Sveitarstjórnarmál - 01.12.1962, Síða 8
6
SVEITARST J ÓRNARMÁL
endur eru í barnaskólanum í Breiðagerði,
1409, en næst flestir í Melaskóla, 1176, þar
sem forsíðumyndin er tekin. Fjölmennasti
gagnfræðaskólinn er Gagnfræðaskóli Aust-
urbæjar með 584 nemendur, að því er
fræðslustjóri Reykjavíkurborgar, Jónas B.
Jónsson, helur tjáð tímaritinu.
Á hátíðarsamkomunni í Þjóðleikhúsinu
flutti menntamálaráðherra, Gylfi Þ. Gísla-
son, ávarp og lauk því með þessum orðum:
„Á hátíðisdegi sem þessum má þó ekki
láta við það sitja að þakka þeim, sem
vel hafa gert og vel gera. Fortíðin skiptir
ekki mestu máli, heldur framtíðin. Það,
sem mest er um vert, er, að skóli komandi
aldar verði betri en liinnar, sem nú er liðin,
— að starl'ið, sem verður unnið, verði heilla-
drýgra en hitt, sem var unnið. Á þessum
merkisdegi langar mig því til þess að bera
fram |aá afmælisósk til reykvískra skóla, að
þeir verði í sívaxandi mæli' ekki aðeins
fræðslustofnanir, lieldur sönn menntasetur,
að frá fyrsta bekk barnaskólans til lokastigs
hins æðsta skóla sé það leiðarljós, að nem-
andinn verði ekki aðeins fróðari, heldur
einnig betri en liann var, að skólarnir vinni
aldrei að hætti verksmiðju að því að fram-
leiða hópmenni, sem hafa próf, heldur
helgi starf sitt einstaklingnum, persónuleg-
um þroska hans og hamingju. Skólar, sem
starfa í þessum anda, vinna að mínu viti
það verk, sem er einna mikilvægast af öllu,
sem gert er í nútíma þjóðfélagi: Að stuðla
að því að maðurinn noti aukna Jjekkingu
sína og aukið vald sitt yfir náttúrunni sjálf-
um sér til aukins Jjroska og hamingju. Á
ég Jaá ósk heitasta til handa reykvískum
skólum á Jjessum afmælisdegi, að Jreim
megi á ókomnum árum takast að stuðla að
])ví, að ísland eignist sem flesta menntaða,
dygga og góða syni, — að sem flestir ís-
lendingar verði heilir og sannir menn."
Aukin ákvæðisvinna?
Blaðið Dagur á Akureyri birtir nýlega í
neðanmálsgrein stutta hugvekju, sem nefnd
er Vinna og vinnuafköst. Fer hún hér á
eftir:
„Þótt víða megi sjá vel unnið á Akur-
eyri, og vinnusiðgæði sé ekki lakara en al-
mennt gengur og gerist — kannske jafn-
vel eitthvað skárra — Jaá eru þeir menn of
margir, sem skila litlum dagsverkum.
í norðlenzkum bæ bar Jiað við fyrir
skömmu, að handgrafa Jjurfti skurð einn.
Datt forráðamönnunum þá það snjallræði
í hug, að leita tilboða í verkið, enda stóð
svo vel á, að fyrir lá, hvað svipað verk kost-
aði í sama bæ þá rétt áður, unnið í tíma-
vinnu.
Maður nokkur tók að sér verkið fyrir
ákveðna þóknun, sem þótti lág, vann þar
einn dag og reiknaði síðan út laun sín. Þau
voru J^reföld verkamannslaun og hélzt það
til loka verksins.
Eflaust væri oft hægt að gefa mönnum
kost á ákvæðisvinnu, verkamönnum og at-
vinnuveitendum til mikils ávinnings. En
slíkt Jsarf rækilegan undirbúning og athug-
un á meðalafköstum við liin ýmsu störf,
til ])ess að fá staðgóðan grundvöll til að
byggja a- Skeð gæti, að þarna gæti bæjar-
félagið gengið á undan, ef vilji væri fyrir
hendi hjá báðum aðilum að taka upp
ákvæðisvinnu í einhverjum greinum.“
Nýr yfirlæknir.
Nýr yfirlæknir, Jón R. Árnason, hefur
tekið til starfa við sjúkrahúsið í Neskaup-
stað í stað Eggerts Brekkan.