Sveitarstjórnarmál - 01.12.1962, Side 11
SVEITARST J ÓRNARMÁL
9
í heild nemur hækkun eiginlegra bóta
lífeyristrygginga (þ. e. liða I,—III.) frá 1960
til 1961 105 millj. kr. eða 33,9%. Fjöl-
skyldubætur hafa hækkað um 44,5 millj. kr.
eða 38,6%, bætur vegna elli, örorku og
dauða um 60,3 millj. kr. eða 32,8%, en
fæðingarstyrkur aðeins um 0,2 millj. kr. eða
1,8%. Einstakar bótategundir í liðnum
vegna elli, örorku og dauða hafa hækkað
mjög mismikið. Er hækkun ellilífeyris bar
langmest eða um 40%, örorkulífeyrir og
örorkustyrkur hækkaði um 24%, sjúkrasam-
lagsiðgjöld lífeyrisþega um 31%, en aðrar
bætur í þessum lið mun minna.
í árslok 1960 voru geymdar til næsta árs
14,8 millj. kr. af iðgjöldum og framlögum
til lífeyristrygginga. Skuld jjeirra aðila, sem
standa undir tryggingunum, var því 5,1
millj. kr. í lok ársins 1961, þ. e. miklum
mun minni en hallinn á árinu gefur til
kynna. Nam skuld hinna tryggðu 1,1 millj.
kr., skuld sveitarfélaga 1,2 millj. kr., skuld
ríkissjóðs 4,1 millj. kr., en atvinnurekend-
ur áttu hins vegar inni 1,3 millj. kr.
Varasjóður lífeyristrygginga nam 144,6
millj. kr. í árslok 1961 og hafði vaxið um
15,1 millj. kr. á árinu. Námu vextir til
sjóðsins 6,6 millj. kr., en tillag 8,5 millj.
kr., sbr. útgjaldalið VI.
Tekjur lifeyristrygginga 1959—1961.
1959 1960 1961
Þús. kr. Þús. kr. Þús. kr.
I. Iðgjöld hinna tryggðu II. Iðgjöld atvinnurekenda III. 'Framlag sveitarfélaga IV. Framlag ríkissjóðs 60.198 24.929 34.600 58.600 67.721 29.199 36.600 191.400 81.113 37.304 45.800 247.700
Iðgjöld og framlög samtals .... 178.327 324.920 411.917
V. Úr sjóðum vegna bóta fvrri ára .... 52 — —
VI. Halli á iðgjöldum og framlögum .... — — 19.900
Samtals .... 178.378 324.920 431.816
SLYSATRY GGIN GAR.
Með tilliti til þess, að iðgjöld til slysa-
trygginga hafa haldizt óbreytt síðan 1958
fyrir alla aðra en lögskráða sjómenn, en
bótaupphæðir hafa stórhækkað á þessu
tímabili, verður afkoma slysatrygginga 1961
að teljast mjög góð. Lækkuðu allir bóta-
liðir frá árinu á undan. Reyndust iðgjöld
869 þús. kr. hærri en heildarútgjöld slysa-
trygginganna, en búizt hafði verið við
reksturshalla.
Auk tekjuafgangsins hafa varasjóði slysa-
trygginga bætzt vextir, og nemur aukning
hans á árinu 3,3 millj. kr. Nam varasjóð-
urinn 32,8 millj. kr. í lok ársins.
Þótt ekki hafi orðið reksturshalli á síðast-
liðnu ári hjá slysatryggingunum, sýnir
rekstursafkoma þeirra ásamt þeim bóta-
hækkunum, sem orðið hafa, þó ljóslega, að
iðgjöld þarf að endurskoða innan skamms.