Sveitarstjórnarmál - 01.12.1983, Blaðsíða 73
Ingi R. Helgason, forstjórl Brunabótafélags íslands, sæmlr Magnús H. Magnús-
son, fv. bæjarstjóra, gullmerkl félagslns, en Magnús hafðl verlð sextán ár í
fulltrúaráði Bl’ og jafn lengl í stjórn félagsins.
frumvörp þau, sem Guðmundur
G. Þórarinsson flutti á síðasta Al-
þingi um breytingar á lögum nr.
9/1955 um Brunabótafélag ís-
lands og um að fella úr gildi lögin
um brunatryggingar fasteigna í
Reykjavík og utan Reykjavíkur.
Varar aðalfundurinn alvarlega
við að taka upp þá lagastefnu,
sem boðuð er í frumvörpum þess-
um, bæði hvað snertir skipan
brunatrygginga fasteigna í land-
inu og sjálfsforræði sveitarfélag-
anna.
Sérstaklega mótmælir aðal-
fundurinn tillögugerð í þá átt að
banna sveitarfélögum í landinu
að eiga aðild að Brunabótafélagi
íslands og að leggja niður þann
rétt sveitarstjórna að bjóða út í
einu lagi brunatryggingar fast-
eigna í umdæmum sínum. Enn-
fremur telur aðalfundurinn frá-
leitt að ætla að banna Reykjavík
með lagaboði að reka Húsatrygg-
ingar Reykjavíkur.
Skorar aðalfundurinn á sveitar-
stjórnarmenn um allt land að
standa vel á verði um forræðisrétt
sveitarfélaganna í þessum efnum,
en aðalfundurinn treystir því, að
Alþingi taki ekki þennan sjálfs-
ákvörðunarrétt sveitarfélaganna
af þeim að þeim forspurðum.
Samþykkt einróma.
11. ÞING LANDSSAMBANDS
SLÖKKVILIÐSMANNA Á ÍSAFIRÐI
Ellefta þing Landssambands
slökkviliðsmanna var haldið á ísa-
firði dagana 8. og 9. október 1983.
Þingið sóttu 48 fulltrúar víðsvegar af
landinu.
Helztu mál þingsins voru mennt-
unarmál slökkviliðsmanna og þeir
miklu eldsvoðar, sem átt hafa sér
stað á þessu ári. Fram kom á þing-
inu, að það, sem af er þessu ári, hafa
orðið meiri og stærri brunatjón á ís-
landi en á síðustu áratugum.
Á þinginu var talið, að eina leiðin
til þess að sporna við þessari þróun
væri sú að beita meiri hörku við þau
fyrirtæki, sem ekki lagfæra það, sem
eldvarnareftirlitsmenn hafa gert
kröfu um til úrbóta. í flestöllum til-
fellum, þar sem stórbrunar hafa átt
sér stað á undanfornu ári, hafa ein-
staklingar og fyrirtæki einmitt komizt
upp með að skella skolleyrum við
kröfum þeirra. Jafnframt var það
ályktun þingsins, að auka þyrfti og
bæta tækjabúnað og aðstöðu slökkvi-
liða víða á landinu, svo og að mennt-
unarmál slökkviliðsmanna séu í al-
gjörum ólestri.
Einnig voru öryggismál slökkvi-
liðsmanna mikið rædd.
liðsmanna til eins árs voru kosnir
Höskuldur Einarsson, Reykjavík, for-
maður; Ágúst Magnússon, Selfossi,
varaformaður; Þorbjörn Sveinsson,
Hafnarfirði, gjaldkeri; Birgir Ólafs-
son, Reykjavíkurflugvelli, ritari, og
meðstjórnendur þeir Þórir Gunnars-
son og Halldór Vilhjálmsson,
slökkviliðsmenn á Keflavíkurflug-
velli, og Jón Ólafur Sigurðsson á Isa-
firði.
í stjórn Landssambands slökkvi-
Nýkjörln stjórn Landssambands slökkviliðsmanna. Á myndinni eru, talið frá
vinstri: Þórir Gunnarsson, Keflavíkurflugvelli; Þorbjörn Sveinsson, Hafnarfirði;
Birgir Ólafsson, Reykjavikurflugvelli; Höskuldur Einarsson, Reykjavík, formað-
ur LSS; Jón Ólafur Sigurðsson, ísafirði, og Halldór Vilhjálmsson, Keflavíkur-
flugvelli. Á myndina vantar elnn stjórnarmann, Ágúst Magnússon, Selfossi. 391
SVEITARSTJÓRNARMÁL