Sveitarstjórnarmál - 01.12.1962, Blaðsíða 5
SVEITARST J ÓRNARMÁL
3
Dómur Hæstaréttar í máli fyrrverandi
bæjarstjóra á Akranesi.
í SVEITARSTJÓRNARMÁLUM, 4. hefti
1961, var birtur dómur bæjarþings Akra-
ness í málinu Daníel Ágústínusson gegn
Akraneskaupstað vegna brottvikningar
hans úr starfi bæjarstjóra.
Málinu var síðan skotið til Hæstaréttar,
sem hefur nýlega kveðið upp dóm sinn.
Fer dómurinn hér á eftir í heild, en um
fyrri aðdraganda skal vísað til 4. heftis
1961, þar sem atvik málsins eru rakin.
Árið 1962, mánudaginn 17. desember, var
í Hæstarétti í málinu nr. 50/1962: Bæjar-
stjórn Akranesskaupstaðar f. h. bæjarsjóðs
gegn Daníel Ágústínussyni og gagnsök upp-
kveðinn svohljóðandi
D ó m u r :
Aðaláfrýjandi hefur, að fengnu áfrýjun-
arleyfi 30. marz 1962, skotið máli þessu til
Hæstaréttar með stefnu 6. apríl 1962 og
krafizt þess, að honum verði dæmd sýkna
og að gagnáfrýjanda verði dæmt að greiða
honurn málskostnað i héraði og fyrir Hæsta-
rétti.
Gagnáfrýjandi hefur, að fengnu áfrýjun-
arleyfi 30. marz 1962, áfrýjað málinu með
stefnu 9. apríl 1962 og krafizt þess, að aðal-
áfrýjanda verði dæmt að greiða honum kr.
346.879,15 ásamt 10% ársvöxtum frá 1.
október 1960 til 29. desember 1960 og 8%
ársvöxtum frá þeim degi til greiðsludags
og svo málskostnað í héraði og fyrir Hæsta-
rétti.
1. Með skírskotun til kröfugerðar gagn-
áfrýjanda og raka hins áfrýjaða dóms þyk-
ir rétt að ákveða fébætur handa honum
vegna uppsagnar á bæjarstjórastarfa kr.
114.000,00.
II. Á fundi bæjarstjórnar Akranesskaup-
staðar hinn 24. ágúst 1960 var samþykkt
með 7 atkvæðum gegn 2 að víkja gagn-
áfríjanda frá störfum bæjarstjóra með svo-
felldri ályktun:
„Með því að sannað er, að bæjarstjóri
Akraness, Daníel Ágústínusson, hefur á
eigin ábyrgð dregið bænum fé af uppbótar-
greiðslum til ellilífeyrisþega í Elliheimili
Akraness, að upphæð samtals kr. 62.223,00,
nýlega ákveðið fjárfestingu fyrir hönd bæj-
arins, að upphæð kr. 300.000,00, án samráðs
við bæjarstjórn, vanrækt að framkvæma
samþykktir bæjarráðs og tíðum stungið
undir stól erindum til bæjarstjórnar, í stað
þess að leggja þau fyrir bæjarráð til úrlausn-
ar, þá samþykkir bæjarstjórn Akraness að
segja honum upp bæjarstjórastarfinu frá
og með 25. ágúst 1960 að telja.“
Sakargiítir á hendur gagnáfrýjanda í
ályktun þessari eru móðgandi og meiðandi.
Þær eru mun meinlegri fyrir ]iá sök, að þær
voru fram bornar sem rökstuðningur fyrir
því að víkja honum úr stöðu hans. Eigi
hefur verið reynt í málinu að finna sakar-
giftunum stað né réttlæta þær. Að svo
vöxnu máli ber að dæma aðaláfrýjanda
samkvæmt 1. mgr. 264. gr. hegningarlaga
nr. 19/1940 til að greiða gagnáfrýjanda
miskabætur, sem þykja hæfilega ákveðnar
kr. 35.000,00.
III. Úrslitin verða því þau, að aðaláfrýj-
andi verður dæmdur til að greiða gagnáfrýj-
anda kr. 114.000,00 kr. 35.000,00, þ. e.