Sveitarstjórnarmál - 01.12.1962, Blaðsíða 15
KV^tTARST JÓRNARMÁL
13
tímis. Meðaldvalartími hefur stytzt með
hverju ári, einkum vegna þess að skortur
er verulegur á vinnuafli í Oslo og ná-
grenni. Nú er meðaldvöl vistmanns á æf-
ingardeildinni um 14 vikur, jDannig að
deildin tekur við um 300 nýjum vistmönn-
um á ári að meðaltali. Stofnunin hefur
góða og sívaxandi samvinnu við ýmsa at-
vinnurekendur, bæði í einkarekstri og opin-
berum, sem jafnan taka l'úslega við vist-
fólki frá stofnuninni.
Verkstæðin eru 9 talsins, }:>ar sem 98
manns geta unnið samtímis. Flestar vinnu-
stofurnar eru á sviði smíða (járnrenniverk-
stæði, járnsmíðaverkstæði, logsuðustofa,
samsetningarstofa, trésmíða- og málara-
vinnustofa), en auk þess er rafmagnsverk-
stæði, húsgagnabólstrun, skrifstofustarfs-
kennsla og ein vinnustofa fyrir ýmis störf.
Starfið á vinnustofunum er fyrst og
fremst ætlað til að þjálfa vistfólk í úthaldi
og hraða, en auk jress er veitt tæknileg
fræðsla um starfið munnlega á starfsstað
og með bréfanámskeiðum. Vistmenn ljúka
engu prófi, sem réttindi gefur á hinum al-
menna vinnumarkaði. Til slíks er þeim
vísað á hina ýmsu iðn- og verzlunarskóla.
Vinnutími er lengdur smátt og smátt úr
1—2 klst. upp í 8^4 klst. auk matar- og
kaffihléa. Full vinnuvika er 45 klst. —
Reynslan hefur sýnt, að hinn mikli vinnu-
hraði, sem ríkir í atvinnulífinu og krafizt
er á vinnumarkaðinum, er erfiðasti þrösk-
uldurinn fyrir öryrkjana. Þess vegna er
gífurleg áherzla lögð á almenna og sér-
hæfða ])rekj)jálfun og vinnuhraðaþjálfun.
Á orkulækningadeildinni eru jtað mest
sjúklingar, sem gerðar hafa verið aflim-
anir á, er fá meðferð, eða um 40%. Þjálf-
unin fer bæði fram einstaklingslega og í
hópurn. Hópþjálfun hefur í mörgum til-
fellum reynzt mjög vel.
Vistdeildin ræður yfir 15 rúmum í sjálfri
stofnuninni og auk Jress 32 rúmum á sér-
stöku vistheimili inni í bænum. Þarna hafa
vistmenn fullt fæði og húsnæði. Þeir, sem
eru vinnandi, greiða fyrir sig sjálfir að
nokkru leyti. Meðaldvalartími hefur verið
um 130 dagar. Vegna hins gífurlega hús-
næðisskorts hafa margir dvalizt lengur í
vistdeildinni en ella J^yrfti.
Eftir að endurhæfingu lýkur og viðkom-
andi hefur fengið atvinnu, er hal't eftirlit
nteð hverjum og einum í a. m. k. 2 ár,
venjulega á hálfs árs lresti, en oftar, ef
Jtörf krefur.
Töflur eru til um vistmenn, sem teknir
hafa verið til greiningar frá 1. júlí 1953
til 1. október 1960. Þar sést að 3425 hafa
fengið fulla meðferð á greiningardeildinni
á Jressum tíma. Orðið hefur að hætta við
meðferð 291 (vonlaust talið um árangur),
150 hafa hætt sjálfir og 66 hafa dáið. Eftir
sjö ár eru Jtá milli 80 og 85% allra, sem
teknir hafa verið til meðferðar, taldir
vinnufærir. Atvinnulausir eru aðeins 9 eða
1.8% af árgangi 1953/1954, um 5% af
næstu 2 árgöngum 1954/1956, um 10% af
næstu 2 árgöngum 1956/1958 og um 14%
frá árunum 1958/1960.
9 t jnjcDHi'i. t , v
III.
Kostnaður við starfsemi stofnunarinnar
í Oslo hefur numið um 2.6 rnillj. króna á
síðustu árum. Tekjur hafa oftast orðið um
helmingur útgjalda, Jtannig að nettófram-
lag ríkissjóðs hefur numið um 1.3 millj.
norskra króna.
Tekjurnar eru að langmestu leyti dag-
peningar, sem lagðir eru með hverjum vist-
manni, kr. 25 á dag í greiningardeild og
æfingardeild og kr. 15 á dag í vistdeild.
Dagpeningarnir eru greiddir af hinum
ýmsu greinum trvgginganna, mest að sjálf-