Sveitarstjórnarmál - 01.12.1962, Blaðsíða 6
4
SVEITARST JÓRNARMÁL
kr. 149.000,00 ásamt 7% ársvöxtum frá 13.
marz 1961 til greiðsludags og svo málskostn-
að í héraði og fyrir Hæstarétti, sem ákveðst
kr. 25.000,00.
D ó m s o r ð :
Aðaláfrýjandi, bæjarstjórn Akraneskaup-
staðar f. h. bæjarsjóðs, greiði gagnáfrýjanda,
Daníel Ágústínussyni, kr. 149.000,00 ásamt
7% ársvöxtum frá 13. marz 1961 til greiðslu-
dags og svo málskostnað í héraði og fyrir
Hæstarétti, kr. 25.000,00.
Dóminum ber að fullnægja að viðlagðri
aðför að lögum.
Rétt endurrit staðfestir 18. desember 1962.
Gjald kr. 15,00.
Hákon Guðmundsson.
(sign.)
Flugvöllur tekinn í notkun
Þáttaskil hafa orðið í samgöngumálum
Norðfjarðar með því að hinn 3. des. s.l.
lenti flugvél frá Flugfélagi íslands í fyrsta
skipti á flugvelli þeim, sem gerður hefur
verið þvert yfir Leiruna fyrir botni fjarðar-
ins. Flugvélinni stýrði Jóhannes Snorrason,
yfirflugstjóri, og með í henni voru flug-
málastjóri Agnar Koíoed Hansen og fram-
kvæmdastjóri Flugfélagsins Örn O. John-
son, sem skýrði svo frá, að félagið liyggðist
hafa áætlunarferðir til Norðfjarðar einu
sinni í viku fyrst um sinn.
Með tilkomu flugvallarins er þungbær
einangrun rofin, því góðar samgöngur eru
lífsskilyrði hverrar byggðar. í Norðfirði búa
nú um 1700 manns og styttra er frá Eski-
firði til Norðíjarðar en til Egilsstaða.
Verkfræðingur var Ólafur Pálsson og verk-
stjóri Júlíus Þórarinsson.
Hugmyndasamkeppni
Bæjarstjórn Akureyrar og skipulagsnelnd
ríkisins efna til samkeppni um skipulag að
miðbæ Akureyrar, á svæði, sem nær yfir
meginliluta núverandi og væntanlegs mið-
bæjarsvæðis í kaupstaðnum, og er 45 ha. að
stærð. Afmarkast það að norðan af Eiðs-
vallagötu og af Smáragötu að vestan af
Brekkugötu, Oddeyrargötu, Kaupvangs-
stræti, Eyrarlandsvegi, og Spítalastíg og að
austan og sunnan af höfninni, og er hafnar-
svæðið einnig innifalið i samkeppninni.
Verðlaunaupphæðin er kr. 175.000,00, er
skiptist þannig: 1. verðlaun kr. 100.000,00,
2. verðlaun kr. 50.000,00 og 3. verðlaun
kr. 25.000,00.
Auk verðlaunanna hefur dómnefndin til
ráðstöfunar kr. 30.000,00 til innkaupa á 2—3
úrlausnum.
Dómnefndina skipa Zophonías Pálsson,
skipulagsstjóri, Stefán Stefánsson, bæjar-
verkfræðingur á Akureyri, Stefán Reykja-
lín, byggingameistari, Bárður ísleifsson,
arkitekt og Gunnlaugur Pálsson, arkitekt.
Skilmálar og önnur gögn afhendast til
6. janúar 1963 hjá Ólafi Jenssyni, Skeiðar-
vogi 35, Reykjavík, eftir þann tíma hjá
Byggingaþjónustu Arkitektafélags íslands,
Laugavegi 18A, Reykjavík. Skilmálarnir
fást einnig afhentir lijá byggingafulltrúan-
um á Akureyri.
Skilatrygging fyrir samkeppnisgögnum
er kr. 500,00. Úrlausnir skulu afhendast
Ólafi Jenssyni, Byggingaþjónustu A.Í.,
að Laugavegi 18A, Reykjavík, eigi síðar en
þriðjudaginn 18. júní n.k. kl. 18.00.
Með Hugmyndasamkeppni þessari er
framkvæmd tillaga, sem samþykkt var á
hátíðarfundi bæjarstjórnarinnar 29. ágúst
síðastliðinn.