Sveitarstjórnarmál - 01.12.1962, Page 10
8
SVEITARST JÓRNARMÁL
Almannatry^m^ai4 1961.
Það er orðin venja að birta hér í ritinu
samandregið yíirlit um helztu niðurstöðu-
tölur ársreikninga lífeyris- og slysatrygg-
inga, þegar reikningarnir eru fullgerðir.
Hér verður gerð grein fyrir reikningum
ársins 1961 og samanburður gerður við
árin 1959 og 1960. Um afkomu sjúkrasam-
laga 1961 hefur Tryggingastofnunin enn
ekki heiklaryfirlit, og eru tölur þær, sem
birtar eru um þá grein almannatrygginga,
ónákvæmar bráðabirgðatölur.
LÍFEYRISTRYGGINGAR.
Mikill halli varð á rekstri lífeyristrygg-
inga á árinu eða 19,9 millj. króna. Stafaði
liann eingöngu af þeirri almennu 13,8%
bótahækkun, sem ákveðin var í lok ársins,
en látin gilda hálft ár aftur í tímann til
samraanis við launahækkanir ríkisstarfs-
manna.
Auk framangreindrar hækkunar varð
mikil útgjaldaaukning, sem gert hafði ver-
ið ráð fyrir í fjárhagsáætlun. í fyrsta lagi
var þar um að ræða eðlilega fjölgun bóta-
þega. í öðru lagi komu nú með fullum
þunga jjær hækkanir, sem orðið höfðu á
árinu 1960, en giltu ekki framan af Javí
ári (aukning fjölskyldubóta kom til fram-
kvæmda 1. apríl 1960, en lífeyrisgreiðslur
hækkuðu 1. febrúar). í þriðja lagi féllu
skerðingarákvæði 22. gr. almannatrygginga-
laga úr gildi í árslok 1960, og kom af þeim
sökum stór hópur nýrra ellilífeyrisþega á
árinu 1961. Lagabreytingin olli einnig
auknurn útgjöldum til örorkulífeyris, en
hafði lítil áhrif á aðrar bótategundir.
Gjöld lífeyristrygginga 1959—1961.
I. II. III. Bætur vegna elli, örorku, dauða .... Fæðingarstyrkur Fjölskyldubætur 1959 Þús. kr. 117.834 8.470 24.532 1960 Þús. kr. 184.026 10.256 115.336 1961 Þús. kr. 244.327 10.438 159.865
I.—III. samtals .... 150.837 309.618 414.630
IV. Framlag til sjúkrasamlaga o. fl 6.194 891 1.019
V. Kostnaður 5.956 7.082 7.700
I.—V. samtals .... 162.987 317.591 423.349
VI. Til varasjóðs 3.260 6.352 8.467
I.—VI. samtals .... 166.246 323.943 431.816
VII. Bætur vegna fyrri ára 52 — —
VIII. Iðgjöld og framlög geymd til næsta árs 12.080 977 —
I.—VIII. samtals .... 178.378 324.920 431.816