Sveitarstjórnarmál - 01.12.1962, Qupperneq 22
20
SVEITARST J ÓRNARMÁL
^
TRYGGINGATÍÐINDI
--------------------------------é
lftigjöld til atvinnuleysistrygginga 1963.
Iðgjöld atvinnurekenda til atvinnuleysis-
tryggingasjóðs fyrir árið 1963 hafa verið
ákveðin. Verður vikugjaldið kr. 11,50, en
var kr. 10,42 árið 1962. Iðgjald þetta mið-
ast við almennan dagvinnutaxta Dagsbrún-
arverkamanna (1% af 48 stunda viku) árið
á undan.
Aukin framlög til endurhæfingar
í Danmörku.
Árið 1960 var sett heildarlöggjöf um end-
urhæfingu í Danmörku, og veittar voru 9
millj. danskra króna til þeirrar starfsemi
í fjárlögum fyrir fjárhagsárið 1961—1962.
Fyrir fjárhagsárið 1963—1964 er áætlað
framlag 20,5 millj. kr.
Lagasetning þessi þykir hafa reynzt vel,
og er gert ráð fyrir aukinni starfsemi og
fjölgun starfsfólks endurhæfingarstöðv-
anna. Er þar um að ræða bæði endurhæf-
ingarráðunauta, almennt skrifstofufólk og
lækna, er starfa við stöðvarnar hluta úr
degi.
Sóun lyfja í Nýja Sjálandi.
í Nýja Sjálandi veita sjúkratryggingarn-
ar ókeypis lyf. Það er því orðið að vana
hjá hinum sjúkratryggðu að fleygja hálf-
tómum meðalaglösum, þegar þeir eru orðn-
ir lieilir heilsu. Oft er þetta líka rétt, þar
eð sum lyf verða gagnslaus, er þau liafa
verið geymd nokkurn tíma. Mörg lyf þola
hins vegar geymslu, og getur þá læknir
skorið úr, hvort garnalt lyf er nothæft síðar,
þegar þörf verður fyrir það.
í Auckland létu heilbrigðisyfirvöldin
rannsaka sorptunnur í borginni, og fannst
þar allmikið af dýrum lyfjum, sem fleygt
hafði verið, en voru þó aó fullu nothæf
enn.
Bágur fjárhagur sjúkrasamlaga
í Vestur-Þýzkalandi.
í Vestur-Þýzkalandi er sömu sögu að segja
um sjúkratryggingarnar og annars staðar í
heiminum, þar sem af fréttist. Útgjöld auk-
ast ár frá ári, og iðgjaldahækkanir reynast
fljótt of litlar.
í skýrslu vesturþýzka verkalýðs- og l'élags
málaráðuneytisins um rekstur viðurkenndra
sjúkrasamlaga l'yrri helming ársins 1961
segir m. a., að tekjur samlaganna í heild
hafi þetta hálla ár numið 5.110 millj.
marka, en útgjöldin 5.140 millj. marka.
Hallinn nam 29 millj. marka þrátt fyrir
14% aukningu tekna frá sama tímabili árið
áður. Af rúmlega 2.000 viðurkenndum
sjúkrasamlögum, höfðu 1.071 verið rekin
með samtals 95 millj. marka lialla, en rekst-
ursafgangur hjá 948 samlögum nam 66
millj. mörkum.
Skipting útgjalda eftir bótategundum
stingur í stúf við það, sem við eigum að
venjast hér á landi. Meðalútgjöld á tryggð-
an samlagsmann námu samtals 189 rnörk-
um þá 6 mánuði, sem hér um ræðir, og
þar af námu dagpeningar 67,50 mörkum.
Læknishjálp nam 38 mörkum, og í þriðja
sæti var sjúkrahúskostnaður, sem nam 28
mörkum.
(Sygckassetidende, desember 1962).
Læknar segja upp samningum.
Læknafélag Reykjavíkur hefur nýlega
sagt upp öllum samningum sínum við
Sjúkrasamlag Reykjavíkur svo og samningi
þeim, sem félagið hefur við Trygginga-
stofnunina um sérfræðilæknishjálp. Gildir
uppsögnin frá 1. apríl n.k.