness
til bæjarbúa, að þeir kaupi Jaessi bréf hver
eftir sinni getu, og stuðli með Jdví að enn
aukinni gatnagerð í bænum, öllum íbúum
hans til þæginda og hollustu, og bænum
sjálfum til prýði.
Bréfin eru seld í skrifstofu bæjarins að
Kirkjubraut 8.
Bæjarstjón.“